Beethoven.is
Fróðleikur · 29. maí 2025

Söngurinn var Pavarotti í blóð borinn

Þó svo að frægð sé í besta falli afstæð er óhætt að fullyrða að Pavarotti hafi verið einn kunnasti óperusöngvari allra tíma og hann gerði – ásamt Domingo og Carreras – meira til að kynna almenningi óperutónlist en nokkur annar. Þá var hann óþreytandi að leggja góðgerðarmálum lið og kom í því skyni oftsinnis fram með popptónlistarfólki. Það sætti vissulega gagnrýni í herbúðum sumra óperuunnenda en Pavarotti lét slíkt umtal aldrei á sig fá – og hann svaraði því raunar fullum hálsi.

Söngur hans beindi fleirum inn á slóðir óperunnar en dæmi eru um. Hann söng til að mynda fyrir um 150 þúsund áhorfendur í Hyde Park í Lundúnum, 300 þúsund í París og hálfa milljón í Central Park í New York en slík aðsókn á óperutónleika átti sér engin fordæmi; þá eru heldur ekki taldir með tónleikar tenóranna þriggja í Róm, Los Angeles, París og Yokohama svo einhverjir staðir séu nefndir. Enn fremur varð Pavarotti fyrsti klassíski listamaðurinn til að koma plötu á topp breska vinsældalistans og hljóðritun af tónleikum tenóranna þriggja í Los Angeles 1994 er mest selda klassíska hljóðritun allra tíma.

Þegar gagnrýnendur bentu á að tónleikar þeirra Pavarottis, Domingos og Carreras hefðu lítið listrænt gildi og einkenndust af auglýsingamennsku svaraði Pavarotti því til að þeir hefðu náð eyrum eins og hálfs milljarðs manna; meðal annarra orða, ópera til fólksins en ekki gagnrýnenda. Vísast er mikið til í þessu, enda má segja að flutningur Pavarottis á „Nessun dorma“ (úr Turandot eftir Puccini) sé nánast hverju mannsbarni kunnur, jafnvel þó svo að fjöldinn allur hafi hvorki hugmynd um eftir hvern arían sé né úr hvaða verki.

Kominn af efnalitlu fólki

Luciano Pavarotti fæddist í Modena á Ítalíu 12. október 1935 og þar lést hann eftir tiltölulega stutta en harða baráttu við krabbamein 6. september 2007, rétt rúmum mánuði fyrir 72 ára afmælisdag sinn. Hann var kominn af efnalitlu fólki en minntist æsku sinnar ávallt með hlýju. Móðir hans, Adele, starfaði hjá tóbaksframleiðanda og faðir hans, Fernando, var bakari en auk Lucianos áttu þau eina dóttur.

Söngurinn var Pavarotti í blóð borinn. Faðir hans var ágætur tenórsöngvari og mjög áhugasamur um óperutónlist en þjáðist af sviðsskrekk sem kom í veg fyrir að hann þreifaði fyrir sér sem einsöngvari. Fernando söng víða í kórum og það var einmitt í einum slíkum, Rossini Chorale, sem sonurinn steig sín fyrstu skref sem söngvari. Árið 1955 tók kórinn þátt í keppni í Wales og hlaut fyrstu verðlaun; í tenórnum sungu meðal annarra Pavarotti-feðgarnir.

Snemma varð ljóst að Pavarotti yngri bjó yfir miklum sönghæfileikum. Sjálfur hafði hann áhuga á fleiru en tónlist; hugði jafnvel á atvinnumennsku í knattspyrnu. En söngurinn varð ofan á og 1954 hóf Pavarotti, þá 19 ára gamall, formlegt söngnám; fyrst hjá Arrigo Pola en síðar hjá raddþjálfaranum Ettore Campogalliani. Til að sjá sjálfum sér farborða á námsárunum stundaði Pavarotti kennslu í grunnskóla og seldi síðar tryggingar. Foreldrar hans hvöttu hann áfram og Pavarotti hefur oft vitnað í plötusafn föður síns sem mikilvægan hlekk í söngnáminu, en þar var að finna hljóðritanir með söngvurum á borð við Caruso, Gigli, Schipa og Tagliavini. En atvinnumöguleikar söngvara voru (og eru) ótryggir og þeim feðgum varð því að samkomulagi að sonurinn fengi að reyna fyrir sér sem söngvari fram að þrítugu en ef hann hefði þá enn ekki náð fótfestu í greininni myndi hann snúa sér að öðrum störfum. Til þess kom þó ekki því 1961 hlaut Pavarotti fyrstu verðlaun í Achille Peri-keppninni fyrir unga söngvara og fyrr en varði var hann farinn að syngja í frægustu óperuhúsum heims, þar á meðal í Covent Garden 1963, Glyndebourne 1964, Scala og Vínaróperunni 1965, San Francisco 1967 og Metrópólítan-óperunni 1968.

Blómstrandi samstarf

Það var ekki síst hjónunum Joan Sutherland og Richard Bonynge að þakka að Pavarotti tókst að fóta sig í Bandaríkjunum. Fyrir tilstilli þeirra þreytti Pavarotti frumraun sína þar í landi við The Greater Miami-óperuna í Luciu di Lammermoor og þau Pavarotti og Sutherland áttu margsinnis eftir að syngja saman undir stjórn Bonynge, bæði á sviði og í hljóðritunum. Það var einna helst í bel canto-óperum sem samstarf þeirra blómstraði, í verkum á borð við Luciu di Lammermoor, La sonnambula, Ástardrykknum, I puritani og Dóttur herdeildarinnar, en á þessum árum sungu þau einnig saman í La traviata og Rigoletto svo fleiri verk séu nefnd. Annað hlutverk sem Pavarotti söng víða á þessum fyrstu árum var Rodolfo í La bohème. Í kjölfar sigursins í Achille Peri-keppninni 1961 söng hann þetta hlutverk á sýningu í Reggia nell’Emilia undir stjórn Francesco Molinari-Pradelli og hann debúteraði einnig í þessu sama hlutverki í flestum af stóru húsunum sem fyrr hafa verið nefnd, Covent Garden, Scala og Vín, San Francisco og Metrópólítan.

Þótti ekki góður leikari

Pavarotti þótti aldrei sérstaklega góður leikari og hefur vaxtarlagið ekki hjálpað til; leikstjórinn Giancarlo del Monaco líkti honum til að mynda einhvern tímann við ólífu á tannstöngli og mæltist það illa fyrir meðal aðdáenda söngvarans. Sjálfur hafði Pavarotti ákveðinn húmor fyrir vaxtarlagi sínu. Á sýningu á Toscu í Parísaróperunni 1984 varð lítið atvik sem leið söngvaranum seint úr minni. Þegar Cavaradossi hefur sætt pyntingum í 2. þætti er hann dreginn inn á skrifstofu Scarpias og látinn setjast á stól. Í þessari uppfærslu var stóllinn í minna lagi og þar að auki úr tré. Pavarotti hafði miklar efasemdir um burðarþol stólsins en leikstjórinn fullyrti að hann hefði verið hertur með stálboltum og ætti því að þola álagið vel. Þegar Tosca sér ásigkomulag Cavaradossis á hún að ganga yfir til hans og faðma, biðjandi þess að hann leysi frá skjóðunni. Generalprufan gekk eins og í sögu, en á frumsýningunni báru tilfinningarnar Toscu, í þessu tilviki þýska söngkonan Hildegard Behrens, ofurliði og í stað þess að faðma Pavarotti stökk hún beint í fangið á honum og það var meira en stóllinn þoldi. Á svipstundu breyttist hádramatískur flutningur í farsa meðan þau Tosca og Cavaradossi kútveltust á sviðinu, reynandi að komast á lappir. Stólsins mun enn vera leitað.

Söng aldrei upp fyrir sig

Pavarotti var líka fullkomlega meðvitaður um að hann væri enginn Laurence Olivier, eins og hann orðað það sjálfur, en hann þótti bæta það sem upp á leikræna tilburði vantaði með raddlegri túlkun sem fáir gátu leikið eftir.

Pavarotti hafði bjarta lýríska tenórrödd sem þróaðist í átt að „spinto“ eftir því sem árin liðu. Hann gætti þess að syngja aldrei upp fyrir sig, það er að segja hlutverk sem voru of stór fyrir röddina og þegar hann söng á útitónleikum notaði hann alltaf hljóðnema. Þannig entist röddin honum fádæma lengi og þó svo að hann hafi formlega hætt að koma fram á sýningum 2004 hugðist hann kveðja aðdáendur sína víða um heim á einsöngstónleikum en entist ekki aldur til þess.

Á sjöunda áratugnum söng Pavarotti einkum lýrísk hlutverk í óperum eftir Bellini, Donizetti, Puccini og Verdi auk Idomeneos í samnefndri óperu Mozarts. En á áttunda áratugnum bætti hann smám saman við sig spinto-hlutverkum í Verdi-óperum á borð við Un ballo in maschera, Ernani og Il trovatore. Cavaradossi í Toscu söng Pavarotti fyrst á sviði í Chicago 1977. Hann tókst enn fremur á við nokkur dramatísk tenórhlutverk, svo sem Rodolfo í Luisu Miller, Calàf í Turandot, Radames í Aidu og ekki hvað síst Otello í samnefndri óperu Verdis (sem hann söng að vísu aldrei á sviði, aðeins í konsertuppfærslu í Chicago og New York með Sir Georg Solti).

Klúðraði hlutverki á Scala

Áhorfendur áttu sérstakan stað í huga Pavarottis. Að eigin sögn lifði hann fyrir viðbrögð þeirra og meginmarkmið hans sem listamanns var að gleðja fólk. Hann tók því nærri sér ef það tókst ekki og á löngum ferli hlaut slíkt að koma fyrir. Líklega er þó atburðurinn á Scala í desember 1992 þekktasta klúðrið á ferli Pavarottis. Það var í fyrsta skipti sem áhorfendur púuðu á hann í þessu höfuðvígi óperunnar og ýmsir gagnrýnendur spáðu því í kjölfarið að ferill söngvarans væri senn á enda.

Riccardo Muti hafði boðið Pavarotti að syngja í nýrri uppfærslu á Don Carlo eftir Verdi í leikstjórn Francos Zeffirelli. Pavarotti þáði hlutverkið sem hann hafði aldrei sungið áður og hafði fjóra mánuði til að læra það. Að eigin sögn leið þessi tími hratt og þegar kom að frumsýningunni kunni söngvarinn einfaldlega ekki hlutverkið. Þetta er skýring Pavarottis á því að hann söng illa á frumsýningarkvöldinu og uppskar reiði „loggonisti“, það er þeirra sem sitja á efstu svölum Scala-óperunnar. Gagnrýnendur sögðu að Pavarotti hefði sprungið á háu tónunum en því neitaði hann ávallt staðfastlega. Í ævisögu sinni sýnir hann þeim áhorfendum sem púuðu skilning, enda um slakan undirbúning að ræða af sinni hálfu, en biturleika gætir í garð gagnrýnenda sem hann segir halla réttu máli.

Í huga flestra var Pavarotti holdgervingur óperunnar. Hann naut hylli um heim allan fyrir óeigingjarnt hjálparstarf og þreyttist aldrei á að gleðja áhorfendur sína, hvort sem var í frægustu óperuhúsum heims eða innan um tugi eða hundruð þúsunda manna á útitónleikum víða um heim. Hann gladdi meðal annars Íslendinga á Listahátíð í Laugardalshöll hinn 20. júní 1980.

Magnús Lyngdal Magnússon

Greinin birtist í Morgunblaðinu í maí 2025

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu