Beethoven.is
Gagnrýni · 22. apríl 2025

Mestmegnis „góðar“ draumfarir

Tónskáld
Arnold Schönberg, Alban Berg, Hector Berlioz
Flytjendur
Reiner Honeck
Kór, hljómsveit, stjórnandi
Sinfóníuhljómsveit Íslands, Bertrand de Billy

Draumórasinfónían

Schönberg og Berg ★★★★★

Berlioz ★★★★

Tónlist: Arnold Schönberg (Næturljóð fyrir strengi og hörpu), Alban Berg (Fiðlukonsert) og Hector Berlioz (Symphonie fantastique). Einleikari: Reiner Honeck. Sinfóníuhljómsveit Íslands. Konsertmeistari: Sigrún Eðvaldsdóttir. Hljómsveitarstjóri: Bertrand de Billy. Áskriftartónleikar fimmtudaginn 10. apríl 2025.

Þeir hófust á giska fallegu verki, áskriftartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands fimmtudagskvöldið 10. apríl, þegar hljómsveitin lék stutt næturljóð fyrir strengi og hörpu eftir Arnold Schönberg (1874-1951). Verkið var frumflutt í Vínarborg árið 1896, það er að segja þegar Schönberg var liðlega tvítugur. Hann var innfæddur Vínarbúi, kominn af efnalitlu fólki og reyndist því ekki unnt að senda hann í tónlistarskóla. Hann var því að mestu sjálfmenntaður og kenndi meðal annars sjálfum sér að leika á selló. Hins vegar sótti hann tíma í tónsmíðum hjá Alexander von Zemlinsky um skeið og lærði þar meðal annars undirstöðuatriði í kontrapunkti. Síðar gekk Schönberg að eiga systur Zemlinskys. Æskuverk Schönbergs bera mikil einkenni bæði Brahms og Wagners og það gildir einmitt um næturljóðið, ákaflega hugljúft verk sem tónskáldið samdi áður en hann þróaði tónsmíðaaðferð sem nefnist tólftónaháttur. Þetta stutta verk var vel flutt af Sinfóníuhljómsveit Íslands, með leik þeirra Sigrúnar Eðvaldsdóttur og Katie Buckley í forgrunni.

Alban Berg (1885-1935) var nemandi Schönbergs frá árinu 1904 og það er stundum haft á orði að verkin sem hann samdi undir tólftónahætti séu tilfinningaríkari en verk lærimeistarans. Hvað sem kann að vera til í því má fullyrða að fiðlukonsertinn frá árinu 1935 sé tilfinningarík tónsmíð. Þetta er jafnframt síðasta verkið sem Berg lauk við, samið fyrir rússnesk-bandaríska fiðluleikarann Louis Krasner og frumflutt í Barcelona árið 1936. Verkið ber undirtitilinn „Til minningar um engil“ en konsertinn samdi Berg í minningu Manon Gropius, dóttur Ölmu Mahler og Walters Gropius. Hún lést úr lömunarveiki árið 1935, þá 18 ára gömul.

Konsertinn er í tveimur köflum sem hvor um sig skiptist í tvo undirkafla. Það var Reiner Honeck, fyrsti konsertmeistari Vínarfílharmóníunnar, sem var í einleikshlutverkinu og skilaði því einkar vel. Silfurtær tónninn barst vel, að minnsta kosti þar sem ég sat á fyrstu svölum, og það var unun að heyra hvernig Honeck fraseraði. Leikur hans var eilítið til baka í upphafi, rétt eins og raddskrá Bergs gefur til kynna, en líka kraftmikill á köflum. Þetta er kannski ekki tæknilega séð erfiðasti konsertinn í fiðlutónbókmenntunum en að sama skapi er verkið mjög snúið þegar kemur að því að láta það hljóma sannfærandi og það gerði Honeck. Leikur Sinfóníuhljómveitar Íslands var líka góður undir stjórn Bertrands de Billys og jafnvægið milli hljómsveitar og sólista gott.

Efir hlé var svo Draumórasinfónían eftir Hector Berlioz á (1803-1867) á efnisskránni. Verkið þekkir Sinfóníuhljómsveit Íslands vel og hefur leikið það hátt í tuttugu sinnum í 75 ára sögu sinni.

Það er stundum erfitt að trúa því að einungis sex ár hafi liðið frá frumflutningi á níundu sinfóníu Beethovens og þessu frægasta verki Berlioz. Rómantíkinni fylgdu auðvitað breytingar og vissulega varð tónlistin öll innhverfari og þannig látin tjá innstu sálarkima. Þannig lagað séð olli þessi prógrammsinfónía franska tónskáldsins straumhvörfum, samin í tilefni af óendurgoldinni ást hans á írsku leikkonunni Harriet Smithson.

Symphonie Fantastique er í fimm þáttum, býsna ólíkum en þó gengur þrástef í gegnum allt verkið sem skýtur upp kollinum hér og þar. Það er býsna lífseig mýta að samlandar viðkomandi tónskálds séu alltaf bestu túlkendur hverju sinni, þannig túlki til að mynda franskir hljómsveitarstjórar Berlioz best, finnskir hljómsveitarstjórar séu fremstir meðal jafningja í túlkun á verkum Sibeliusar, rússneskir stjórnendur séu bestir í Tsjajkovskíj og þar fram eftir götunum. Þetta hefur margsinnis verið afsannað. Hins vegar má alveg segja að Berlioz liggi að mörgu leyti betur fyrir franska hljómsveitarstjóranum Bertrand de Billy en til að mynda Brahms (sem hann hefur verið að stjórna í Hörpu á undanförum árum). Verk Berlioz þola þannig ívið „klínískari“ túlkun en ef frá er talinn annar þátturinn í Draumórasinfóníunni („Dansleikur“) var sýn Bertrands de Billys býsna „köld“ og tilfinningasnauð. Ekki misskilja mig, það var alveg músík í þessu hjá honum en á köflum bar áherslan á fínleika heildarmyndina ofurliði. Kannski tókst honum best upp í fjórða þættinum („Gangan að fallöxinni“) en það vantaði á köflum grófleika í „Nornadansinn“ (fimmti þáttur). Þessi tónlist á bara alls ekki að hljóma „fallega“ en það var á köflum eins og Bertrand de Billy væri að jafna út mestu öfgarnar í verkinu. Það sama má segja um Dies irae-stefið; það hefði mátt vera leikið með örlítið grófari hætti. Kostirnir við túlkun af þessu tagi eru hins vegar þeir að jafnvægið milli til að mynda strengja og blásara var gott og einstaka hljóðfærahópum var aldrei drekkt.

Sinfóníuhljómsveit Íslands lék vel á tónleikunum, bæði fyrir og eftir hlé. Það er greinilegt að í hljómsveitinni er borin virðing fyrir Bertrand de Billy og það skilaði sér ágætlega út í sal.

Magnús Lyngdal Magnússon

Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í apríl 2025

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu