Beethoven.is
Gagnrýni · 28. nóvember 2024

(Of) áferðarfallegar öfgar

Tónskáld
Ludwig van Beethoven, Dmítríj Shostakovitsj
Flytjendur
Jan Lisiecki
Kór, hljómsveit, stjórnandi
Sinfóníuhljómsveit Íslands, Andris Poga

Beethoven og Shostakovitsj

★★★★

Tónlist: Ludwig van Beethoven (Píanókonsert nr. 4 í G-dúr, op. 58) og Dmitríj Shostakovitsj (Sinfónía nr. 8 í c-moll, op. 65). Einleikari: Jan Lisiecki. Sinfóníuhljómsveit Íslands. Konsertmeistari: Sigrún Eðvaldsdóttir. Hljómsveitarstjóri: Andris Poga. Rauðir áskriftartónleikar í Eldborg fimmtudaginn 21. nóvember 2024.

Efnisskráin á rauðum áskriftartónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands fimmtudagskvöldið 21. nóvember var glæsileg. Það voru þó aðeins tvö verk á dagskránni. Bæði eiga hins vegar sérstakan stað í hjörtum aðdáenda tónskáldanna, Beethovens og Shostakovitsj. Vel kann að vera að Keisarakonsert Beethovens (nr. 5) sé frægastur númeruðu píanókonsertanna eftir þýska meistarann en sá fjórði er án efa vinsælastur meðal píanista. Það sama má segja um sovéska tónskáldið; fimmta sinfónían er kannski mest flutt en sú áttunda skipar sérstakan sess í ópusi Shostakovitsj og er kannski viðamest „stríðs“-sinfónía tónskáldsins.

Tónskáldaferli Ludwigs van Beethoven (1770-1827) er jafnan skipt í þrjú tímabil og nær hið fyrsta fram til ársins 1802, stundum nefnt „þroskaskeiðið“, miðtímabilið frá 1802-1812, stundum nefnt „hetjutímabilið“, og hið síðasta frá 1812 og uns hann lést í mars 1827. Lengst af ævinni átti Beethoven andstreymt og átti gjarnan í útistöðum við samtíðarmenn sína. Hann naut víða virðingar, þótt tónsmiðar hans þættu á köflum bæði myrkar og erfiðar. Raunar hefur mikið af þessum karaktereinkennum verið rakið til heyrnarleysis hans en Beethoven byrjaði snemma að missa heyrn og var orðinn nánast heyrnarlaus árið 1811 og klínískt heyrnarlaus árið 1814.

Beethoven ávann sér snemma orðspor sem afburða píanóleikari og stóðst honum til að mynda enginn snúning í spuna. Þessu fékk aðallinn að verða vitni að en með því að halda opinbera „akademíutónleika“ (rétt eins og Mozart hafði gert) ávann Beethoven sér líka hylli almennings, bæði sem tónskáld og píanisti. Fyrstu slíku tónleikarnir voru haldnir í Vínarborg árið 1800. Fjórði píanókonsertinn var einmitt frumfluttur á slíkum „akademíutónleikum“ en hann er frá árinu 1806, það er að segja „hetjutímabilinu“ á tónskáldaferli Beethovens.

Kanadíski píanistinn Jan Lisiecki lék konsertinn að mörgu leyti prýðilega. Raunar hafa áheyrendur Sinfóníuhljómsveitar Íslands ágætan samanburð, því ekki er langt síðan rússneski píanóleikarinn Daniil Trifonov lék þetta sama verk með hljómsveitinni (september 2022) og minnugir tónleikagestir gátu því borið flutning þessara tveggja stjörnupíanista saman.

Þó svo að leikur Lisieckis hafi verið tæknilegt afbragð fannst mér túlkunin að mörgu leyti vera meira úthugsuð en sjálfsprottin. Þannig voru allar hendingar og fraseringar nánast fullkomnar og vissulega lét Kanadamaðurinn píanóið syngja, ekki síst í stuttum miðkaflanum sem sannarlega er í hópi áhrifamestu tónsmíða Beethovens. Annars staðar brann stundum við nánast vélræn túlkun; ég segi „nánast“ því heildarmyndin var músíkölsk, svo sannarlega. Það sama má segja um aukalagið, Chopin-prélúdíuna (sem Lisiecki hefur nýverið hljóðritað fyrir Deutsche Grammophon og væntanleg er á streymisveitur). Túlkunin var áferðarfalleg og „mjúk“ en kannski ekki sú dýpsta sem ég hef heyrt.

Sinfóníuhljómsveitin lék vel og raunar betur en miðlungi góður meðleikur hennar með Trifonov fyrir rúmum tveimur árum. Hljómsveitarstjórinn, Andris Poga, var í góðu sambandi við Lisiecki og setti mark sitt á flutninginn með því að móta hljómsveitarpartinn vel.

Eftir hlé var svo komið að áttundu sinfóníunni eftir Dmitríj Shostakovitsj (1906-1975). Hann starfaði alla tíð innan ríkis alræðisins í Sambandsríki sovéskra sovétlýðvelda eða því sem í daglegu tali er nefnt Sovétríkin. Shostakovitsj fæddist í Sankti Pétursborg og hlaut inngöngu í tónlistarháskóla mjög snemma eða þrettán ára gamall. Þar vakti hann strax athygli sökum afburða hæfileika og þegar hann var nítján ára gamall leit fyrsta sinfónía hans dagsins ljós sem enn er mikið flutt í dag.

Shostakovitsj mátti þola ýmislegt um ævina; honum var stundum hampað af sovéskum stjórnvöldum en var líka fyrirvaralaust fordæmdur, það er að segja bæði 1936 og 1948, fyrir að bregða út af stefnu stjórnvalda. Sum verka hans voru bönnuð í kjölfarið, til að mynda áttunda sinfónían (frá 1948 til 1956), og hann var hrakinn úr prófessorsstöðum í bæði Moskvu og Leníngrad. Fordæmingin árið 1948 kom í kjölfar þess að einn af undirsátum Stalíns, Andrej Zhdanov, beitti sér fyrir því að gengið yrði opinberlega milli bols og höfuðs á þeim listamönnum sem hefðu brugðið út af flokkslínunni. Þannig mátti Shostakovitsj tvívegis þola opinbera smánun.

Áttunda sinfónían (1943) er ekki ólík þeirri sjöundu að því leyti að fyrsti þáttur beggja verka er risavaxinn og það þarf snjallan hljómsveitarstjóra til þess að halda þessum upphafsþáttum saman en þó ekki síst að láta þá „toppa“ á réttum stöðum. Mér fannst hljómsveitarstjóra kvöldsins, Lettanum Andris Poga, takast hvort tveggja vel, þótt túlkunin hefði mátt vera ívið stórskornari (jafnvel „brútal“) fyrir mína parta. Að vissu leyti vann hann þetta upp í þriðja þættinum (Allegro non troppo) sem hófst á glæsilegum leik víólusveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Þannig voru bæði annar þáttur (Allegretto) og sá þriðji vel leiknir.

Poga tókst líka að móta fjórða þáttinn (Largo) vel en lokaþáttur verksins, sá fimmti (Allegretto), hefur verið mönnum ráðgáta allar götur frá frumflutningi verksins. Hann hefst í C-dúr og kallast þannig á við c-moll-tóntegund upphafsþáttarins (ljósið sigrar myrkrið eins og til að mynda í fimmtu sinfóníu Beethovens og fyrstu sinfóníu Brahms).

Shostakovitsj varpar þó einhvers konar skugga á ljósið en kannski má segja að heildarsvipur lokakaflans beri með sér að það sé ljós fyrir enda ganganna, einkum og sér í lagi ef við berum lokataktana saman við það sem á undan gekk í fyrstu fjórum þáttunum. Poga tókst kannski ekki – frekar en öðrum – að svara alfarið gátunni á bak við lokaþáttinn en túlkunin var góð, þó svo að enn hafi ég saknað grófleikans sem oft má heyra í túlkun stjórnenda austan að. Kannski er best að lýsa þessu þannig að túlkunin hafi verið ívið of áferðarfalleg miðað við efniviðinn.

Leikur Sinfóníuhljómsveitar Íslands var að mestu leyti góður. Of langt mál væri að tína til alla þá hljóðfæraleikara sem sýndu snilldartakta í fjölmörgum (og snúnum) einleiksstrófum raddskrárinnar en vísast var samheldnin í risavaxinni hljómsveitinni til fyrirmyndar.

Þetta voru góðir tónleikar.

Magnús Lyngdal Magnússon

Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í nóvember 2024

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu