Beethoven.is
Á íslensku

Magnús Lyngdal Magnússon

Sagnfræðingur og tónlistargagnrýnandi

Magnús Lyngdal Magnússon

Magnús Lyngdal Magnússon lauk prófi í sagnfræði og íslensku frá Háskóla Íslands og prófi í trompetleik frá Tónlistarskólanum á Akureyri. Hann hefur haft áhuga á klassískri tónlist og óperum frá blautu barnsbeini og hefur viðað að sér umfangsmikilli þekkingu á greininni.

Magnús hefur skrifað um sagnfræði, klassíska tónlist og óperur um langt árabil. Hann fjallar reglulega um tónlist á Morgunvakt á Rás 1, er tónlistargagnrýnandi Morgunblaðsins (í klassískri tónlist og óperu) og kennir vinsæl námskeið hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.

magnus.lyngdal@gmail.comFacebookGagnrýni og greinar í Morgunblaðinu

Útvarpsinnslög

Morgunvaktin á Rás 1

Á föstudögum ræðir Magnús um klassíska tónlist og óperur á Morgunvakt Rásar 1. Innslögin birtast hér að neðan og með tengli á ruv.is.

Morgunvaktin á ruv.is

Þáttaröð á Rás 1

Undir geislanum

Í umsjón Magnúsar · 6 þættir, 19. júlí – 23. ágúst 2026

  • 1 af 6 · 19. júlí 2026 · 40 mín.
    Upprunaskólinn og rómantík

    Túlkun í klassískri tónlist tók að breytast mikið þegar hin svonefnda upprunastefna fékk byr undir báða vængi eftir miðja 20. öld. Hún snýst um þá aðferðafræði að flytja tónlist fyrri alda því sem næst í þeim búningi sem hún hljómaði á dögum viðkomandi tónskálds. Í þættinum verður fjallað um tilurð stefnunnar og áhrif hennar. Leikin verða tóndæmi úr verkum eftir Johann Sebastian Bach, Joseph Haydn, Ludwig van Beethoven og Gustav Mahler.

  • 2 af 6 · 26. júlí 2026 · 39 mín.
    Gustav Mahler

    Gustav Mahler fæddist árið 1860 og lést aðeins fimmtugur að aldri 1911. Það hefur reynst þrautin þyngri að skilgreina hann sem tónskáld en vissulega voru verk hans rómantísk að því leyti að þau tjá djúpar tilfinningar og vekja mikil áhrif. Hins vegar teygðu þau sum þeirra sig einnig sífellt nær módernisma 20. aldar. Í þættinum verður fjallað um afmarkaða þætti úr ævi Mahlers og leikin dæmi úr verkum hans.

  • 3 af 6 · 2. ágúst 2026 · 40 mín.
    Zubin Mehta

    Indverski hljómsveitarstjórinn Zubin Mehta hefur stjórnað fremstu hljómsveitum veraldar í áratugi, jafnt í tónleikasölum sem og í óperuhúsum. Hann fæddist í Bombay (nú Mumbai) og lærði í Vínarborg en gegndi lengst af föstum stöðum í Bandaríkjunum. Mehta er afar fjölhæfur stjórnandi og vinsæll af bæði hljóðfæraleikurum og söngvurum. Þá byggði meðal annars upp Fílharmóníusveitina í Los Angeles en stjórnar enn jafnt austan hafs sem vestan. Í þættinum verður fjallað feril Mehtas og leikin dæmi úr verkum tónskálda á borð við Aaron Copland, Gustav Mahler, Dmítríj Shostakovítsj og Richard Strauss.

  • 4 af 6 · 9. ágúst 2026 · 40 mín.
    Isaac Stern

    Bandaríski fiðluleikarinn Isaac Stern og rússneski píanóleikarinn Alexander Zakin komu til Íslands árið 1955 á vegum Tónlistarfélagsins og héldu meðal annars sérstaka tónleika fyrir háskólakennara og stúdenta í hátíðarsal Háskóla Íslands. Þá lék Stern einleik með nýstofnaðri Sinfóníuhljómsveit Íslands í Þjóðleikhúsinu í fiðlukonsertinum eftir Felix Mendelssohn. Í þættinum ferðin rifjuð upp og vikið sérstaklega að blaðaumfjöllun í tengslum við hana. Leikin dæmi úr verkum tónskálda á borð við Wolfgang Amadeus Mozart, Sergej Prokofjev, Niccolò Paganini og Felix Mendelssohn.

  • 5 af 6 · 16. ágúst 2026 · 39 mín.
    Verismo í ítalskri óperu

    Á seinni hluta 19. aldar varð til það sem kallað hefur verið verismo eða raunsæi í ítölskum óperuheimi. Fyrsta ítalska verismo-óperan er jafnan talin vera Cavalleria rusticana eftir Pietro Mascagni þó svo það hafi komið í hlut Giacomos Puccini að fullkomna stílinn sem stundum er einnig nefndur „sannleiksstíll“. Í þættinum verður fjallað um tilurð raunsæis í ítalskri óperu og leikin dæmi úr verkum tónskálda á borð við Amilcare Ponchielli, Alfredo Catalani, Umberto Giordano og Francesco Cilea.

  • 6 af 6 · 23. ágúst 2026 · 40 mín.
    Leontyne Price

    Bandaríska sópransöngkonan Leontyne Price árið 1927 og hún lifir enn í hárri elli, 99 ára gömul. Hún þreytti frumraun sína á óperusviðinu í San Francisco árið 1957 en ferill hennar framan af fór mjög saman við réttindabaráttu svartra í Bandaríkjunum. Price hafði hljómmikla og en silkimjúka rödd með silfurtærri hæð og varð á örskömmum tíma ein eftirsóttasta sópransöngkona veraldar. Í þættinum verður fjallað um feril Price leikin dæmi frá löngum ferli hennar úr verkum eftir Giacomo Puccini og Giuseppe Verdi.

Útgefin verk

Bækur

Kápa bókarinnar Járnsíða og Kristinréttur Árna Þorlákssonar
SagnfræðiJárnsíða og Kristinréttur Árna ÞorlákssonarSögufélag (ásamt Haraldi Bernharðssyni og Má Jónssyni)
Kápa bókarinnar 10 dagar (í helvíti)
Frásögn10 dagar (í helvíti)Bjartur
Kápa bókarinnar Klassísk tónlist
TónlistKlassísk tónlist: Á ferðalagi um tónlistarsögunaAuðarstræti · 2024
Kápa bókarinnar Ópera
ÓperaÓpera: Á ferðalagi um sögu listformsinsAuðarstræti
Klassísk tónlist: Á ferðalagi um tónlistarsöguna (útg. 2026)
TónlistKlassísk tónlist: Á ferðalagi um tónlistarsögunaVaka-Helgafell · 2026

1927–2024

The Complete Symphonies

Umfjöllun Magnúsar um 190 heildarútgáfur á sinfóníum Beethovens á geisladiskum undir stjórn 142 stjórnenda með tímalengd hvers kafla. Vefurinn er á ensku.

Symphony Archive