Beethoven.is
Gagnrýni · 30. október 2024

Tvær (mjög svo ólíkar) hliðar á sama peningi

Tónskáld
Grażyna Bacewicz, Johannes Brahms, Thomas Larcher
Flytjendur
Sigrún Eðvaldsdóttir
Kór, hljómsveit, stjórnandi
Sinfóníuhljómsveit Íslands, Eva Ollikainen

Sigrún leikur Brahms

★★★★

Tónlist: Grażyna Bacewicz (forleikur), Johannes Brahms (fiðlukonsert) og Thomas Larcher (sinfónía nr. 2, „Kenotaph“). Einleikari: Sigrún Eðvaldsdóttir. Sinfóníuhljómsveit Íslands. Gestakonsertmeisari: Igor Yuzefovich. Hljómsveitarstjóri: Eva Ollikainen. Áskriftartónleikar í Eldborg Hörpu fimmtudaginn 10. október 2024.

Ég veit ekki hvort að hluta til nokkuð framúrstefnuleg efnisskrá gulra áskriftartónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands fimmtudagskvöldið 10. október síðastliðinn réð því að mæting var dræm en þó var eftir miklu að slægjast, þar á meðal flutningur á hinum margrómaða fiðlukonserti Brahms og svo frumflutningur hér landi á sinfóníu númer tvö eftir Thomas Larcher, svo að segja næsta nýju verki eða innan við tíu ára gömlu. Hvað um það, margt var sómasamlega flutt á tónleikunum sem hófust á stuttum en snörpum forleik eftir pólska tónskáldið Grazynu Bacewicz (1909-1969).

Bacewicz var lengst af aðeins þekkt í heimalandi sínu en verk hennar hafa nýverið farið að vekja athygli víða um heim. Ekki kom fram í efnisskrá tónleikanna hvort forleikurinn, sem frumfluttur var árið 1945, hafði hljómað áður á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands en ég hygg að hafi svo verið hafi hann að minnst kosti ekki verið leikinn oftsinnis. Þetta er skemmtilega lagrænt verk, skrifað í hröðu tempói, en einkennist um leið af þykkjum hljómi. Það var svo sem ekki mikið um styrkleikabreytingar en forleikurinn var ágætlega fluttur af hljómsveitinni.

Einleiksverk tónleikanna var vel þekkt: Fiðlukonsert í D-dúr, op. 77, eftir Johannes Brahms (1833-1897). Þetta verk hefur margsinnis hljómað á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands, meðal annars í flutningi Sigrúnar Eðvaldsdóttur, einleikara kvöldsins. Þá hefur hún hljóðritað verkið með hljómsveitinni og kom sú upptaka út árið 2015 og er meðal annars aðgengileg á helstu streymisveitum. Sigrúnu þarf auðvitað ekki að kynna. Hún hefur komið víða fram sem einleikari, bæði innan lands og utan, en hún hefur gegnt stöðu 1. konsertmeistara Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá árinu 1998 eða í rúman aldarfjórðung.

Brahms var klassíker að því leyti að hann hélt sig við sömu tónlistarform og Beethoven hafði notast við (hann samdi að vísu aldrei óperu). Eitt þessara forma var einleikskonsertinn og rétt eins og Beethoven samdi Brahms einn fiðlukonsert. Hann er í sömu tóntegund og fiðlukonsert Beethovens ásamt því að hefjast einnig á nokkuð löngum hljómsveitarkafla áður en einleikarinn kveður sér hljóðs. Þetta er erfiður konsert fyrir sólista og hljómsveit, ekki bara tæknilega séð heldur líka með tilliti til þess hvernig hendingar eru mótaðar. Konsertinn er í þremur þáttum, sá fyrsti langlengstur en allir bera sinn sjarma, svo sem hvernig Brahms vinnur með stef fyrsta þáttar, ljóðræna annars þáttar og galsi lokaþáttarins.

Engum blöðum er um það að fletta að Sigrún þekkir verkið eins og lófann á sér og það var ljóst frá fyrstu innkomu að túlkunin yrði rómantísk, þó jafnt innileg sem og lýrísk. Konsertinn er alvöruþrungið verk og Sigrún fraseraði ákaflega vel, mótaði þannig hendingar af smekkvísi og myndaði á köflum langar línur sem saman urðu að einni heild. Túlkunin var öll á dýptina og tónninn barst vel. Það var líka fínt jafnvægi milli einleikara og hljómsveitar og samhæfingin milli Sigrúnar og Evu Ollikainen var líka að mestu leyti góð, þó svo að á köflum hafi hún hljómað frekar æfð en beinlínis sjálfsprottin.

Sigrún sýndi með eftirminnilegum hætti að hún er í fremstu röð fiðluleikara og þó svo að ég hafi kannski ekki verið sammála öllu í túlkun hennar (ég hefði þannig til dæmis kosið minna víbrató í hæga kaflanum), þá var túlkun hennar bæði dramatísk og sannfærandi. Brava!

Ekki verður sama sagt um þátt hljómsveitarinnar í flutningnum á fiðlukonsertinum. Hann var bæði flatur og ósannfærandi. Nótur voru vissulega á réttum stöðum en leikur hljómsveitarinnar var þannig þunglamalegur og stundum jafnvel þvingaður. Þetta heyrðist strax í inngangskafla fyrsta þáttar sem Eva Ollikainen mótaði ekki. Þannig voru styrkleikabreytingar oftast litlar og hendingar einfaldlega að mestu leyti ómótaðar út í gegn. Hér og þar rofaði til, þar á meðal í fínum einleik Juliu Hantschel á óbóið í öðrum þætti. Leikur hljómsveitarinnar í Brahms hljómaði raunar eins og hljómsveitin væri að leika konsertinn af gömlum vana og ætti ég að giska hefur stærstum hluta æfingatímans verið eytt í hin verkin tvö á efnisskránni, sem er synd því leikur Sigrúnar var framúrskarandi.

Eftir hlé var sinfónía nr. 2 eftir austurríska tónskáldið Thomas Larcher (f. 1963) á efnisskránni. Hún ber undirtitilinn „Kenotaph“ sem merkir tómt grafhýsi, það er að segja fyrir þann sem hefur farist en finnst ekki. Larcher samdi verkið til minningar um flóttafólk sem hefur drukknað í Miðjarðarhafinu á undanförnum árum og liggur í votri gröf.

Sinfónían er í hefðbundnu fjögurra þátta formi og hefur hlotið mikið lof. Eins og áður segir var um frumflutning hér á landi að ræða og hér var túlkun Evu Ollikainen sannfærandi. Verkið einkennist af andstæðum en gegnumgangandi kallast á gríðarlega sterkir kaflar (tutta forza) og svo ljóðrænt og veikt samspil ólíkra hljóðfærahópa í því sem næst kammerútfærslu.

Ég hafði aldrei heyrt verkið fyrr og mér fannst það gríðarlega áhrifamikið. Það leikur enginn vafi á því að tónskáldið er vel að sér í orkestrasjón (hljómsveitarútsetningu) en mér fannst raunar á köflum sinfónían hljóma eins og viðamikill konsert fyrir hljómsveit í fjórum aðskildum þáttum. Hljómsveitin var líka stór, þar á meðal sex slagverksleikarar sem margir hlupu á milli ólíkra slagverkshljóðfæra.

Í heildina voru þetta góðir tónleikar og ég vil aftur hrósa Sigrúnu fyrir hennar leik og túlkun. Aftur á móti hefðu þeir getað verið enn betri, það er að segja hljómsveitarlega séð, ef Sinfóníuhljómsveit Íslands hefði verið á tánum í flutningi á Brahms, rétt eins og hljómsveitin var í sinfóníu Larchers.

Magnús Lyngdal Magnússon

Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í október 2024

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu