Beethoven.is
Gagnrýni · 25. nóvember 2024

Syngjandi Mozart og ljóðrænn Beethoven

Tónskáld
Fanny Mendelssohn, Wolfgang Amadeus Mozart, Ludwig van Beethoven
Flytjendur
Sunwook Kim
Kór, hljómsveit, stjórnandi
Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sunwook Kim

Mozart og Beethoven með Sunwook Kim

Mendelssohn ★★½

Mozart og Beethoven ★★★★½

Tónlist: Fanny Mendelssohn (Konsertforleikur í C-dúr), Wolfgang Amadeus Mozart (Píanókonsert nr. 21 í C-dúr) og Ludwig van Beethoven (Sinfónía nr. 4 B-dúr). Einleikari og hljómsveitarstjóri: Sunwook Kim. Sinfóníuhljómsveit Íslands. Konsertmeistari: Una Sveinbjarnardóttir. Áskriftartónleikar í Eldborg Hörpu fimmtudaginn 14. nóvember 2024.

Fanny Mendelssohn (1805-1847) var fjórum árum eldri en bróðir hennar, Felix. Þau fæddust bæði í Hamborg en ólust upp við góðan kost í Berlín. Fjölskyldan, sem var af gyðingaættum, var vel efnum búin og ólust börnin því upp við góðan kost og fyrirtaks menntun. Bæði Fanny og Felix námu tónlist í öndverðu hjá móður sinni en síðar hjá Carl Friedrich Zelter, kunnum tónsmíðakennara á sinni tíð. Á þessum tíma voru framavonir gyðinga hins vegar takmarkaðar og afréðu því foreldrarnir að láta skíra systkinin til kristinnar trúar strax á barnsaldri. Annars var uppeldið á engan hátt trúarlegt og þessi gjörningur var fyrst og fremst gerður til þess að tryggja börnunum full borgaraleg réttindi þegar fram í sækti.

Felix er vissulega þekktara tónskáld en hæfileikar Fannyjar voru á margan hátt ekki síðri. Eftir hana liggur þannig á fimmta hundrað verka en uppistaðan er sönglög og píanóverk. Eina verkið sem Fanney samdi og varðveist hefur fyrir fullskipaða sinfóníuhljómsveit er konsertforleikur í C-dúr, giska fallegt verk þar sem saman fara fallegar og vel útfærðar laglínur og prýðileg hljómsveitarútsetning.

Konsertforleikurinn hljómaði fyrstur á áskriftartónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands fimmtudagskvöldið 14. nóvember, þá undir stjórn suðurkóreska píanóleikarans Sunwooks Kims. Hann stjórnaði þessu verki, sem og öðrum verkum á tónleikunum, blaðlaust og fumlaust. Flutningurinn var nokkuð kaflaskiptur, oftar en ekki þó ágætur en slæm intónasjón í 1. fiðlu var ljóður á flutningnum á að minnsta kosti þremur stöðum. Sinfóníuhljómsveit Íslands er fyrir nokkru komin á þann stað að svona lagað á bara ekki að heyrast.

Sunwook Kim settist við flygilinn í næsta verki og lék 21. píanókonsertinn eftir Wolfgang Amadeus Mozart (1756-1791) glæsilega. Kim hefur komið áður fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Hörpu, það er að segja þegar hann lék píanókonsert nr. 2 eftir Brahms á áskriftartónleikum í fyrra. Þá var leikur hans kraftmikill en Kim sýndi hins vegar á sér býsna ljóðræna hlið í Mozart.

Sjálfur stóð Mozart fyrir tónleikahaldi í Vínarborg á sinni tíð; smalaði þannig saman hljómsveit, lét prenta efnisskrár og bæði stjórnaði og lék á píanó ef því var að heilsa. Þetta nefndust „akademíur“ og bar Mozart sjálfur allan kostnað en oftast gáfu þessar samkomur líka eitthvað í aðra hönd, stundum vel. Uppistaða þess sem tónskáldið samdi fyrir þessa tónleika voru píanókonsertar. Númeraðir konsertar Mozarts fyrir píanó eru 27 talsins en á „akademíunum“ frumflutti hann konserta númer 11-25. Sennilega er sá númer 21 í hópi þekktustu tónsmíða Mozarts, sérstaklega ljóðrænn millikaflinn sem Kim lék ákaflega vel. Hann skipar sér þannig í útvalinn hóp píanista samtímans sem leika og stjórna verkinu samtímis (hér má nefna Barenboim, Ashkenazy, Entremont, Uchida og fleiri).

Tónn Kims er líka ákaflega fallegur, algjörlega áreynslulaus en berst þó vel. Allar fraseringar voru smekklegar og flutningur giska dýnamískur. Enn fremur var jafnvægið milli einleikara og hljómsveitar gott en innkomur hljómsveitarinnar voru líka öruggar. Tempóið var í sjálfu sér aldrei hægt, ekki heldur í miðkaflanum, en flutningurinn var allur syngjandi. Það sama má segja um lýrískan flutning á hæga kaflanum (Andante) úr píanósónötu Mozarts nr. 21 sem Kim lék sem aukalag.

Eftir hlé hljómaði svo fjórða sinfónían eftir Ludwig van Beethoven (1770-1827). Þannig háttar til að oddatölusinfóníur tónskáldsins (1, 3, 5, 7 og 9) eru að jafnaði meira fluttar en þær sem númeraðar eru með sléttri tölu (2, 4 og 8). Sjötta sinfónían er þó undantekningin en flutningur hennar er á pari við oddatöluverkin. Auðvitað olli frumflutningur þriðju sinfóníunnar straumhvörfum en þar bryddaði tónskáldið upp á nýjungum sem höfðu aldrei heyrst áður og gildir þá einu hvort litið er til lengdar, hryns, hljómavals eða forms. Verkið hlaut enda misjafnar viðtökur en þeirri fjórðu var hins vegar betur tekið, enda að vissu leyti ekki eins framúrstefnulegt verk. Aftur braut fimmta sinfónían blað í sögunni og það er ekki að ástæðulausu að Schumann komst svo að orði um fjórðu sinfóníuna: „Hún er grannvaxin grísk gyðja sem stendur milli tveggja norrænna risa.“

Hvað um það. Flutningurinn á tónleikunum í Hörpu var glæsilegur; kraftmikill, ljóðrænn og dýnamískur allt í senn. Fyrstu þrír þættirnir voru einkar vel leiknir af hljómsveitinni og leiðandi hljóðfæraleikarar hennar fengu nokkurt frelsi hjá Kim í einleiksstrófum sínum (t.d. Grímur Helgason á klarínettið). Tempóið var alltaf gangandi en þó aldrei of hratt. Kannski var það einna helst í lokaþættinum sem gamli intónasjón-draugurinn lét á sér kræla en þó í miklu minna mæli en í upphafsverki tónleikanna.

Kim er með öruggt slag sem kallaði fram ákveðinn ljóma (e. brilliance) í leik hljómsveitarinnar. Styrkleikamerkingum Beethovens var líka fylgt út í ystu æsar sem gerði flutninginn mjög dýnamískan og raunar eftirminnilegan. Ég man síðast eftir flutningi á fjórðu sinfóníu Beethovens í Hörpu fyrir 13 árum, það er að segja þegar Hannu Lintu stjórnaði verkinu í nóvember 2011, og í minningunni var sá flutningur líka prýðilegur.

Sunwook Kim er ekki fyrsti suðurkóreski heimsklassapíanistinn sem hefur einnig tekið upp tónsprotann (Myung-whun Chung er þekktasta dæmið) en hann sýndi í Hörpu að hann á fullt erindi í það hlutverk.

Magnús Lyngdal Magnússon

Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í nóvember 2024

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu