Beethoven.is
Bókadómur · 29. nóvember 2024

Heyr þú oss himnum á

Bók eftir
Árni Heimir Ingólfsson, Johnny F. Lindholm, Margrét Eggertsdóttir og Þórunn Sigurðardóttir bjuggu til prentunar

★★★★★

Söngbók séra Ólafs Jónssonar á Söndum. Árni Heimir Ingólfsson, Johnny F. Lindholm, Margrét Eggertsdóttir og Þórunn Sigurðardóttir bjuggu til prentunar. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, 2024. Innb. 335 bls., myndir, handritaskrá, skýringar, athugasemdir og lesbrigði, sálma- og kvæðaskrá, nafnaskrá.

Séra Ólafur Jónsson á Söndum (um 1560-1627) naut mikilla vinsælda á sinni tíð, það er að segja sem skáld. Öfugt við mörg önnur skáld fyrri alda safnaði hann skáldskap sínum saman í eina bók og nefnist hún jafnan Kvæðabók. Upprunalegt handrit hennar hefur þó glatast en bókin hefur aftur á móti varðveist í að minnsta kosti 26 eftirritum auk stakra kvæða og kvæðaflokka annarra sem finna má á víð og dreif. Þessi mikla útbreiðsla kveðskapar séra Ólafs á Söndum er rækur vitnisburður um vinsældir kveðskaparins.

Kvæðabókin inniheldur hátt á annað hundrað kvæði. Af þessum kveðskap fylgja nótur 51 kvæði og hafa þau Árni Heimir Ingólfsson, Johnny F. Lindholm, Margrét Eggertsdóttir og Þórunn Sigurðardóttir safnað þeim saman í Söngbók Séra Ólafs Jónssonar á Söndum. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum gefur út en útgáfan hvílir á margra ára rannsókn sem meðal annars beindist að varðveislu tónlistarinnar í handritum. Einnig er um að ræða útgáfu á kvæðunum (sem nótur fylgja) með nútímastafsetningu og orðskýringum.

Söngbókinni er fylgt út hlaði með vönduðum inngangi í tveimur hlutum. Annars vegar fjalla þær Margrét Eggertsdóttir og Þórunn Sigurðardóttir um séra Ólaf og kveðskap hans (bls. 11-22) og hins vegar gerir Árni Heimir Ingólfsson grein fyrir tónlistinni við kvæði skáldsins (bls. 23-38). Hvorttveggja er bæði fróðlegt og afar upplýsandi. Sjálf kvæðabókin telur svo um 150 síður. Loks fylgir útgáfunni snörp lýsing á handritum (bls. 197-203) og skýringar, athugasemdir og lesbrigði (bls. 205-320), auk annarra skráa af hefðbundnu tagi.

Sjálfur fylgdi séra Ólafur kvæðum sínum úr hlaði með stuttum formála. Kemur þar fram að fyrri hluti þeirra hnígi „heim til vorra almennilegra lærdómsgreina, sem kenndar eru, einkum til iðranar yfirbótinni og hennar þriggja parta; item til lögmáls og evangelí, einkum til Kristum vors endurlausnara, sem lesarinn fær skilið“ en í seinni hlutanum séu „kvæði, kveðin fyrir ýmsar persónur, fyrir þeirra bón, að minnast annaðhvort á sína umliðna ævi eða Guðs velgjörninga eður viðskilda ástvini. Sum eru um eitt og annað það sem mig hefur lyst til í kveðandi að setja, sem vel finnst hér í vegi í þessu kverkorni. Sum eru gagnleg á móti skaðsömum freistingum, hjartans angist og hugarsturlun, fyrir þá sem þau vilja athuga“.

Á síðustu árum hefur færst í vöxt að tónlistin við kvæði séra Ólafs á Söndum hafi hljómað. Að frumkvæði Kára Bjarnasonar og Helgu Ingólfsdóttur hófu þannig íslensk tónskáld að útsetja mörg laganna eða þá semja alfarið ný verk við texta séra Ólafs fyrir Sumartónleika í Skálholti frá 1998-2006. Eitt þessara verka er Heyr þú oss himnum á eftir Önnu Þorvaldsdóttur sem hefur verið sungið víða og hljóðritað allnokkrum sinnum, stundum hreint frábærlega (t.a.m. Schola Cantorum undir stjórn Harðar Áskelssonar). Þetta lag og kvæði séra Ólafs er nr. 24 í Söngbókinni nýútgefnu en áttunda erindið hljóðar svo:

En þegar vér aumir hér

öndumst burt úr heimi vér

oss tak, Guð, þá að þér

í þá dýrð sem aldrei þver.

Amen, amen, það eflaust sker.

Fram kemur í formála útgáfunnar að fátt hafi áður birst á prenti af kveðskap séra Ólafs eða lögum við kvæði hans, annað en ýmislegt smálegt. Lögin birtust þó að einhverju leyti í Íslenskum þjóðlögum séra Bjarna Þorsteinssonar (útg. 1906-1909) auk þess sem Kári Bjarnason bjó úrval úr 53 kvæðum séra Ólafs til prentunar árið 2006. Því er ljóst að hin nýja útgáfa bætir verulega miklu við menningararf þjóðarinnar og það er vonandi að tónskáld nýti sér útgáfuna til innblásturs, hvort heldur sem er til útsetninga eða nýsmíða við kvæði bókarinnar. Af nægu er að taka, þökk sé góðu starfi fjórmenninganna sem bjuggu til prentunar, sem og annarra sem lögðu hönd á plóg.

Að lokum vil ég geta þess að útgáfan er öll hin vandaðasta og gildir þá einu hvort litið er til efnis eða útlits. Helga Gerður Magnúsdóttir hannaði kápu, Össur Geirsson sá um nótnasetningu og Helgi Hilmarsson braut um bókina sem hefur ekki verið létt verk.

Magnús Lyngdal Magnússon

Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í nóvember 2024

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu