Beethoven.is
Gagnrýni · 29. apríl 2025

Barokk eins og það gerist best

Tónskáld
Pietro Locatelli, Pietro Castrucci, Jean-Marie Leclair, Antonio Vivaldi, Reinhard Keiser, Pietro Locatelli, Johann Sebastian Bach, Georg Friedrich Händel, Georg Philipp Telemann
Flytjendur
Xenia Löffler
Kór, hljómsveit, stjórnandi
Harpa Barokkbandið Brák, Akademie für Alte Musik Berlin

Reykjavík Early Music Festival

Barokkbandið Brák ★★★★

Akademie für Alte Musik Berlin ★★★★★

Tónlist: Opnunartónleikar: Pietro Locatelli, Pietro Castrucci, Jean-Marie Leclair og Antonio Vivaldi. Lokatónleikar: Reinhard Keiser, Pietro Locatelli, Antonio Vivaldi, Johann Sebastian Bach, Georg Friedrich Händel og Georg Philipp Telemann. Opnunartónleikar: Barrokbandið Brák. Lokatónleikar: Akademie für Alte Musik Berlin. Einleikari: Xenia Löffler. Tónleikar á Reykjavik Early Music Festival 14. apríl 2025 (opnunartónleikar) og 17. apríl 2025 (lokatónleikar) í Norðurljósum Hörpu.

Reykjavík Early Music Festival var haldin í Hörpu á dögunum í annað sinn en þetta er fyrsta alþjóðlega barokkhátiðin í Reykjavík. Hátíðin er einstakur vettvangur fyrir samstarf íslenskra og erlendra tónlistarhópa sem sérhæfa sig í upprunaflutningi barokktónlistar. Ég sá bæði upphafstónleika hátíðarinnar og svo lokatónleika en hljómsveitin var í öndvegi á hvorum tveggja tónleikunum, annars vegar Barokkbandið Brák og svo hins vegar ein þekktasta barokksveit heims, Akademie für Alte Musik Berlin. Á efnisskránni voru ítölsk, frönsk og þýsk barokkverk.

Enska hugtakið Historically Informed Performances (eða HIP) hefur verið þýtt sem „upprunastefna“. Bein þýðing væri „sögulega upplýstur flutningur“ en hitt heitið er betra og hefur raunar verið sammælst um það. Í sem stystu máli gengur stefnan (eða skólinn) út á þá aðferðafræði að flytja klassíska tónlist því sem næst í þeim búningi sem hún hljómaði á dögum viðkomandi tónskálds. Bæði Barokkbandið Brák og Akademie für Alte Musik Berlin sérhæfa sig í upprunaflutningi.

Barokkbandið Brák var stofnað fyrir tíu árum og hefur það staðið fyrir fjölda tónleika. Sveitin hefur haft að markmiði að gæða tónlist barokk- og endurreisnartímans nýju lífi ásamt því að frumflytja reglulega verk eftir íslensk samtímatónskáld. Á tónleikunum í Hörpu var sveitin skipuð alls ellefu hljóðfæraleikurum og það var Elfa Rún Kristinsdóttir sem leiddi.

Leikur sveitarinnar var almennt til fyrirmyndar. Intónasjónin (stillingin) var þó býsna tæp í fyrsta verkinu, leikhúsforleik í D-dúr eftir ítalska tónskáldið og fiðluleikarann Pietro Locatelli (1695-1764), en það lagaðist mikið strax í næsta verki, Concerto grosso í a-moll, eftir Ítalann Pietro Castrucci (1679-1752), nemanda Corellis. Mér fannst hins vegar bæði verkin eftir franska tónskáldið Jean-Marie Leclair (1697-1764), annars vegar tríósónata op. 13 og svo fiðlukonsert nr. 1 í d-moll, best fluttu verk tónleikanna. Elfa Rún Kristinsdóttir fór þannig á kostum í fiðlukonsertinum. Konsert fyrir strengi í A-dúr eftir Antonio Vivaldi (1678-1741) og Concerto grosso eftir Locatelli voru líka vel leikin og það má fullyrða að Barokkbandið Brák auðgar íslenskt tónlistarlíf.

Hljómsveitin Akademie für Alte Musik Berlin (AAM) er í hópi allra fremstu upprunasveita veraldar en hún var stofnuð árið 1982. Hún er ekki bara þekkt fyrir sögulega upplýstan flutning á tónlist frá barokktímanum, heldur líka frá klassíska tímabilinu og upphafsárum rómantíkurinnar. Tónleikar AMM á Reykjavik Early Musik Festival báru yfirskriftina „Bach og kunningjar“ en þar var flutt tónlist eftir tónskáld sem höfðu áhrif á Johann Sebastian Bach, svo sem Georg Philipp Telemann, Antonio Vivaldi og Pietro Locatelli, auk Georgs Friderichs Händel og Reinhards Keiser.

Það var greinilegt af upphafstónum forleiks að óperunni Der Lächerliche Prinz Jodelet eftir þýska tónskáldið Reinhard Keiser (1674-1739) að samleikur AMM er eiginlega engu líkur. Það er ekki bara fullkomin intónasjón og snerpa sem einkenna leik hljómsveitarinnar, heldur er stjórn hennar á styrkleikabreytingum með því allra besta sem ég hef heyrt (pianississimo-leikur sveitarinnar var ótrúlegur). Það skipti litlu máli hvaða verk á efnisskránni um ræðir, það var músík í öllu. Það sýndi líka styrkleika sveitarinnar að fiðluleikarar hennar skiptust á að leiða, þar á meðal Elfa Rún Kristinsdóttir sem leiddi sveitina í bæði flutningi á konsert fyrir óbó og strengi í g-moll eftir Johann Sebastian Bach (1685-1750), sem flestir þekkja í útgáfunni fyrir sembal (þá í f-moll), og lék svo einleikspartinn í konsert fyrir fiðlu, óbó og strengi í c-moll eftir sama tónskáld. Þýski óbóleikarinn Xenia Löffler lék einleik í báðum verkum og það var unun að hlusta á nánast alveg víbratólausan tón hennar svífa yfir öllu.

Til þess að gera langa sögu stutta voru tónleikar AAM kennslustund í barokkleik eins og hann gerist bestur. Þá á ég ekki einungis við atriði á borð við dýnamík og snerpu, heldur voru allar fraseringar fullkomlega sannfærandi. Það var músík í öllu sem hljóðfæraleikararnir gerðu. Það á þó ekki síst við um eftirminnilegan flutning á forleikssvítunni „Buresque de Quixotte“ fyrir strengi og fylgirödd eftir Georg Philipp Telemann (1681-1767) en það var líka gaman að sjá nemendur úr Menntaskólanum í tónlist fá tækifæri til að leika Concerto grosso í B-dúr eftir Georg Friedrich Händel (1685-1759) með AAM sem var auðvitað einstakt fyrir nemendurna að fá að taka þátt í.

Tónleikar AAM á Reykjavík Early Music Festival eru bestu barokktónleikar sem ég hef verið á, bæði hér heima og erlendis, og sveitinni var vel tekið í Norðurljósasal Hörpu á skírdag. Hún var enda klöppuð margsinnis upp og lék sem aukalag brot úr kantötu eftir Bach, „Himmelskönig, sei willkommen“ (BWV 182), samin fyrir páska í Weimar árið 1714, ákaflega vel.

Magnús Lyngdal Magnússon

Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í apríl 2025

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu