Beethoven.is
Fróðleikur · 30. nóvember 2024

Klassísk tónlist um jólin

Jólahaldi fylgir jafnan mikill tónlistarflutningur, oft trúarlegs eðlis en þó ekki einvörðungu. Hér er bent á verk eftir níu afar ólík tónskáld (allt frá Corelli til Schnittkes) sem kalla má að hafi samið (eða útsett) jólatónlist. Sumt af þessu er meira flutt en annað en verkin eiga það sammerkt að nálgast má þau öll á helstu streymisveitum.

Arcangelo Corelli (1653-1713) var ítalskur fiðlusnillingur og tónskáld og raunar fyrsti tónsmiðurinn sem öðlaðist Evrópufrægð fyrir eingöngu hljóðfæratónlist. Hann er kunnastur fyrir að nýta sér tónlistarform sem nefnist concerto grosso (fleirtala concerti grossi) þar sem nokkur hljóðfæri leika einleik með strengjasveit. Að Corelli látnum kom út safn slíkra verka, merkt op. 6, en safnið varð sennilega til seint á 17. öld og samanstendur af tólf concerti grossi. Corelli hripaði á forsíðu þess áttunda í röðinni (í g-moll): „Fatto per notte di Natale“ sem útleggst: „Samið fyrir jólanótt“.

Upptaka sem ég mæli með:

The English Concert; Trevor Pinnock (Archiv / DG)

Johann Sebastian Bach (1685-1750) samdi Jólaóratoríuna (eða tók saman) vegna hátíðarhalda um jólin árið 1734, það er að segja ekki fyrr en 16 árum áður en hann lést. Verkið samanstendur af sex aðskildum kantötum (verk fyrir einsöngvara, kór og hljómsveit) en við ritun þess nýtti Bach sér eldri verk, þar á meðal þrjár veraldlegar kantötur. Höfundur textans er ókunnur en líkum hefur verið að því leitt að hann sé Christian Friedrich Henrici. Tónlistin er hin glæsilegasta, þar á meðal altarían „Bereite dich, Zion, mit zärtlichen Trieben“.

Upptaka sem ég mæli með:

Dorothea Röschmann, Andreas Scholl, Werner Güra o.fl.; RIAS-kammerkórinn; Akademie für Alte Musik; René Jacobs (Harmonia Mundi)

Messías er frægasta óratoría Georgs Friedrichs Händels (1685-1759) og Hallelúja-kórinn þekkja allir. Verkið var frumflutt í Dyflinni í apríl árið 1742 en það tók tónskáldið einungis 24 daga að ljúka við fullbúið handrit. Vísast leitaði þó Händel í smiðju eldri verka sinna við ritun Messíasar en afköstin eru eftir sem áður undraverð. Verkið skiptist í forleik, söngles, aríur og kórþætti og fjallar um fæðingu Krists, krossfestingu og upprisu. Messías er eitt mest flutta verk tónlistarsögunnar og oft á dagskrá í jólamánuðinum.

Upptaka sem ég mæli með:

Barbara Schlick; Sandrien Piau; Andreas Scholl; Mark Padmore; Nathan Berg; Les Arts Florissant; William Christie (Harmonia Mundi)

Wolfgang Amadeus Mozart (1756-1791) samdi þrjá þýska dansa (K. 605) í febrúar árið 1791, það er að segja innan við ári áður en hann lést. Hann hafði þá verið búsettur í Vínarborg í um áratug og var á tíðum í miklum fjárhagskröggum. Lengst af tímanum í Vínarborg sóttist Mozart því eftir fastri stöðu við hirðina en lengi gekk hvorki né rak. Tónskáldið Christoph Willibald Gluck lést hins vegar árið 1787 og þá losnaði staða kammertónskálds keisarans. Mozart var skipaður í stöðuna en var ekki hálfdrættingur á við fyrirrennara sinn í launum, enda skyldurnar raunar litlar. Þýsku dansarnir þrír voru samdir fyrir austurrísku hirðina en sá þriðji í röðinni ber heitið „sleðaferðin“ og hefur á að skipa fallegu pósthornssólói og sleðabjöllum.

Upptaka sem ég mæli með:

Philharmonia Orchestra; Herbert von Karajan (EMI/Warner)

Hector Berlioz (1803-1869) samdi óratoríuna um æskudaga Krists (L'enfance du Christ) í nokkrum hlutum á tímabilinu frá um 1850 til 1854. Verkið, sem er í þremur hlutum, var frumflutt í heild sinni í París í desember 1854. Öfugt við mörg önnur verka Berlioz var óratoríunni býsna vel tekið, bæði af áheyrendum og gagnrýnendum. Strangt til tekið fjallar hún ekki um fæðingu Krists, heldur flóttann til Egyptalands, en verkið er einmitt oft flutt í kringum jólin.

Upptaka sem ég mæli með:

Janet Baker, Thomas Allen, Eric Tappy, Jules Bastin og fleiri; John Alldis-kórinn; London Symphony Orchestra; Sir Colin Davis (Philips/Decca)

Camille Saint-Saëns (1835-1921) naut gríðarlegrar hylli sem organisti á sinni tíð en hann samdi einmitt Jólaóratoríu sína („Oratorio de Noël“) á sama tíma og hann gegndi stöðu sem slíkur við La Madeleine-kirkjuna í París. Eins og gefur að skilja leikur orgel stórt hlutverk í óratoríunni en hún er annars samin fyrir fimm einsöngvara, kór, hörpu og strengi. Verkið hefur ekki verið mikið hljóðritað en er flutt endrum og sinnum, ekki síst í frönskumælandi löndum.

Upptaka sem ég mæli með:
Britt Marie Aruhn, Anne Sofie von Otter, Ingmari Landin og fleiri; Mikaeli-kammerkórinn; Hljómsveit konunglegu óperunnar í Stokkhólmi; Anders Eby (Proprius)

Pjotr Tsjajkovskíj (1840-1893) samdi ballettinn um hnotubrjótinn ári áður en hann lést, það er að segja árið 1892. Hann er þriðji í röð slíkra verka tónskáldsins á eftir Svanavatninu (1876) og Þyrnirós (1889). Sagan er eftir E.T.A. Hofmann og segir af ævintýrum í huga barns á jólanótt (þar sem jólaskrautið öðlast líf og dansar). Um er að ræða eitt frægasta verk Tsjajkovskíjs og það er oft flutt, bæði sem ballett í heild sinni sem og einstakir hlutar þess (t.d. 14. atriðið, Pas de deux: Andante maestoso).

Upptaka sem ég mæli með:

London Symphony Orchestra; André Previn (EMI/Warner)

Arnold Schönberg (1874-1951) samdi eða útsetti jólatónlist sína („Weihnachtsmusik“) árið 1921. Verkið er skrifað fyrir tvær fiðlur, selló, píanó og harmóníum og þar má heyra laginu „Það aldin út er sprungið“ bregða fyrir sem svo leiðir yfir í „Heims um ból“. Útfærsla Schönbergs er snilldarleg en um leið giska óvenjuleg.

Upptaka sem ég mæli með:

The Taverner Consort; Andrew Parrott (Virgin Classics)

Rússneska tónskáldið Alfred Schnittke (1934-1998) útsetti frægasta jólalag allra tíma, „Heims um ból“, fyrir fiðlu og píanó árið 1978, þá á tímum Sovétríkjanna. Þessi útsetning er „öðruvísi“ og alls ekki fyrir viðkvæma. Guðlast myndu sumir segja en þá er þess að geta að í Sovétríkjunum sálugu ríkti almennt guðleysi.

Upptaka sem ég mæli með:

Ulf Wallin; Ronald Pöntinen (BIS)

Magnús Lyngdal Magnússon

Greinin birtist í Morgunblaðinu í nóvember 2024

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu