Af landflótta tónlistarmönnum
- Bók eftir
- Árni heimir Ingólfsson
★★★★★
Tónar útlaganna: Þrír landflótta tónlistarmenn sem mótuðu íslenskt menningarlíf eftir Árna Heimi Ingólfsson. Hið íslenska bókmenntafélag, 2024. Innb. 360 bls., myndir, nafnaskrá.
Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur hefur ritað bókina Tónar útlaganna: Þrír landflótta tónlistarmenn sem mótuðu íslenskt menningarlíf og hefur Hið íslenska bókmenntafélag nýverið gefið hana út. Þar er sögð merk saga þriggja þýskumælandi tónlistarmanna sem flúðu uppgang nasismans í Þýskalandi og Austurríki. Þetta voru læknasynirnir Victor Urbancic, Heinz Edelstein og Róbert Abraham Ottósson. Allir settust þeir að á Íslandi og áttu eftir að marka djúp spor í menningarlíf hér á landi.
Í bókinni er í fyrsta skipti sögð saga þessara þriggja manna. Ævi þeirra er rakin allt frá uppvexti millistríðsáranna og baráttunni fyrir því að komast lífs af í ríki Hitlers en þeir Róbert Abraham Ottósson og Heinz Edelstein voru af gyðingaættum (Victor Urbancic var hins vegar kvæntur konu af gyðingaættum). Hér lyftu þremenningarnir grettistaki í tónlistarlífi, kenndu heilli kynslóð íslenskra tónlistarmanna og stofnuðu kóra og hljómsveitir.
Árni Heimir fléttar saman örlagasögum þremenninganna í eina heild en bókin er miklu meira en „þreföld“ ævisaga. Hér er líka sjónum beint að þeim óblíðu móttökum sem útlendingar hlutu hérlendis um og eftir fjórða áratug síðustu aldar (þegar heimurinn skiptist svo að segja í tvennt: Annars vegar í þau lönd sem vildu losna við gyðinga og svo hin sem vildu ekki taka við þeim).
Líf þeirra Victors Urbancic, Heinz Edelsteins og Róberts Abrahams Ottóssonar var enginn dans á rósum og þeir mættu vissulega andstreymi, enda voru fáir jafn „óvelkomnir á Íslandi og erlendir tónlistarmenn af gyðingaættum“ (bls. 105). Mikill fengur er að umfjöllun Árna Heimis í 4. kafla bókarinnar þar sem útlendingaandúð á Íslandi á 4. áratug 20. aldar er að nokkru leyti rakin, þá meðal annars með dæmum af þeim Albert Klahn og Hans Stephanek (hvorugur var þó af gyðingaættum og átti Klahn eftir að ílengjast á Íslandi þrátt fyrir andstreymi). Félag íslenskra hljóðfæraleikara (FÍH), síðar Félag íslenskra hljómlistarmanna, beitti sér enda fyrir því að „tryggja að íslenskir tónlistarmenn sætu fyrir störfum umfram útlendinga sem ráðnir væru til landsins“ (bls. 105).
Auðvitað þarf að gæta þess að dæma ekki fortíðina með gleraugum nútímans og það gerir Árni Heimir einmitt ekki. Frásögnin er látlaus en um leið fræðandi og rækilega studd heimildum, þar á meðal heimildum úr skjalasöfnum heima og erlendis og viðtölum við þá sem þekktu þremenningana.
Victor Urbancic, Heinz Edelstein og Róbert Abraham Ottósson voru hámenntaðir og höfðu lifað og hrærst í vöggu tónlistarinnar í Evrópu. Þannig heyrði til að mynda Róbert Abraham þá Vladimir Horowitz, Artur Schnabel og Sergej Rakhmanínov leika á píanó í níundu sinfóníu Beethovens undir stjórn bæði Brunos Walters og Wilhelms Furtwänglers. Það hafa því verið viðbrigði fyrir hann að enda norður á Akureyri árið 1935, í öndverðu atvinnulaus (þaðan hraktist hann raunar suður fimm árum síðar).
Vissulega tóku fleiri tónlistarmenn þátt í að byggja upp tónlistarlíf á Íslandi en þremenningarnir sem Árni Heimir beinir sjónum að í Tónum útlaganna. Þeir áttu hins vegar „meiri þátt en flestir aðrir í að opna eyru manna hér á landi fyrir miðevrópskri tónmenningu. Í henni höfðu þeir lifað og hrærst allt frá fæðingu, en flestum Íslendingum var hún enn sem lokuð bók. Þeir komu til lands sem var að flestu leyti vanbúið þegar kom að tónlistarlífi, og heimamenn höfðu margir hverjir þrönga og jafnvel fordómafulla sýn á útlendinga og raunar hvern þann sem skar sig úr samfélaginu.“ Þessum mönnum gerir Árni Heimir góð skil samhliða því að bregða upp mynd af samtíma þeirra, bæði heima fyrir í Þýskalandi og Austurríki sem og á Íslandi.
Allur frágangur er vandaður og bókinni fylgir góð nafnaskrá og Árni Heimir hefur unnið bæði gott og þarft verk með ritun hennar og ferst það vel úr hendi.
Magnús Lyngdal Magnússon
Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í október 2024