Af hjartaprýði Ólafs Kjartans
- Tónskáld
- Gioacchino Rossini, Jacques Offenbach, Giacomo Puccini, Giuseppe Verdi, Antonín Dvořák, Georges Bizet, Carl Zeller, Wolfgang Amadeus Mozart, Ludwig van Beethoven
- Flytjendur
- Kristín Anna Guðmundsdóttir, Kristín Sveinsdóttir, Gunnar Björn Jónsson, Ólafur Kjartan Sigurðarson
- Kór, hljómsveit, stjórnandi
- Kór Langholtskirkju, Mótettukórinn, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Bjarni Frímann Bjarnason
Óperuveisla með Ólafi Kjartani og gestum
★★★★½
Tónlist: Gioacchino Rossini, Jacques Offenbach, Giacomo Puccini, Giuseppe Verdi, Antonín Dvořák, Georges Bizet, Carl Zeller, Wolfgang Amadeus Mozart og Ludwig van Beethoven. Einsöngvarar: Kristín Anna Guðmundsdóttir (sópran), Kristín Sveinsdóttir (mezzósópran), Gunnar Björn Jónsson (tenór) og Ólafur Kjartan Sigurðarson (barítón). Kórar: Kór Langholtskirkju og Mótettukórinn (Magnús Ragnarsson og Stefan Sand, kórstjórar). Sinfóníuhljómsveit Íslands. Konsertmeistari: Sigrún Eðvaldsdóttir. Hljómsveitarstjóri: Bjarni Frímann Bjarnason. Tvíteknir tónleikar í Eldborg Hörpu fimmtudag og föstudag 3. og 4. apríl 2025. Rýni á fyrri tónleikum.
Frá því að Rico Saccani lét af störfum sem aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands árið 1998 hefur óperan látið verulega undan síga á efnisskrá hljómsveitarinnar og segja má að konsertuppfærslur á óperum heyri til undantekninga. Það er miður, sérstaklega í ljósi þess að Íslenska óperan hefur ekki fært upp sýningar síðustu misserin og frumvarp um stofnun þjóðaróperu hefur enn ekki náð fram að ganga á Alþingi (er þó í meðförum yfirstandandi þings). Óperuforminu hefur því einkum verið sinnt af grasrótinni hér á landi á síðustu árum (með örfáum undantekningum). Það var því tilhlökkunarefni að Sinfóníuhljómsveit Íslands kynnti barítónsöngvarann Ólaf Kjartan Sigurðarson til sögunnar sem staðarlistamann hljómsveitarinnar starfsárið 2024-2025 og ekki hefur hann valdið tónleikagestum vonbrigðum, ekki síst þeim sem hallir eru undir óperuflutning og söng almennt.
Eftir vel heppnaða Wagner-tónleika í upphafi starfsársins blésu Ólafur Kjartan og Sinfóníuhljómsveit Íslands til sannkallaðrar óperuveislu í byrjun apríl, að þessu sinni með ungum söngvurum á gestalistanum. Efnisskráin var giska fjölbreytt og sett saman af þeim Ólafi Kjartani og hljómsveitarstjóranum Bjarna Frímanni Bjarnasyni af bæði þekkingu og hugviti. Ég vil taka það fram í upphafi að leikur Sinfóníuhljómsveitar Íslands í forleikjum Rakarans í Sevilla (Rossini) og Valdi örlaganna (Verdi) auk milliþáttaspilsins úr Manon Lescaut (Puccini) var með því besta sem ég hef heyrt hjá hljómsveitinni. Dýnamísk og vel mótuð túlkun Bjarna Frímanns var framúrskarandi þar sem hver einn og einasti hljóðfæraleikari var á tánum. Þannig skiluðu smáatriði raddskránna sér einkar vel en þó aldrei á kostnað heildarinnar, sem hljómaði sannfærandi.
Eldborg Hörpu er ekki auðveldur salur fyrir söngvara. Þar berast raddir misvel en vísast fer það eftir því hvar setið er í salnum hversu vel þær skila sér. Raddstærðin skiptir líka máli eins og heyra mátti á tónleikunum. Þær Kristín Anna Guðmundsdóttir og Kristín Sveinsdóttir sungu dúettinn fræga úr Ævintýrum Hoffmanns (Offenbach) vel en bæði þar og í „Söngnum til mánans“ úr Rúsölku (Dvorák) sem Kristín Anna söng bar helst á því að salurinn gleypti raddirnar. Hins vegar skilaði mjúk rödd Gunnars Björns Jónssonar sér vel í aríu Rodolfos úr La bohème, „Che gelida manina“ (Puccini). Arían var ákaflega vel sungin og háa c-ið steinlá hjá Gunnari Birni, algjörlega áreynslulaust.
Þó svo að „L'onore! Ladri!“ úr síðustu óperu Verdis, Falstaff, hafi verið flestum áheyrendum tónleikanna ókunn má segja að þeir hafi á sama tíma étið úr lófa Ólafs Kjartans, sem ekki bara söng vel, heldur lék titilhlutverkið fantavel og ekki var aría nautabanans úr Carmen (Bizet) síðri. Það sama má segja um frammistöðu Kristínar í titilhlutverkinu úr Carmen; hún átti sviðið og hreif áhorfendur með sér upp úr skónum.
Eftir hlé var söngur fjórmenninganna í kvartettinum úr þriðja þætti Rigoletto (Verdi) ljómandi fínn og það var ekki síst áhrifaríkt að heyra rödd Kristínar Önnu í hlutverki Gildu svífa yfir. Kór Langholtskirkju og Mótettukórinn, sem höfðu tekið ívið varlega undir í Carmen, sungu „Va, pensiero“ úr Nabucco (Verdi) vel áður en þau Kristín Anna og Gunnar Björn fluttu „Schenkt man sich Rosen in Tirol“ úr Fuglasalanum (Zeller), eina óperuettuatriðið sem hljómaði á tónleikunum.
Ólafur Kjartan og Bjarni Frímann brugðu skemmtilega á leik í „Deh, vieni alla finestra“ úr Don Giovanni (Mozart) áður en fjórmenningarnir fluttu svo „Mir ist so Wunderbar“, kvartettinn úr fyrsta þættinum úr Fidelio (Beethoven), glæsilega. Túlkunin á stuttum hljómsveitarinngangi hans er vitnisburður um hve snjall hljómsveitarstjóri Bjarni Frímann er. Margir sem stjórna þessu meistaraverki Beethovens eiga það til að flýta þessum inngangi um of en Bjarni Frímann leyfði sér einmitt að draga seiminn, þannig að pizzicato-ið (plokkið) varð fullkomlega afslappað.
Formlegri efnisskrá lauk svo á blálokum síðustu óperu Rossinis, Vilhjálms Tell. Gullfallegt frelsisstefið hljómaði aftur afslappað en ég hefði bara viljað heyra aðeins meira af lokum óperunnar; þannig hefði hið víðfræga Rossini-crescendo ef til vill orðið enn áhrifameira. Að lokinni formlegri efnisskrá var brugðið á leik í aukalagi sem kom engum á óvart, drykkjusöngnum úr fyrsta þætti La traviata (Verdi) og fyrir mitt leyti má gjarnan fara að skipta því út fyrir annað aukalag. Það var hins vegar ekkert að flutningnum.
Þetta var sannkölluð óperuveisla en það að velja með sér unga söngvara segir mikið um hjartaprýði Ólafs Kjartans, það er að segja í stað þess að syngja sjálfur alla tónleikana. Kristín Anna Guðmundsdóttir, Kristín Sveinsdóttir og Gunnar Björn Jónsson svöruðu kalli Ólafs Kjartans enda vel og það sama gerði Bjarni Frímann Bjarnason.
Að lokum hvet ég Sinfóníuhljómsveit Íslands til þess að hefja reglulegan flutning á óperum í konsertuppfærslum (ein konsertuppfærsla á hverju starfsári). Barbara Hannigan stjórnaði og söng Mannsröddina (Poulenc) í fyrra á eftirminnilegum tónleikum og það styrkir hljómsveitina að leika óperutónlist. Ég get meira að segja hjálpað örlítið til með því að koma með uppástungur að verkum: La bohème, Tosca, Aida og Lohengrin. Ég myndi leggja aleiguna undir húsfylli!
Magnús Lyngdal Magnússon
Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í apríl 2025