Beethoven.is
Gagnrýni · 13. desember 2024

Jafnaldrar mætast

Tónskáld
Georg Friedrich Händel, og Johann Sebastian Bach
Flytjendur
Una Sveinbjarnardóttir, Ásthildur Haraldsdóttir, Ísak Ríkharðsson, Jory Vinikour
Kór, hljómsveit, stjórnandi
Kammersveit Reykjavíkur

Barokkveisla á aðventu

★★★★½

Tónlist: Georg Friedrich Händel (Koma drottningarinnar af Saba – HWV 67, Concerto Grosso í D-dúr op. 6, nr. 5 – HWV 323, Vatnasvíta nr. 2 í D-dúr – HWV 349) og Johann Sebastian Bach (Fiðlukonsert í a-moll – BWV 1041, Brandenborgarkonsert nr. 5 í D-dúr – BWV 1050). Einleikarar: Una Sveinbjarnardóttir (fiðla í BWV 1014), Ásthildur Haraldsdóttir, Ísak Ríkharðsson og Jory Vinikour (flauta, fiðla og semball í BWV 1050). Kammersveit Reykjavíkur. Konsertmeistari: Una Sveinbjarnardóttir. Tónleikar í Norðurljósum Hörpu sunnudaginn 8. desember 2024.

Tónleikar Kammersveitar Reykjavíkur eru alltaf tilhlökkunarefni. Hópurinn fagnaði fimmtugsafmæli sínu í september síðastliðnum en nú var komið að barokkveislu á aðventunni. Efnisskráin var haganlega samsett en boðið var upp á alls fimm verk eftir jafnaldrana Georg Friedrich Händel (1685-1759) og Johann Sebastian Bach (1685-1750). Það er ekki nóg með að þeir hafi verið jafn gamlir, heldur fæddust þeir svo að segja í næsta nágrenni hvor við annan, jafnvel þó svo að á endanum hafi Bach sjaldan hleypt heimdraganum en Händel starfað lengst af hinum megin við Ermarsundið, það er að segja í Bretlandi.

Flutningurinn á Komu drottningarinnar af Saba (sem raunar er forleikurinn að þriðja þætti óratoríunnar Salomons frá 1748) var prýðilegur en verkið er skrifað fyrir strengi og tvö óbó og nýtur mikilla vinsælda. Hljómurinn var áferðarfallegur og hendingar skýrar. Það sama má segja um flutning á a-moll fiðlukonserti Bachs. Þar lék Una Sveinbjarnardóttir einleikspartinn af miklu öryggi; tónninn var kannski ekki ýkja stór en blandaðist vel við meðleik strengjasveitarinnar. Enn fremur mátti greina vel áhrif upprunaskólans í flutningnum; hendingar voru snarpar og skýrar og víbratói stillt í hóf, til að mynda í löngum nótum hæga þáttarins (Andante). Um leið var tónn Unu syngjandi.

Fyrri hluta efnisskrárinnar lauk svo með flutningi Kammersveitarinnar á Concerto Grosso í D-dúr eftir Händel (raunar var öll efnisskráin héðan í frá í D-dúr). Þetta tónlistarform, Concerto Grosso, einkennist af því að nokkur hljóðfæri leika einleik, oft samtímis. Hér bættust tréblásarar aftur við sveitina og flutningurinn var sannfærandi, ekki hvað síst í fyrsta þættinum, Largo e staccato.

Eftir hlé tók svo við flutningur á fimmta Brandenborgarkonserti Bachs (af alls sex slíkum konsertum). Tónsmíðar Bachs tóku mjög mið af því umhverfi sem hann starfaði í hverju sinni. Brandenborgarkonsertarnir voru samdir á Köthen-árunum (1717-1723) en þannig háttaði til að tónlistarlegar skyldur Bachs við kirkjuna í Köthen voru minni en annars staðar. Helgaðist það af því að vinnuveitandinn þar, Leópold prins, var kalvínisti og sú kirkjudeild lagði litla áherslu á tónlist við kirkjulegar athafnir, það er að segja annað en almennan safnaðarsöng. Flutningurinn var aftur prýðilegur. Einleikur þeirra Ásthildar Haraldsdóttur (flauta), Ísaks Ríkharðssonar (fiðla) og Jorys Vinikours (semball) skilaði sér vel í gegn en meðleikurinn var í höndum einungis sex hljóðfæraleikara (tvær fiðlur, tvær víólur, selló og kontrabassi). Í svo fámennum hópi heyrir maður nánast allt en misfellur voru fáar og til að mynda var intónasjón góð.

Tónleikunum lauk svo á ljómandi fínum flutningi á annarri Vatnasvítu Händels. Hér bættust bæði tré- og málmblásarar við hópinn og sveitin var aldrei fjölmennari á tónleikunum en einmitt í þessu verki (alls 21 hljóðfæraleikari). Hljómurinn var þéttur og samofinn og flutningurinn samhentur. Það var hátíðarblær yfir til að mynda öðrum þættinum, Alla Hornpipe, sem líkast til er þekktasti hluti verksins. Händel er kannski þekktastur fyrir bæði óperur sínar og svo óratoríur en hljómsveitarsvíturnar sem kenndar eru við bæði vatn og flugelda eru ekki langt undan.

Leikur Kammersveitar Reykjavíkur, sem Jory Vinikour leiddi yfirleitt frá sembalnum, var ljómandi góður á þessum hátíðartónleikum. Almennt var hann snarpur og dýnamískur og ekki hvað síst samhentur.

Þetta voru góðir tónleikar.

Magnús Lyngdal Magnússon

Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í desember 2024

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu