Beethoven.is
Gagnrýni · 5. febrúar 2025

Framúrskarandi fiðluleikur Ara Þórs

Tónskáld
Edward Elgar, Þórður Magnússon, Jennifer Higdon
Flytjendur
Ari Þór Vilhjálmsson
Kór, hljómsveit, stjórnandi
Sinfóníuhljómsveit Íslands, Osmo Vänskä

Ari Þór og Osmo Vänskä

Edward Elgar og Þórður Magnússon ★★★★★

Jennifer Higdon ★★★

Tónlist: Edward Elgar (In the South), Þórður Magnússon (Fiðlukonsert) og Jennifer Higdon (Konsert fyrir hljómsveit). Einleikari: Ari Þór Vilhjálmsson. Sinfóníuhljómsveit Íslands. Konsertmeistari: Hulda Jónsdóttir. Hljómsveitarstjóri: Osmo Vänskä. Áskriftartónleikar í Eldborg Hörpu fimmtudaginn 30. janúar 2025.

Ég veit ekki hvort það var efnisskráin eða vonskuverður (eða hvort tveggja) sem olli því að Eldborg Hörpu var hálfsetin fimmtudagskvöldið 30. janúar síðastliðinn en ég treysti mér til að fullyrða að þeir sem heima sátu misstu af miklu. Það er raunar alltaf tilhlökkunarefni að heyra heiðursstjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Finnann Osmo Vänskä, stjórna, enda má ganga að því sem gefnu að hljómsveitin er alltaf á tánum þegar hann stendur fyrir framan hana.

Tónleikarnir hófust með hvelli en flutningur á konsertforleiknum In the South (Alassio) eftir Edward Elgar (1857-1934) var fyrsta flokks. Verkið samdi Elgar veturinn 1903-1904 í Alassio á Ítalíu þar sem tónskáldið og eiginkona hans höfðu vetursetu. Flutningur Sinfóníuhljómsveitar Íslands var í senn tilfinningaríkur og ljóðrænn og verkið fékk sannarlega að anda. Öfugt við það sem oft gerist í „finnska skólanum“ meðal hljómsveitarstjóra, þá var kjöt á beinunum hjá Vänskä og flutningurinn einkenndist af dýnamík. Allar innkomur voru ákveðnar og ég vil sérstaklega hrósa Þórunni Ósk Marinósdóttur fyrir gullfallegan einleik sinn á víóluna.

Næst á efnisskránni var frumflutningur á fiðlukonserti eftir Þórð Magnússon (f. 1973). Hann hefur samið verk af ólíkum toga ásamt því að sinna útsetningum af krafti. Konsertinn er í hefðbundnu þriggja þátta formi og var fyrsti kaflinn bæði dimmur og áleitinn (einleikshljóðfærið hljómaði þannig oft á býsna lágu raddsviði). Einleiksparturinn var safaríkur og hljómaði ákaflega vel í flutningi Ara Þórs Vilhjálmssonar. Hann var þannig alls óhræddur í öllum innkomum og lék af fádæma öryggi. Ég sat fyrir miðju gólfi Í Eldborg og þar barst einleikur Ara Þórs vel (sem er ekki alltaf raunin með einleikara í Hörpu) og jafnvægið milli einleikara og hljómsveitar var gott. Annar kaflinn einkenndist af lýrík en á sama tíma var mikil spenna leyst úr læðingi og verkinu lauk svo á gáskafullum og ryþmískum lokaþætti. Mér fannst konsertinn einkennast af djúpu samtali milli Ara Þórs og Sinfóníuhljómsveitar Íslands og það var greinilega gott samband þar á milli sem Osmo Vänskä stýrði af öryggi. Konsertinn er þannig vel saminn fyrir bæði einleikshljóðfæri og hljómsveit og hljómurinn giska þykkur á köflum. Vonandi heyrist hann aftur, til að mynda á hljóðritun.

Eftir hlé hljómaði svo lokaverk tónleikanna: Konsert fyrir hljómsveit eftir Jennifer Higdon (f. 1962). Verkið var samið að beiðni Fíladelfíu-hljómsveitarinnar sem frumflutti það árið 2002 undir stjórn Wolfgangs Sawallisch. Rétt eins og hinn frægi hljómsveitarkonsert Bélas Bartók er verk Higdon í fimm þáttum. Verkið er hins vegar býsna ójafnt en reynir mikið á hljóðfæraleikara, ekki síst þriðji þátturinn. Þar mátti meðal annars heyra einleiksstrófur ganga í gegnum hljómsveitina og vil ég sérstaklega hrósa T.C. Fitzgerald á kontrabassann (einleikur hans var á mjög háu raddsviði bassans og alls ekki auðveldur í flutningi). Nokkuð bar hins vegar á ónákvæmni almennt í leik Sinfóníuhljómsveitar Íslands (sem er óvenjulegt þegar Osmo Vänskä er að stjórna), sérstaklega í snörpum öðrum þætti verksins.

Magnús Lyngdal Magnússon

Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í febrúar 2025

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu