Beethoven.is
Á Rás 1

Morgunvaktin

96 innslög Magnúsar um tónlist á Rás 1, það nýjasta efst. Hvert innslag spilast eitt og sér, og síðan það næsta ef þú vilt.

2026 · 33 innslög

2025 · 38 innslög

  • 19. desember 2025
    Jólatónlist
    22 mín.ruv.is
  • 12. desember 2025
    David Oistrakh
    22 mín.ruv.is
  • 5. desember 2025
    Aldo Ciccolini
    26 mín.ruv.is
  • 21. nóvember 2025
    Verdi-þrenningin Il trovatore, Rigoletto og La traviata

    Il trovatore, Rigoletto og La traviata.

    20 mín.ruv.is
  • 14. nóvember 2025
    Klassísk tónlist og börn
    23 mín.ruv.is
  • 7. nóvember 2025
    Gamli stíll
    23 mín.ruv.is
  • 24. október 2025
    Jessye Norman
    23 mín.ruv.is
  • 17. október 2025
    Dietrich Fischer-Dieskau
    24 mín.ruv.is
  • 24 mín.ruv.is
  • 26. september 2025
    Robert Schumann
    21 mín.ruv.is
  • 12. september 2025
    Jussi Björling

    Magnús Lyngdal kom til okkar í spjall um sígilda tónlist og viðfangsefni dagsins var enginn annar en sænski tenórsöngvarinn Jussi Björling. Hann er mikið uppáhald margra og auk þess að segja frá honum lékum við sérvalin tóndæmi frá farsælum ferli Jussi.

    17 mín.ruv.is
  • 5. september 2025
    Henry Purcell

    Og svo var það sígilda tónlistin á föstudegi. Í dag fjallaði Magnús Lyngdal um Henry Purcell, eitt helsta tónskáld Breta.

    23 mín.ruv.is
  • 22. ágúst 2025
    Sir Thomas Beecham

    Í umfjöllun um sígilda tónlist sagði Magnús Lyngdal frá enska hljómsveitarstjóranum Sir Thomas Beecham og lék brot úr verkum.

    21 mín.ruv.is
  • 15. ágúst 2025
    Fræg aukalög

    Svo var Magnús Lyngdal með okkur. Hann hélt uppteknum hætti og fjallaði um sígilda tónlist. Við heyrðum meðal annars í Angelu Gheorghiu og Jose Carreras í dag.

    23 mín.ruv.is
  • 27. júní 2025
    Níkolaj Rímskíj–Korsakov og Scheherazade

    Sígilda tónlistin átti svo hug okkar allan milli hálf níu og níu. Magnús Lyngdal leiðir okkur í allan sannleika um rússneska tónskáldið Nikolai Rimsky-Korsakov og einkum verkið Scheherazade sem Rimsky-Korsakov samdi 1888.

    26 mín.ruv.is
  • 20. júní 2025
    Leoš Janáček og Zoltán Kodály

    Austur-evrópsku tónskáldin Leoš Janáček og Zoltán Kodály voru umfjöllunarefni Magnúsar Lyngdal í spjalli um sígilda tónlist í dag. Báðir nýttu þjóðlagaarfinn mikið í verkum sínum.

    22 mín.ruv.is
  • 13. júní 2025
    Cavalleria rusticana og Pagliacci

    Magnús Lyngdal fjallaði um sígilda tónlist.

    22 mín.ruv.is
  • 6. júní 2025
    Dmítríj Shostakovítsj

    Magnús Lyngdal var svo með umfjöllun um sígilda tónlist. Shostakocich er viðfangsefni dagsins - Magnús sagði okkur frá tónskáldinu frá Pétursborg og lék brot úr nokkrum verkum.

    23 mín.ruv.is
  • 30. maí 2025
    Ida Haendel

    Magnús Lyngdal kom til okkar í síðasta hluta þáttarins og sagði frá fiðluleikaranum Idu Haendel.

    18 mín.ruv.is
  • 23. maí 2025
    Giuseppe di Stefano

    Magnús Lyngdal Magnússon var svo með okkur í síðasta hluta þáttarins og sagði frá Giuseppe Di Stefano, ítalska tenórsöngvaranum, sem sumir segja að hafi haft fegurstu rödd allra söngvara.

    19 mín.ruv.is
  • 16. maí 2025
    Balletttónlist

    Magnús Lyngdal sagði frá og leyfði okkur að heyra balletttónlist í síðasta hluta þáttarins.

    24 mín.ruv.is
  • 9. maí 2025
    Engelbert Humperdinck og Hans og Gréta

    Svo var það sígilda tónlistin. Í dag fjallaði Magnús Lyngdal um óperu Humperdinck-systkinana sem færðu ævintýri Grimm-bræðra um Hans og Grétu á svið óperuhúsa undir lok nítjándu aldar.

    22 mín.ruv.is
  • 2. maí 2025
    Gustav Mahler

    Magnús Lyngdal sagði frá og leyfði okkur að heyra brot úr verkum Gustavs Mahler.

    22 mín.ruv.is
  • 25. apríl 2025
    Brot úr óperum eftir t.d. Verdi, Wagner og Puccini

    Svo var það sígilda tónlistin. Magnús Lyngdal fjallaði um nokkrar óperur, við heyrðum brot úr óperum eftir t.d. Verdi, Wagner og Puccini, og í ýmsum flytjendum, t.d. Placido Domingo, Elinoru Buratto og Vínar-Fílharmoníunni.

    23 mín.ruv.is
  • 11. apríl 2025
    Johann Sebastian Bach og Jóhannesarpassían og Matteusarpassían

    Við fjölluðum um tvo listamenn og verk þeirra. Fyrst Ósvald Knudsen og kvikmyndagerð hans; Gunnar Tómas Kristófersson hjá Kvikmyndasafninu sagði okkur frá honum, og svo Johann Sebastian Bach; Magnús Lyngdal fjallaði um Passíurnar hans sem hann kenndi við Matteus og Jóhannes.

    23 mín.ruv.is
  • 4. apríl 2025
    Camile Saint-Saëns

    Tónlist Camile Saint-Saëns var á dagskránni þegar Magnús Lyngdal kom til okkar og sagði frá frá franska tónskáldinu og lék fyrir okkur brot úr nokkrum verkum.

    21 mín.ruv.is
  • 28. mars 2025
    Antonín Dvořák

    Í spjalli um sígilda tónlist sagði Magnús Lyngdal frá Antonin Dvorak og lék brot úr nokkrum verka hans.

    21 mín.ruv.is
  • 21. mars 2025
    Kventónskáld

    Og svo var það sígilda tónlistin. Magnús Lyngdal hélt áfram leiðsögn sinni á Morgunvaktinni um tónlistarsöguna.

    24 mín.ruv.is
  • 14. mars 2025
    Johannes Brahms

    Og svo var það sígilda tónlistin með Magnúsi Lyngdal. Magnús fjallaði um Johannes Brahms í spjalli um klassík þennan morguninn.

    20 mín.ruv.is
  • 7. mars 2025
    Ludwig van Beethoven og píanókonsertar hans

    Magnús Lyngdal sagði okkur svo frá Ludwig van Beethoven og lék brot úr píanókonsertum hans.

    22 mín.ruv.is
  • 28. febrúar 2025
    Jean Sibelius

    Og svo var það klassíkin. Magnús Lyngdal sagði okkur frá tónskáldinu finnska, Jean Sibelius, og kynnti okkur fyrir verkum hans.

    23 mín.ruv.is
  • 21. febrúar 2025
    Málmblásturshljóðfæri

    Eiginlegir strengir voru svo stroknir þegar Magnús Lyngdal fjallaði um sígilda tónlist. Að þessu sinni voru strengirnir reyndar í aukahlutverki; blásturshljóðfæri áttu sviðið í dag.

    23 mín.ruv.is
  • 7. febrúar 2025
    Franco Corelli

    Magnús Lyngdal Magnússon spilaði brot úr verkum með ítalska söngvaranum Franco Corelli, sem var bæði dáður og umdeildur, og átti mjög erfitt með að koma fram.

    22 mín.ruv.is
  • 31. janúar 2025
    Leopold Stokowski

    Magnús Lyngdal sagði okkur frá bresk-bandaríska hljómsveitarstjóranum Leopold Stokowski í spjalli um sígilda tónlist. Hann stýrði Fíladelfíu-hljómsveitinni í hátt í þrjá áratugi.

    24 mín.ruv.is
  • 24. janúar 2025
    Giacomo Puccini

    Svo var það sígilda tónlistin. Að þessu sinni lék Magnús Lyngdal fyrir okkur brot úr óperum Puccini og sagði okkur frá tónskáldinu sem kunni þá list betur en flestir að semja fallegar og grípandi laglínur.

    22 mín.ruv.is
  • 17. janúar 2025
    Anton Bruckner

    Magnús Lyngdal kynnti okkur verk Antons Bruckner, þeim má lýsa með tveimur orðum; gullfalleg og kraftmikil. En það er víst ekki sama – að mati Magnúsar - hver útsetur og flytur.

    25 mín.ruv.is
  • 10. janúar 2025
    Frédéric Chopin

    Svo var hugað að líðan. Skammdegið er mörgum erfitt. Ingrid Kuhlman sálfræðingur gaf okkur góð ráð til að líða betur - það þarf ekki að vera flókið ef vel er að gáð; og svo yljaði Magnús Lyngdal okkur með fallegri tónlist; að þessu sinni eftir Chopin.

    19 mín.ruv.is
  • 3. janúar 2025
    Píanókonsertar

    Og í síðasta hluta þáttarins lyftum við andanum. Magnús Lyngdal Magnússon kom með fallega píanókonserta með sér í dag.

    23 mín.ruv.is

2024 · 24 innslög

2023 · 1 innslag

Hlustunarminnið

Vafrinn þinn man hvað þú hefur hlustað á og hvar þú varst, svo þú getir haldið áfram. Það liggur aðeins í þessum vafra og berst okkur aldrei (persónuvernd).