Þegar heimsmælikvarða þrýtur
- Tónskáld
- Luciano Berio, Franz Schubert, John Cage, Conlon Nancarrow, John Adams, Arvo Pärt, Sergej Rakhmanínov
- Flytjendur
- Víkingur Ólafsson, Yuja Wang
Harpa Víkingur & Yuja Wang
★★★★★
Tónlist: Luciano Berio (Vatnspíanó), Franz Schubert (Fantasía í f-moll, D. 940), John Cage (Experiences nr. 1), Conlon Nancarrow (Player Piano Studie nr. 6, úts. Thomas Adès), John Adams (Hallelujah Junction), Arvo Pärt (Hymn to a Great City) og Sergej Rakhmanínov (Sinfónískir dansar). Píanó: Víkingur Heiðar Ólafsson og Yuja Wang. Tónleikar í Eldborg Hörpu sunnudaginn 20. október 2024.
Jón Ólafsson úr Grunnavík dró eitt sinn efni Íslendingasagna saman í eina setningu: „Bændur flugust á.“ Ég gæti líka lýst tónleikum þeirra Víkings Heiðars Ólafssonar og Yuju Wang í einni setningu: „Þetta var stórkostlegt“ og látið þar við sitja. Ég ætla þó að gera tilraun til þess að greina frá því sem áheyrendur í Hörpu fengu að heyra sunnudagskvöldið 20. október síðastliðinn en hætt er við því að orð megi síns lítils þegar kemur að fádæmagóðum flutningi á fjölbreyttri efnisskrá.
Víkingur og Yuja Wang eru í hópi fremstu píanóleikara veraldar. Það er í sjálfu sér ekki algengt að sjá tvo stjörnupíanista koma saman fram, það er að segja að leika saman á tvo flygla. Efnisskráin hófst á undurblíðu Vatnspíanói eftir Luciano Berio (1925-2003) þar sem áhorfendum var kippt niður á jörðina eftir amstur dagsins. Þetta leiddi beint yfir í Fantasíu í d-moll (D. 940), eitt af síðverkum Franz Schuberts (1797-1828). Austurríska tónskáldið var meistari laglínunnar og hér var hún einkar vel leikin. Innhverf hugsun Schuberts skilaði sér þannig vel, án allrar tilgerðar en dýptin var mikil. Verkið kann að hljóma „einfalt“ en það er síður en svo auðvelt í flutningi. Hér mótuðu þau Víkingur og Yuja Wang ákaflega langar en úthugsaðar línur með skýrum hendingum. Jafnvægið milli flyglanna var líka gott og bassa- og tenórlínur skiluðu sér þannig ekki síður í gegn en stefið sem flaut oftast ofan á.
Það fór vel á því að leika Experiences nr. 1 eftir John Cage (1912-1992) í kjölfarið á Schubert. Hér var mýktin ráðandi og speglaðist þannig á við eða endurómaði austurríska meistarann. Verkið er samið undir áhrifum naumhyggjunnar (eða mínímalismans) og endurómar einna helst verk franska tónskáldsins Eriks Saties.
Enn færðu þau Yuja Wang og Víkingur Heiðar sig nær samtímanum, nú með flutningi á „æfingu“ eftir Conlon Nancarrow (1912-1997), það er að segja Player Piano Studie nr. 6. Verkið er hluti af æfingasafni Nancarrows, samið fyrir sjálfspilandi píanó en hrynskipan þótti það flókin að mannlegir kraftar réðu ekki við flutninginn. Það var Thomas Adès sem útsetti sjöttu æfinguna fyrir tvö píanó og á yfirborðinu má vera að áhorfendur hafi ekki orðið varir við mjög flókna hrynskipan verksins. Verkið er aftur á móti gríðarleg áskorun fyrir flytjendur en túlkun þeirra Víkings Heiðars og Yuju Wang var firna góð, rytmísk og músíkölsk um leið og þannig aldrei vélræn.
Magnaðasti flutningurinn fyrir hlé átti sér þó stað í píanódúettinum Hallelujah Junction eftir John Adams (f. 1947). Hann er áheyrendum í Hörpu að góðu kunnur eftir að hafa stjórnað meðal annars flutningi á þriðja píanókonserti sínum með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Víkingi Heiðari í einleikshlutverkinu (Yuja Wang hefur líka hljóðritað þetta verk fyrir Deutsche Grammophon með Fílharmóníusveitinni í Los Angeles og Gustavo Dudamel). Verkið Hallelujah Junction dregur heiti sitt af „lítilli stoppistöð fyrir flutningabíla á þjóðvegi 49, í fjalllendinu nærri landamærum Kaliforníu og Nevadaríkis“. Þar ítrekar tónskáldið lítið, rytmískt stef eða stefjabrot aftur og aftur og hljómurinn magnast smám saman undir flókinni hrynskipan uns yfir lýkur í allt að því brjálæðislegum styrk. Flutningurinn var frábærlega samhæfður og þéttofinn. Eftirminnilegt!
Eftir hlé hófust leikar á gullfallegu verki eftir Arvo Pärt (f. 1935) áður en þau Víkingur Heiðar og Yuja Wang léku Sinfóníska dansa eftir Sergej Rakhmanínov (1873-1943). Þetta er síðasta verkið sem tónskáldið samdi, þá búsett vestur í Bandaríkjunum. Hljómsveitarútgáfa verksins er eitt af eftirlætisverkum mínum eftir Rakhmanínov (ásamt Aftansöngvunum) og ég hlakkaði mikið til að heyra þessa gerð fyrir tvo flygla. Litapalletta píanósins er kannski ekki eins fjölbreytt og fullskipuð sinfóníuhljómsveit en flutningurinn var fyrsta flokks. Aðalstefin skiluðu sér vel í gegn, þar á meðal Dies irae-stefið í lokaþættinum sem og þar sem Rakhmanínov vitnar í Aftansöngvana. Stemningin í Eldborg var líka rafmögnuð og píanistarnir voru ítrekað klappaðir upp eins og fjögur aukalög bera vitni um. Þar var ég hrifnastur af Brahms.
Tónleikarnir voru í þeim gæðaflokki að öll gagnrýni verður hjóm eitt. Víkingur Heiðar og Yuja Wang eru listamenn af því kalíberi að þau eiga alls kostar við tæknilegar áskoranir og geta þannig einbeitt sér að dýpt í túlkun. Stundum hættir hins vegar tæknilega fullkomnum flytjendum við því að hljóma næstum því vélrænt en sú var svo sannarlega ekki raunin í Hörpu. Áheyrendur urðu þannig vitni að framúrskarandi flutningi, túlkun og breidd sem er sjaldheyrð á tónleikum hérlendis.
Magnús Lyngdal Magnússon
Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í október 2024