„Snillingur, þjáður, þunglyndur og dáður“
- Tónskáld
- Friðrik Margrétar-Guðmundsson
- Flytjendur
- Áslákur Ingvarsson, Björk Níelsdóttir, Hanna Dóra Sturludóttir, Ólafur Freyr Birkisson, Margrét Björk Daðadóttir, Unnsteinn Árnason, Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir, Vera Hjördís Matsdóttir, Þórhallur Auður Helgason
- Kór, hljómsveit, stjórnandi
- Kammersveit
Brím
★★★★
Tónlist: Friðrik Margrétar-Guðmundsson. Librettó og leikstjórn: Adolf Smári Unnarsson. Tónlistarstjóri: Sævar Helgi Jóhannsson. Leikmynd og búningar: Auður Ösp Guðmundsdóttir. Lýsing: Magnús Thorlacius. Myndbönd og tæknilegar útfærslur: Fjölnir Gíslason. Hljómsveit: Gunnhildur Einarsdóttir (harpa), Matthias Engler (slagverk), Símon Karl Sigurðarsson Melsteð (bassaklarínett) og Sævar Helgi Jóhannsson (píanó). Söngvarar: Áslákur Ingvarsson, Björk Níelsdóttir, Hanna Dóra Sturludóttir, Ólafur Freyr Birkisson, Margrét Björk Daðadóttir, Unnsteinn Árnason, Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir, Vera Hjördís Matsdóttir og Þórhallur Auður Helgason. Frumsýning í Tjarnarbíói fimmtudaginn 13. mars 2025 en hér birtist rýni á sýningu föstudaginn 11. apríl 2025.
Á tæplega einu ári hef ég séð þrjár nýjar íslenskar óperur: Óperan hundrað þúsund eftir Þórunni Grétu Sigurðardóttur, Hliðarspor eftir Þórunni Guðmundsdóttur og nú síðast Brím eftir Friðrik Margrétar-Guðmundsson við texta Adolfs Smára Unnarssonar sem sýnd er í Tjarnarbíói. Ég held að þetta hljóti að vera einhvers konar met og sýnir gróskuna í óperuheiminum hér á landi, þrátt fyrir að starfsemi Íslensku óperunnar hafi meira og minna legið niðri frá 2023 og á Alþingi sé enn rætt um mögulega stofnun þjóðaróperu. Þá eru enn ótaldar bráðskemmtilegar sýningar sviðslistahópsins Óðs á undanförnum misserum og uppfærsla Kammeróperunnar á Brúðkaupi Fígarós á dögunum (upptalningin er sjálfsagt ekki tæmandi). Það þarf ekki að fara í launkofa með að grasrótin hvað óperur snertir er sterk og á henni þarf að byggja.
Brím er önnur óperan sem þeir Friðrik Margrétar-Guðmundsson og Adolf Smári Unnarsson semja saman en Ekkert er sorglegra en manneskjan var frumsýnd árið 2020. Viðfangsefnið í Brím er ódauðleg list, auðvald og nepótismi. Sagan umhverfist um Nínu Brím, sem eftir útskrift úr virtum listaháskóla í Amsterdam, fær boð um að halda einkasýningu í þekktu galleríi heima á Íslandi. Nína er einkadóttir Karls heitins Brím, eins þekktasta listamanns þjóðarinnar frá seinni hluta 20. aldarinnar, en strax eftir opnunina renna á hana tvær grímur; hvað felst í hrifningu samlanda hennar á listaverkunum? Hvað er til sýnis og handa hverjum?
Tónlist Friðriks Margrétar-Guðmundssonar er mínimalísk; byggð upp á endurtekningum á tiltölulega þröngu raddsviði söngvaranna (með undantekningum þó) og texti Adolfs Smára Unnarssonar er bæði snjall og bráðfyndinn á köflum. Textaframburður var líka skýr á sýningunni sem ég sá í Tjarnarbíói.
Brím var líka að mestu leyti vel sungin og vil ég þar sérstaklega nefna þær Þórgunni Önnu Örnólfsdóttur (Nína Brím), Björk Níelsdóttur (Margrét) og Hönnu Dóru Sturludóttur (Hrafnhildur). Raddlega séð er verkið líka vel samið (það er „auðsungið“) og söngvararnir skiluðu hlutverkum sínum líka vel hvað leik varðar (sérstaklega Björk Níelsdóttir, en hlutverk hennar er kannski eina tengingin við raunveruleikann í verkinu).
Hljóðfæraskipan var líka nýstárleg: Kvartett skipaður píanói, hörpu, bassaklarínetti og slagverki en mér fannst útfærslan býsna sannfærandi og frumleg.
Salurinn í Tjarnarbíói er ekki stór en það var gert mikið úr litlu. Þannig voru veggir gallerísins (hvítir flekar) nýttir undir vídeólist, svo að segja „beina útsendingu“ frá atburðum verksins. Kannski fór helst til of mikið fyrir þessu á köflum en bagalegt var að stundum fór ekki saman hljóð og mynd. Annað var mínimalískt og einfalt (í takt við tónlistina), þar með taldir búningar, og verkið þannig látið tala fyrir sig sjálft.
Þessar þrjár óperur sem ég nefni hér að ofan, Óperan hundrað þúsund, Hliðarspor og Brím, eru býsna ólík verk. Hvað samtímatónlist varðar gera hins vegar öll tónskáldin þrjú vel í að takast á við óperuformið. Allar fréttir af andláti þess eru mjög ótímabærar.
Bæði flutningur og hljóðritun á samtímatónlist er gríðarlega mikilvægur þáttur í listalífi sjálfstæðra þjóða. Það er alkunna að tíminn er fljótur að líða og þessi tónlist verður orðin klassísk áður en við náum að depla auga.
Magnús Lyngdal Magnússon
Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í apríl 2025