Persónuvernd
Síðast uppfært . In English
Ábyrgðaraðili
Magnús Lyngdal Magnússon ritstýrir Beethoven.is og ber ábyrgð á þeim persónuupplýsingum sem unnið er með á vefnum. Fyrirspurnum má beina á magnus.lyngdal@
Hýsing
Sumarhús hýsir vefinn og rekur hann fyrir hönd ritstjórans, sem vinnsluaðili. Netþjónninn stendur í Helsinki í Finnlandi, innan EES. Cloudflare miðlar vefnum til gesta og ver hann.
Gestir
Vefurinn sjálfur setur engar vafrakökur hjá gestum. Engin rakning fer fram og hvorki auglýsinga- né greiningartól eru notuð. Ef þú skiptir milli ljóss og dökks útlits man vafrinn þinn valið sjálfur, og það berst okkur aldrei.
Hlustunarminnið
Ef þú hlustar á innslög hér man vafrinn þinn hvað þú hefur hlustað á, hvar þú varst í hverju innslagi, biðröðina, hraðann og hvort næsta innslag spilist sjálfkrafa. Þannig geturðu farið og komið aftur og haldið áfram þar sem frá var horfið.
Þetta liggur aðeins í þessum vafra, í geymslu hans (localStorage). Það er ekki vafrakaka og berst okkur aldrei. Það hverfur ef þú hreinsar vafragögnin, eða ef þú ýtir á „Gleyma hlustunarsögu“ í spilaranum eða neðst á síðunni Morgunvaktin.
Cloudflare vinnur með IP-tölur gesta til að koma vefnum til skila og verja hann, og geymir þær í skrám sínum í stuttan tíma. Netþjónninn sjálfur heldur ekki skrá yfir heimsóknir.
Cloudflare tekur auk þess saman eigin tölfræði um umferð, til dæmis frá hvaða löndum gestir koma og hvaða síður eru skoðaðar. Hún er nafnlaus og byggist ekki á vafrakökum.
Ritstjórar
Ritstjórar skrá sig inn með netfangi sínu og fá innskráningarköku sem heldur þeim innskráðum í allt að 30 daga. Í stjórnborðinu sést nafn ritstjóra við þær breytingar sem hann gerir. Boð um aðgang og hlekkir til að endurstilla lykilorð eru send frá póstþjóni Sumarhúsa.
Réttindi þín
Þú getur fengið að vita hvaða upplýsingar um þig eru unnar og fengið þær leiðréttar eða þeim eytt. Skrifaðu þá á magnus.lyngdal@