Beethoven.is
Gagnrýni · 6. febrúar 2025

Brúðkaup Fígarós (í Mosfellssveit)

Tónskáld
Wolfgang Amadeus Mozart
Flytjendur
Oddur Arnþór Jónsson, Bryndís Guðjónsdóttir, Jóna G. Kolbrúnardóttir, Unnsteinn Árnason, Kristín Sveinsdóttir, Hildigunnur Einarsdóttir, Jón Svavar Jósefsson, Eggert Reginn Kjartansson, Vera Hjördís Matsdóttir, Ragnar Pétur Jóhannsson
Kór, hljómsveit, stjórnandi
Kammeróperan, Elena Postumi

Brúðkaup Fígarós

★★★★

Tónlist: Wolfgang Amadeus Mozart. Texti: Lorenzo da Ponte í íslenskri þýðingu og aðlögun Bjarna Thors Kristinssonar. Leikstjórn: Bjarni Thor Kristinsson. Leikmynd: Eva Björg Harðardóttir. Búningar: Andri Unnarsson. Lýsing: Friðþjófur Þorsteinsson. Tíu manna kammersveit. Tónlistarstjóri: Elena Postumi. Söngvarar: Oddur Arnþór Jónsson (greifinn), Bryndís Guðjónsdóttir (greifynjan), Jóna G. Kolbrúnardóttir (Súsanna), Unnsteinn Árnason (Fígaró), Kristín Sveinsdóttir (Cherubino), Hildigunnur Einarsdóttir (Macellina), Jón Svavar Jósefsson (Bartolo), Eggert Reginn Kjartansson (Basilo / Dun Curzio), Vera Hjördís Matsdóttir (Barbarina), Ragnar Pétur Jóhannsson (Antonio). Ósungið hlutverk sendils: Íris Sveinsdóttir. Frumsýning á Nýja sviði Borgareikhússins sunnudaginn 2. febrúar 2025.

Wolfgang Amadeus Mozart (1756-1791) vildi öðru fremur semja óperur og eftir að hann fluttist búferlum til Vínarborgar árið 1781 og starfaði þar að langmestu leyti sjálfstætt fæddist hvert meistaraverkið á fætur öðru. Frægastar eru vísast da Ponte-óperurnar þrjár, Le nozze di Figaro (1786), Don Giovanni (1787) og Così fan tutte (1790) auk svo auðvitað Töfraflautunnar (1791).

Það var einmitt fyrsta da Ponte-óperan, Le nozze di Figaro, sem var frumsýnd á Nýja sviði Borgarleikhúsins nú snemma í febrúar og þá í því sem nefnt er „íslensk þýðing“ Bjarna Thors Kristinssonar sem jafnframt leikstýrir uppfærslunni. Ég hef ekkert á móti því að óperur séu færðar upp á íslensku en auðvitað er hætt við að sumt fari fyrir ofan garð og neðan í afburðagóðum texta ítalska ævintýramannsins Lorenzos da Ponte sem aftur er reistur á leikriti Beaumarchais (öðrum hluta Fígaró-þríleiksins). Hvað um það, þýðing Bjarna Thors var kannski á köflum býsna frjálsleg en hún var uppfull af húmor og áhorfendur skemmtu sér konunglega.

Þegar ég heyrði að það ætti að syngja Brúðkaup Fígarós á íslensku hafði ég mestar áhyggjur af því hvernig sönglesin (resetatívin) yrðu leyst en þau voru flutt í töluðu máli; það einfaldaði margt, mjög margt. Hins vegar var ekki annað að skilja en að uppfærslan sjálf ætti að gerast í Mosfellssveit. Ekki að það réði úrslitum, enda var leikgerðin býsna tímalaus (textinn vísaði aftur á móti stundum til nútímans). Leikmynd og búningar tókust með prýði og sýningin var vel lýst.

Allir tíu söngvarar sýningarinnar (í mjög misstórum hlutverkum) voru raddlega séð góðir. Ég vil þó nefna Bryndísi Guðjónsdóttur (greifynjan) sérstaklega. Rödd hennar hljómaði stærst, sérstaklega í stóru aríunum tveimur („Porgi, amor“ og „Dove sono i bei momenti“, ég náði bara ekki þýðingunni) og þær voru frábærlega sungnar. Jóna G. Kolbrúnardóttir (Súsanna) var líka framúrskarandi. Af karlaröddunum vil ég hrósa bæði Unnsteini Árnasyni (hann söng til að mynda „Se vuol ballare, Signor Contin“ vel, á íslensku: „Viljirðu stíga dans, greifi minn góður“) og Oddi Arnþóri Jónssyni (greifanum). Rúsínan í pylsuendanum var svo ljómandi fín túlkun Kristínar Sveinsdóttur á hlutverki Cherubinos („Voi che sapete“) í íslensku þýðingunni „Langar að læra“ sem var fallega flutt.

Það er enginn eftirhljómur á Nýja sviði Borgarleikhússins og ég heyrði því allt, misfellur líka. Textinn barst almennt vel en það örlaði einstaka sinnum á ósamræmi milli söngvara og kammersveitar sem lék þó almennt vel undir stjórn Elenu Postumi. Þetta á sjálfsagt eftir að skólast til á næstu sýningum.

Brúðkaup Fígarós er þriðja uppfærsla Kammeróperunnar og ég kann að meta það þegar listamenn bíða ekki með hendur í skauti eftir kallinu, taka heldur til óspilltra málanna. Þessi uppfærsla er skipuð ungum listamönnum sem gera vel. Auðvitað getur kammeruppfærsla aldrei komið í staðinn fyrir fullskipaða sviðsuppfærslu en Brúðkaup Fígarós á Nýja sviði Borgarleikhússins er hin mesta skemmtun!

Magnús Lyngdal Magnússon

Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í febrúar 2025

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu