Gylltur tónn hornsins
- Tónskáld
- Béla Bartók, Wolfgang Amadeus Mozart, Robert Schumann
- Flytjendur
- Stefán Jón Bernharðsson
- Kór, hljómsveit, stjórnandi
- Sinfóníuhljómsveit Íslands, Tomáš Hanus
Mozart og Schumann
Bartók ★★★★½
Mozart ★★★★★
Schumann ★★★★
Tónlist: Béla Bartók (Tónlist fyrir strengi, slagverk og selestu), Wolfgang Amadeus Mozart (Hornkonsert nr. 4 í Es-dúr) og Robert Schumann (Sinfónía nr. 4 í d-moll). Einleikari: Stefán Jón Bernharðsson (franskt horn). Sinfóníuhljómsveit Íslands. Konsertmeistari: Sigrún Eðvaldsdóttir. Hljómsveitarstjóri: Tomáš Hanus. Áskriftartónleikar í Eldborg Hörpu fimmtudaginn 17. október 2024.
Fyrir skemmstu bárust af því fregnir að gengið hefði verið frá ráðningu tékkneska hljómsveitarstjórans Tomáš Hanus í starf aðalgestastjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands næstu tvö starfsár og mun hann stjórna hljómsveitinni á tvennum tónleikum í Eldborg á hvoru starfsári. Það er að mínu viti mikið gæfuspor, enda Hanus framúrskarandi hljómsveitarstjóri. Eftir tónleika sem hann stjórnaði í Eldborg fyrir réttu ári skrifaði ég líka í Morgunblaðið: „Hér skipti máli að um sprotann hélt hljómsveitarstjóri sem kunni sitt fag og hljómsveitin bar greinilega virðingu fyrir honum. Ef ég ætti að bæta einhverju við þá er það vinsamleg ábending til verkefnavalsnefndar Sinfóníuhljómsveitar Íslands að bjóða Tomáši Hanus sem fyrst aftur.“ Ég hlakkaði því til að heyra hann vinna með hljómsveitinni aftur, sem og einleikara kvöldsins, og ég varð ekki fyrir vonbrigðum.
Béla Bartók (1881-1945) fæddist í bænum Nagyszentmiklós í um 200 km fjarlægð frá Búdapest, þar sem er nú nyrsti hluti Rúmeníu. Hann byrjaði að semja tónlist sem barn, leit mjög upp til bæði Liszts og Strauss og æskuverkin bera þess merki. Rúmlega tvítugur fór Bartók, oft í félagi við tónskáldið og samlanda sinn Zoltán Kodály, að ferðast um sveitir Ungverjalands og víðar til þess að safna þjóðlögum sem hann hljóðritaði á hundruð vaxhólka. Upphaf söfnunarinnar kom nánast til af tilviljun. Bartók var staddur á heilsuhæli í Ungverjalandi og heyrði þjónustustúlku raula lagbút. Það kom í ljós að stúlkan var frá Rúmeníu og var að svæfa barn með því að syngja þjóðlag frá heimaslóðum sínum, Transylvaníu. Næstu dagana á eftir söng stúlkan fleiri lög fyrir Bartók sem skrifaði þau niður. Samhliða söfnuninni stundaði Bartók viðamiklar rannsóknir og útgáfu á þjóðlögum en þjóðararfinn taldi hann meðal annars hafa haft áhrif á þróun rómantíkurinnar. Þjóðararfurinn hafði sannarlega áhrif á frumsamdar tónsmíðar Bartóks sem smám saman urðu gegnsýrðar anda þjóðlagsins. Þannig tókst fáum módernistum á öndverðri 20. öld að vinna með jafn sannfærandi hætti úr þjóðararfi í verkum sínum og raunin var hjá Bartók.
Tónlist fyrir strengi, slagverk og selestu var frumflutt árið 1937, það er að segja skömmu áður en Bartók flúði ásamt fjölskyldu sinni vestur til Bandaríkjanna. Hann var þó ekki af gyðingaættum en hafði til að mynda neitað að koma fram í Þýskalandi eftir valdatöku nasista. Honum gekk illa að koma undir sig fótunum í New York, án þess þó kannski beinlínis að líða skort. Hann greindist einnig með hvítblæði eftir komuna til Bandaríkjanna og veslaðist smám saman upp. Ekki sýndu Bandaríkjamenn tónsmíðum hans mikinn áhuga og Bartók lést blásnauður.
Tónlist fyrir strengi, slagverk og selestu er ákaflega erfið í flutningi, viðkvæm en að sama skapi angistarfull á köflum. Hanus tókst að byggja upp magnaða spennu í dulúðlegum fyrsta þætti sem var fallega mótaður og vel leikinn. Hljómurinn var kannski ekki alltaf hreinn í öðrum þætti verksins en flutningurinn var eftir sem áður músíkalskur og rytmískt skýr. Strengjasveit verksins er ekki stór en hljómurinn var þéttur og túlkun Hanus var dýnamísk. Pákuleikur Sorayu Nayyar var framúrskarandi í þriðja þætti en heilt yfir var kannski lokaþátturinn best fluttur af köflunum fjórum þar sem þjóðlagatengingin er hvað sterkust. Sinfóníuhljómsveit Íslands og Tomáš Hanus voru í essinu sínu fyrir hlé.
Eftir hlé steig Stefán Jón Bernharðsson fram fyrir hljómsveitina og lék einleik í fjórða hornkonsertinum eftir Wolfgang Amadeus Mozart (1756-1791). Stefán Jón er leiðari horndeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands en kemur reglulega fram sem gestaleiðari með hljómsveitum á borð við Fílharmóníusveitina í New York, Mahler-kammersveitina og hljómsveit La Scala-óperunnar í Mílanó.
Vitanlega er tónlist Mozarts allt annars eðlis en það sem hljómaði fyrir hlé. Bartók kann að vera tæknilega erfiðari í flutningi en það er ákaflega snúið að leika Mozart með sannfærandi hætti. Tónskáldið samdi alls fjóra hornkonserta (alla fyrir Joseph Leutgeb) en kannski er einmitt lokaþátturinn í þeim fjórða kunnasta stefið í þessum tónbókmenntum.
Hljómsveitin var lítil eins og nú tíðkast í flutningi á Mozart og jafnvægið milli hennar og einleikarans var gott. Flutningurinn var mjög samtaka og músíkalskur; þannig lét Stefán Jón hljóðfærið „syngja“, hvort sem það var í fyrsta þætti (með glæsilegri kadensu), ljóðrænum millikaflanum eða þá „húmórískum“ lokaþættinum. Með flutningnum sýndi Stefán Jón fram á, svo ekki verður um villst, að hann er í hópi fremstu hornleikara. Ekki spillti heldur aukalagið fyrir, Randez-vous de Chasse eftir Rossini. Hér fóru fimm hornleikarar Sinfóníuhljómsveitar Íslands á kostum undir forystu Stefáns Jóns (kannski fáum við að heyra Konsertstykki fyrir fjögur horn eftir Schumann í framtíðinni?).
Lokaverkið á tónleikunum var svo fjórða sinfónían eftir Robert Schumann (1810-1856). Framan af samdi Schumann einungis verk fyrir píanó en eftir réttan áratug sneri hann sér að sönglaginu. Þetta var rauði þráðurinn, það er að segja Schumann sinnti oft ákveðinni tegund tónlistar í afmarkaðan tíma. Árið 1840 var því til að mynda „söngvaárið“, 1841 „sinfóníuárið“, 1842 „kammerárið“, og 1843 „óratoríuárið“. Öll þessi tímabil gátu af sér merk verk, svo sem söngvasveiginn Dichterliebe (1840), sinfóníur númer eitt og fjögur (1841; Schumann endurskoðaði raddskrá fjórðu sinfóníunnar 1851), píanókvartettinn í Es-dúr (1842) og óratoríuna Das Paradies und die Peri (1843).
Lengi vel var Schumann harðlega gagnrýndur fyrir hljómsveitarútsetningar sínar og framan af tíðkaðist að „umskrifa“ til að mynda sinfóníurnar, meðal annars með það að augnamiði að „létta“ hljóminn (útsetningar Schumanns sjálfs þóttu þannig í þykkara lagi). Þetta heyrir til undantekninga í dag og það var lokagerð sinfóníu númer fjögur af hendi tónskáldsins sem hljómaði í Hörpu. Léttleiki einkenndi túlkun Hanus (rómansan í öðrum þætti var þannig ekki of hæg eins og stundum vill brenna við). En þrátt fyrir gangandi tempó fékk tónlistin að anda og það var greinilegt að hljómsveitarstjórinn hafði skýra sýn á verkið (hraðabreytingar hljómuðu til að mynda allar sjálfsprottnar). Vera má að ég hljómi eins og biluð plata en það sem helst skyggði á flutninginn voru gamalkunn intónasjón-vandamál í strengjum. Vonandi stendur það til bóta.
Magnús Lyngdal Magnússon
Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í nóvember 2024