Liszt af listfengi
- Tónskáld
- Gabriella Smith, Franz Liszt, Antonín Dvořák
- Flytjendur
- Lise de la Salle
- Kór, hljómsveit, stjórnandi
- Sinfóníuhljómsveit Íslands, Antonio Méndez
Harpa Lise de la Salle leikur Liszt
Smith og Dvořák ★★★★
Liszt ★★★★★
Tónlist: Gabriella Smith (Tumblebird Contrails, frumflutningur á Íslandi), Franz Liszt (Píanókonsert nr. 1), Antonín Dvořák (Sinfónía nr. 7). Einleikari: Lise de la Salle. Sinfóníuhljómsveit Íslands. Konsertmeistari: Sigrún Eðvaldsdóttir. Hljómsveitarstjóri: Antonio Méndez. Tónleikar í Eldborg Hörpu fimmtudaginn 19. september 2024.
Það var eiginlega býsna langt frá því að vera fullur Eldborgarsalur Hörpu á áskriftartónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands fimmtudagskvöldið 19. september, sem þó kom mér nokkuð á óvart miðað við bæði efnisskrá og einleikara kvöldsins. Hvað um það, þeir sem heima sátu misstu af miklu.
Tónleikarnir hófust á tíu ára gömlu verki eftir bandaríska tónskáldið Gabriellu Smith (f. 1991) en hún var einungis rúmlega tvítug þegar verkið var samið. Það ber heitið Tumblebird Contrails en heitið er að hluta til sótt í smiðju bandaríska rithöfundarins Jacks Kerouacs. Í tónleikaskrá segir meðal annars að Smith leggi „áherslu á gleðina í tónlistinni“ og nyti þess um leið að „rannsaka hljóm og möguleika hljóðfæranna“. Umhverfið er henni yrkisefni, enda mátti greinilega merkja náttúruhljóð í verkinu og kannski er einfaldast að lýsa því sem nokkurs konar ferðalagi um hljóðheim náttúrunnar.
Þykkur og seiðandi hljómur strengjanna í upphafi (í félagi við sneriltrommu) markaði veginn uns blásarar bættust við og var þykkur hljómurinn giska ómstríður, þó svo að verkið flokkist seint sem atónal. Smám saman byggðist upp spenna sem leiddi yfir í eins konar blásarakóral (yfir ólgandi strengjahljómi) áður en dynjandi pákurnar hljómuðu yfir þykkum „náttúruhljómi“. Smám saman fjaraði svo verkið út og upphafstöktunum brá aftur fyrir í blálokin.
Verkið er vel samið, enda verið flutt víða um heim síðastliðinn áratug, og flutningur þess var góður undir styrkri stjórn spænska hljómsveitarstjórans Antonios Méndez. Hann var nú að stjórna Sinfóníuhljómsveit Íslands í þriðja sinn.
Næst á efnisskránni var píanókonsert númer eitt eftir Franz Liszt (1811-1886) en það var franski píanóleikarinn Lise de la Salle sem var í einleikshlutverkinu. Sjálfur var Liszt afburða píanisti og konsertinn, þótt stuttur sé, gerir vissulega tæknilegar kröfur til einleikarans, einkum áttundirnar í upphafi verksins. Sinfóníuhljómsveit Íslands lék upphafstaktana með sannfærandi hætti og de la Salle kom alls óhrædd til leiks og átti alls kostar við tæknilega snúið upphaf konsertsins. Til að gera langa sögu stutta sló hún ekki feilpúst í verkinu en það væri beinlínist rangt að lýsa túlkun hennar sem einungis tæknilegri. Hún var einkar músíkölsk, karftmikil á köflum en undurblíð annars staðar, svo sem í öðrum þættinum (Quasi adagio) þar sem Grímur Helgason, leiðandi klarínettuleikari kvöldsins, fór einnig á kostum.
Tónn de la Salle er í senn mjúkur og syngjandi og túlkunin var einkar „hlý“ og rómantísk. Notkun hennar á rubato var þannig ákaflega smekkleg en virkaði um leið sjálfsprottin. Samspil hennar við hljómsveitina var til fyrirmyndar og de la Salle fraseraði vel og mótaði þannig langar og ljóðrænar hendingar. Skiptingin milli annars og þriðja þáttar var vel útfærð og hljómsveitin lék mjög vel undir stjórn Méndez.
Það er bara eina athugasemd sem mig langar að koma á framfæri við verkefnavalsnefnd hljómsveitarinnar en hún hefur engin áhrif á dóminn sjálfan. Hún er sú að það hefði farið einkar vel á því að fá de la Salle til þess að leika báða píanókonserta Liszts á þessum tónleikum, enda báðir mjög stuttir. Það hefði sem sagt verið gaman að heyra meira í þessum afburðagóða franska píanista.
Eftir hlé var svo sjöunda sinfónían eftir Antonín Dvorák (1841-1904) á efnisskránni. Þrjár síðustu sinfóníur tónskáldsins eru langmest fluttar af þeim alls níu sem Dvorák samdi, þó svo að hinar sex séu líka frábærar tónsmíðar (ekki síst sjötta sinfónían). Hér stjórnaði Méndez blaðlaust. Þegar svo ber við er einkum tvennt sem getur gerst: Hljómsveitarstjórinn „eltir“ hljómsveitina, það er að segja ef hann kann verkið ekki nógu vel utan að, eða þá hann hefur nánast fullkomna stjórn á framvindunni.
Það fór ekki fram hjá áheyrendum að Méndez kunni verkið aftur á bak og áfram. Hann gaf hljómsveitinni hins vegar nokkurt frelsi, það er að segja hann sló ekki hvert einasta slag. Meðal annarra orða, Méndez hjakkaði verkinu ekki í gegn, síður en svo. Hann kunni góð skil á hápunktum verksins og byggði þannig upp crescendo sem toppaði alls staðar á réttum stöðum. Tempó allra þáttanna fjögurra var líka mjög sannfærandi, aldrei of hægt en þó bæði ljóðrænt og afslappað. Snúnir staðir á borð við upphaf þriðja þáttar komu líka vel út og ég hafði á tilfinningunni að allir hljóðfæraleikarar hljómsveitarinnar væru á tánum.
Það sem verður til þess að ég get ekki gefið flutningunum fullt hús stiga er gamalkunnt vandamál sem oft lætur á sér kræla á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Intónasjón, einkum í fyrstu fiðlu, er bara alls ekki góð á köflum, einkum á hæstu tónunum. Strengjasveitinni er þó alls ekki alls varnað, attaca (snerpa) á lága tónsviðinu er góð, það mátti berlega heyra í fjórða þætti.
Þegar á heildina er litið var hins vegar túlkun Antonios Méndez á sjöundu sinfóníu Dvoráks fantagóð og mjög sannfærandi. Það er alltaf gaman að sjá það þegar hljómsveitarstjóri „treystir“ hljómsveitinni (lemur ekki taktinn) og hefur slíka þekkingu á raddskránni (þar með talið sónötuformi) að túlkunin hefur sterkt svipbragð. Þá var jafnvægið milli hljóðfærahópa gott og blásarar léku á als oddi.
Magnús Lyngdal Magnússon
Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í september 2024