Styrkleikar og veikleikar í Hörpu
- Tónskáld
- Anna Þorvaldsdóttir, Gustav Mahler
- Kór, hljómsveit, stjórnandi
- Sinfóníuhljómsveit Íslands, Eva Ollikainen
Eva stjórnar Mahler
Anna Þorvaldsdóttir ★★★★½
Gustav Mahler ★★
Tónlist: Anna Þorvaldsdóttir (ax, heimsfrumflutningur) og Gustav Mahler (Sinfónía nr. 9). Sinfóníuhljómsveit Íslands. Konsertmeistari: Sigrún Eðvaldsdóttir. Hljómsveitarstjóri: Eva Ollikainen. Áskriftartónleikar í Eldborg Hörpu fimmtudaginn 6. febrúar 2025.
Sinfóníuhljómsveit Íslands og Eva Ollikainen frumfluttu nýtt verk, ax, eftir Önnu Þorvaldsdóttur á áskriftartónleikum í Hörpu fimmtudagskvöldið 6. febrúar. Um er að ræða tónsmíð sem Anna byggir á tónlist verksins METAXIS en það frumfluttu sömu flytjendur á Listahátíð í Reykjavík í júní 2024. Munurinn á ax og METAXIS er sá að seinna verkið var samið sérstaklega til flutnings í alrými Hörpu en það fyrrnefnda er ætlað fyrir tónleikasal.
Ég var mjög hrifinn af METAXIS og það sama gildir raunar um ax. Hljóðheimur Önnu Þorvaldsdóttur naut sín að vísu til hins ýtrasta í alrýminu og tónlistarupplifunin var giska ólík því sem heyrðist nú í Eldborg. Samt sem áður er ax áhrifamikið verk og það var mjög vel flutt af Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Evu Ollikainen. Hljómsveitin var risavaxin (til að mynda átta kontrabassar) og seigfljótandi hreyfingar verksins nutu sín einstaklega vel.
Það var ekkert hlé á tónleikunum og að flutningi á verki Önnu Þorvaldsdóttur loknum var komið að Mahler. Hljómsveitin var áfram risavaxin en á tónleikunum komu styrkleikar og veikleikar Evu Ollikainen sem hljómsveitarstjóra berlega í ljós.
Verk Mahlers, sem fæddist árið 1860 í þorpinu Kalište á svæði sem nú tilheyrir Tékklandi en heyrði þá undir Austurríska keisaradæmið, mynda nokkurs konar brú frá rómantík yfir í módernisma í tónlistarsögunni. Hann var sannarlega rómantíker að því leyti að verk hans tjá djúpar tilfinningar og vekja mikil áhrif en þau eru stór í sniðum og hefur hugtakið „maxímalismi“ stundum verið notað til þess að lýsa módernismanum sem hann tilheyrði.
Mahler samdi níundu sinfóníuna á árunum 1909-1910 og hún er síðasta númeraða sinfónían sem hann lauk við. Tónskáldið heyrði hana aldrei flutta, ekki frekar en Das Lied von der Erde, en það kom í hlut vinar Mahlers og samstarfsmanns, Brunos Walter, að stjórna frumflutningnum.
Níunda sinfónía Mahlers er margslungið verk og það vísar fram á veginn, frekar en aftur í rómantíkina. Það hefur verið túlkað með mjög mismunandi hætti hvað tempó varðar. Walter var til að mynda hraður meðan stjórnendur á borð við Levine og Maazel teygja mjög úr því. Sinfónían þolir báðar þessar túlkunarleiðir, svo lengi sem ekki er skautað yfir blæbrigði raddskrárinnar. Hér áður fyrr var það líka aðeins á færi bestu hljómsveita heims að flytja sinfóníur Mahlers en eftir því sem hljómsveitir hafa orðið tæknilega betri er Mahler nú reglulega á efnisskrá fjölmargra þeirra og Sinfóníuhljómsveit Íslands er ein þeirra sem leika verk tónskáldsins jöfnum höndum.
Túlkun Evu Ollikainen var í anda Walters, hvað tempó varðar, en þar lýkur líka samanburðinum. Fyrsti kaflinn var býsna hraður en samt sem áður glitti í ótal blæbrigði raddskrárinnar og hann var mjög vel leikinn af Sinfóníuhljómsveit Íslands. Eftir það fór hins vegar að halla verulega undan fæti í túlkun Ollikainens. Annar þáttur (Ländler-kaflinn) var þannig flatur og í hann vantaði bæði dýpt og grófleika. Þriðji þátturinn (Rondo-Burleske) var leikinn alltof hratt og það bitnaði á spilamennskunni. Ég er reyndar efins um að nokkur hljómsveit geti leikið þennan kafla svo vel sé á tempóinu sem Ollikainen valdi. Öll blæbrigði fóru fyrir ofan garð og neðan. Lokaþátturinn var skárri en það örlaði eftir sem áður á keyrslunni sem einkennir Ollikainen í rómantískum og síðrómantískum verkum (og raunar klassískum líka). Hins vegar vil ég hrósa henni og hljómsveitinni fyrir blálok verksins; þau voru ákaflega vel flutt og eiginlega það besta sem heyrðist af Mahler fimmtudagskvöldið 6. febrúar síðastliðinn. Það er alls ekki auðvelt að flytja þetta gullfallega niðurlag en flutningur strengjanna einkenndist af nærgætni og fínleika.
Þetta var fjórða Mahler-sinfónían sem ég heyri Ollikainen stjórna í Hörpu en áður hafði ég heyrt hana stjórna fyrstu, þriðju og fimmtu sinfóníunni. Ekkert af þessu hefur náð máli hjá henni, túlkunarlega séð. Þó vil ég enn og aftur hrósa hljómsveitinni fyrir leik sinn í Mahler á undanförnum árum. Hann hefur á köflum verið góður og jafnvel aðdáunarverður, eins og til að mynda frammistaða fyrsta trompets (Zach Silberschlag) í níundu sinfóníunni.
Magnús Lyngdal Magnússon
Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í febrúar 2025