Beethoven.is
Gagnrýni · 21. mars 2025

Tímamót hjá Kammermúsíkklúbbnum

Tónskáld
Ludwig van Beethoven, Úlfar Ingi Haraldsson, Una Sveinbjarnardóttir, Dmítríj Shostakovítsj
Flytjendur
Strokkvartettinn Siggi

Kammermúsíkklúbburinn

★★★★

Tónlist: Ludwig van Beethoven (strengjakvartett nr. 10 í Es-dúr op. 74), Úlfar Ingi Haraldsson („Andstæður/Contrasts“ – Frumflutningur), Una Sveinbjarnardóttir („Sjókort“ – strengjakvartett nr. 2) og Dmítríj Shostakovítsj (Strengjakvartett nr. 8 í c-moll op. 110). Strokkvartettinn Siggi. Hljóðfæraleikarar: Una Sveinbjarnardóttir (fiðla), Helga Þóra Björgvinsdóttir (fiðla), Þórunn Ósk Marinósdóttir (víóla) og Sigurður Bjarki Gunnarsson (selló). Tónleikar í Norðurljósum Hörpu sunnudaginn 9. mars 2025.

Strengjakonsertsformið er afar vandmeðfarið að því leytinu til að samhljómurinn (intónasjón) er svo ofboðslega viðkvæmur. Það tekur því kvartetta yfirleitt mörg ár að finna jafnvægið milli radda og marka þannig sinn eigin hljóm. Strokkvartettinn Siggi hefur starfað í tæpan hálfan annan áratug en hann var stofnaður árið 2012, þá í tengslum við Ung Nordisk Musik-hátíðina. Kvartettinn hefur á takteinum bæði hefðbundin verk og samtímatónlist og hefur í því augnamiði unnið að nýsköpun tónlistar í nánu samstarfi við samtímatónskáld og listamenn. Strokkvartettinn Siggi hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem flytjandi ársins árið 2018 og það má með sanni segja að hann búi nú yfir sjálfstæðum hljómi, vel balanseruðum og hárfínum en líka kraftmiklum þegar tónlistin kallar á slíkt.

Það voru tvö risaverk sem römmuðu inn íslenska samtímatónlist á efnisskrá síðustu tónleika Kammermúsíkklúbbsins starfsárið 2024-2025. Þannig hljómuðu Ludwig van Beethoven (1770-1827) og Dmitríj Shostakovítsj (1906-1975) í upphafi og enda tónleikanna, milli þess sem tónleikagestir í þétt setnum Norðurljósasal Hörpu hlýddu á ný verk eftir Úlfar Inga Haraldsson (f. 1966) og Unu Sveinbjarnardóttur (f. 1975).

Af mið-kvartettum Beethovens hefur op. 74 hlotið nafnið „Hörpukvartettinn“ í ljósi pizzicato-stefs fyrsta þáttar, það er að segja stef sem hljóðfæraleikarar plokka í stað þess að leika með boganum. Hljómurinn hjá Strokkvartettinum Sigga var giska mjúkur allt frá upphafi fyrsta þáttar (Poco adagio – allegro) en næmninni fylgdi eftir sem áður skýr tilfinning fyrir rytmískum blæbrigðum. Spilamennskan í fallega mótuðum öðrum þættinum (Adagio non troppo) var líka næm á meðan ákafi einkenndi túlkun þess þriðja (Presto). Eins fallega og fjórði þátturinn (Allegretto con variazioni) hljómaði skorti á stöku stað upp á hreinleika í spilamennskunni, það er að segja intónasjón var ekki alltaf upp á tíu.

Andstæður/Contrast eftir Úlfar Inga Haraldsson hljómuðu vel. Þetta er samsafn þriggja stuttra þátta fyrir strengjakvartett sem geta einnig staðið sjálfstætt en hver um sig. Þættirnir einkennast allir af innri andstæðum, bæði hvað varðar til að mynda mótíf og blæbrigði í styrkleika. Um frumflutning var að ræða og tókst hann vel. Leikur Strokkvartettsins Sigga var þannig bæði ljóðrænn og dramatískur. Af köflunum þremur fannst mér bæði þrástef annars þáttar (Tranquillo – Dramatico) sem og ákaflega sannfærandi lýrík þriðja þáttar (Sostenuto – Ritmico) standa upp úr.

Sjókorti – strengjakvartett nr. 2 eftir Unu Sveinbjarnardóttur var að einhverju leyti ætlað að fanga ferðalag Stokkkvartettsins Sigga í þeirri vegferð að marka sér sinn eigin hljóm. Vissulega má segja að sú vegferð hafi skilað árangri en verk Unu er að mörgu leyti lágstemmt. Kannski var undurblítt (unison) upphaf fyrsta þáttar (Adagio) lognið á undan storminum því smám saman þykknaði upp í öðrum þætti (Impossible), án þess þó að stórviðri gengi nokkurn tímann yfir. Naumhyggja einkenndi þriðja þáttinn (Huliðshjálmur) á meðan einleiksstef gekk í gegnum þann fjórða (Anti-impossible) sem skaut fyrst upp kollinum af krafti með leik Þórunnar Óskar Marinósdóttur á lágfiðluna.

Stundum hefur verið deilt um hvort og þá hversu miklar breytingar má heyra á verkum Shostakovítsjs eftir því sem árin liðu. Kannski má segja að eftir dauða Stalíns (1953) hafi verk hans að einhverju leyti orðið dimmari og torskildari, einkum um og eftir 1960. Shostakovítsj samdi einmitt áttunda strengjakvartettinn árið 1960 og þá á aðeins þremur dögum. Kennistef tónskáldsins, DSCH
(D Es C H), gengur sem eins konar leiðarstef í gegnum verkið.

Af fimmtán strengjakvartettum Shostakovítsjs er sá áttundi mest fluttur. Þetta er átakanleg tónsmíð, meðal annars tileinkuð fórnarlömbum seinna stríðs, samin á meðan tónskáldið dvaldi um hríð í Dresden sem þá var enn rústir einar eftir loftárásir Bandamanna. Á sama tíma leið tónskáldið vítiskvalir sökum ofsókna stjórnvalda í Sovétríkjunum og það má slá því föstu að angistin sem birtist í áttunda kvartettinum dragi taum af sálarástandi hans á þeim tíma.

Mér fannst leikur Strokkvartettsins Sigga nokkuð misjafn í þessum einum stórbrotnasta strengjakvartett tónlistarsögunar. Fyrsti þátturinn (Largo) var þannig of mikið til baka og það vantaði „bit“ eða grófleika í túlkun annars þáttar (Allegro molto). Hins vegar skilaði kaldhæðni þriðja þáttarins (Allegretto) sér vel. Snerpan var flott í fjórða þættinum (Largo) en til að gera langa sögu stutta óx túlkuninni ásmegin frá fyrsta þætti og fram í þann fimmta (Largo). Almennt séð skilaði írónía verksins sér hins vegar betur en illskan.

Tónleikarnir í Hörpu mörkuðu tímamót í sögu Kammermúsíkklúbbins en þeir voru þeir síðustu sem skipulagðir voru af fráfarandi stjórn. Fráfarandi stjórnarmenn hafa sumir fylgt klúbbnum um áratugaskeið og er vert að þakka fyrir bæði dugnað og elju við að halda úti vettvangi fyrir kammertónlist, oft við erfiðar aðstæður fjárhagslega.

Það skiptir veigamiklu máli fyrir tónlistarfólk að geta leikið kammertónlist og ég fullyrði að það sé nauðsynlegur hluti á þroskagöngu sérhvers hljóðfæraleikara; fá þannig tækifæri til þess að vera ábyrgur fyrir eigin parti og þó ekki síst að læra listina að hlusta og mynda þannig jafnvægi og ástunda öndun sem hlýtur að einkenna framúrskarandi tónlistarflutning.

Magnús Lyngdal Magnússon

Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í mars 2025

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu