Beethoven.is
Gagnrýni · 27. febrúar 2025

Gullmoli í Gamla bíói

Tónskáld
Þórunn Guðmundsdóttir
Flytjendur
Gunnlaugur Bjarnason, Björk Níelsdóttir, Þórhallur Auður Helgason, Guðrún Brjánsdóttir, Erla Dóra Vogel, María Konráðsdóttir, Halldóra Ósk Helgadóttir, Hafsteinn Þórólfsson, Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir, Karl Friðrik Hjaltason, Sigrún Hedda Benedikz, Davíð Ólafsson, Vera Hjördís Matsdóttir, Tinna Þorvalds Önnudóttir, Dagbjört Ósk Jóhannsdóttir, Elín Bryndís Snorradóttir, Emilie Anne Jóhannsdóttir Salvesen, Halldóra Ósk Helgadóttir, Ninna Karla Katrínar, Þórunn Guðmundsdóttir
Kór, hljómsveit, stjórnandi
Kammersveit, Sólveig Sigurðardóttir

Hliðarspor

★★★★★

Tónlist: Þórunn Guðmundsdóttir. Texti: Þórunn Guðmundsdóttir, byggður á leikriti Beaumarchais, La mère coupable. Leikstjórn sem og dans og sviðshreyfingar: Ágústa Skúladóttir. Búningar- og leikmynd: Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir. Búningar og leikmunir: Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir og Sólrún Hedda Benedikz. Lýsing: Jóhann Friðrik Ágústsson. Söngvarar: Gunnlaugur Bjarnason (Fils Caron/Beaumarchais/Raffaello Fígaró), Björk Níelsdóttir (Maria Theresa/Súsanna), Þórhallur Auður Helgason (Lindoro Almaviva greifi), Guðrún Brjánsdóttir (Rósína Almaviva greifynja), Erla Dóra Vogel (Leon), María Konráðsdóttir (Florestine), Halldóra Ósk Helgadóttir (Annina), Hafsteinn Þórólfsson (Kristófer Krapp), Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir (Karólína Krapp), Karl Friðrik Hjaltason (Vilhjálmur), Sigrún Hedda Benedikz (Marcellina), Davíð Ólafsson (Bartolo), Vera Hjördís Matsdóttir (Barbarina), Tinna Þorvalds Önnudóttir (Cherubino), Dagbjört Ósk Jóhannsdóttir, Elín Bryndís Snorradóttir, Emilie Anne Jóhannsdóttir Salvesen, Halldóra Ósk Helgadóttir, Ninna Karla Katrínar, Þórunn Guðmundsdóttir (ástkonur greifans). Hljómsveitarútsetning: Hrafnkell Orri Egilsson. Tíu manna hljómsveit. Konsertmeistari: Gróa Margrét Valdimarsdóttir. Hljómsveitarstjóri: Sólveig Sigurðardóttir. Frumsýnt í Gamla bíói 6. febrúar 2025, en rýnt í sýninguna 23. febrúar 2025.

Ég vissi satt best að segja hverju ég átti von á þegar ég gekk inn í Gamla bíó á sunnudaginn var en sýningin á Hliðarspori, nýrri íslenski óperu eftir Þórunni Guðmundsdóttur, kom mér sannarlega á óvart. Þetta var hreint út sagt frábær sýning í alla staði og gildir þá einu hvar ber niður.

Hliðarspor er ópera í fullri lengd, samin við framhaldið af Rakaranum í Sevilla og Brúðkaupi Fígarós og byggist þannig á þriðja leikritinu í þríleik Beaumarchais, sem fjallar um Fígaró, Almaviva greifa og fólk sem tengist þeim. Sagan gerist um það bil tuttugu árum eftir að Brúðkaupi Fígarós lýkur. Söguþráðurinn kann við fyrstu sýn að vera býsna flókinn en verkið lifnar við á sviðinu, ekki síst fyrir tilstilli frábærlega saminnar og grípandi tónlistar Þórunnar Guðmundsdóttur.

Hlutverkin eru alls tólf auk kórs sem gegnir veigamiklu hlutverki á sviðinu og á stóran þátt í að segja söguna en verkið er þannig samið að hvert hlutverk skilar sínu vel og það er engu ofaukið. Hópatriðin voru glæsileg og ákaflega vel raddsett og það á einnig við um einsöngshlutverkin; allt lá vel við og rann þægilega.

Til að gera langa sögu stutta var sýningin mjög vel sungin og það er erfitt og raunar óparfi að gera upp á milli söngvara. Vil samt nefna að Gunnlaugur Bjarnason (Fils Caron/Beaumarchais/Raffaello Fígaró) og Björk Níelsdóttir (Maria Theresa/Súsanna) voru frábær og það voru líka hinn lánlausi greifi, Þórhallur Auður Helgason (Lindoro Almaviva greifi), og hinn lævísi Hafsteinn Þórólfsson (Kristófer Krapp). Ekki voru Erla Dóra Vogel (Leon) og María Konráðsdóttir (Florestine) síðri. Fleiri mætti telja upp að ósekju. Textaframburður var eins og best verður á kosið og raddirnar skiluðu sér vel; kannski ekki stórar en hljómuðu vel í salnum.

Leikstjórn Ágústu Skúladóttur var snjöll. Það var mikið gert úr litlu og sviðshreyfingar voru sannfærandi. Uppfærslan var þannig í senn einföld en um leið lifandi.

Tíu manna hljómsveit var staðsett á gólfinu fyrir neðan sviðið en samhljómur var góður og gott samræmi milli söngs og hljómsveitarleiks. Hljómsveitarútsetningu Hrafnkels Orra Egilssonar stjórnaði Sólveig Sigurðardóttir og gerði vel.

Þórunn hefur hér samið fína gamanóperu í gömlum anda (tal, resetatív og söngur) sem þó virkar í senn ný. Það var smekklega vitnað í bæði Mozart og Rossini en engu ofgert. Lokasenan var til að mynda glæsileg en „bréfaatriðið“ fyrir hlé var það líka og ég get eiginlega ekki hrósað hópatriðunum nægilega mikið.

Bravi tutti (og þá ekki síst Þórunn Guðmundsdóttir)!

P.S. Undirritaður mætir alltaf á tónleika með eitthvað til þess að skrifa með athugasemdir hjá sér meðan á flutningi stendur. Nú fór hins vegar svo að pappírinn gleymdist heima en þar sem það eru engar tilviljanir í lífinu sátu barnaskólakennarar undirritaðs á bekknum fyrir aftan sem færðu honum eitthvað til þess að skrifa á; ekki í fyrsta skipti í lífinu.

Magnús Lyngdal Magnússon

Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í febrúar 2025

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu