„Dómkirkjur í tónum“
- Tónskáld
- Anton Bruckner
Hinn 4. september síðastliðinn voru liðin 200 ár frá fæðingu austurríska tónskáldsins Antons Bruckner (1824-1896). Hann var trúfastur kaþólikki og nam í grennd við klaustur heilags Floríans. Þar átti hann síðar eftir að starfa sem bæði kórstjóri og organisti og nema tónsmíðar samhliða námi í orgelleik. Síðar var hann skipaður prófessor í hljómfræði við tónlistarháskólann í Vínarborg. Þar var almennt litið niður á Bruckner, hann þótti einfeldningslegur og fötin pössuðu líka illa. Hann kenndi til að mynda aldrei tónsmíðar í Vín. Bruckner dáði Wagner og leit svo upp til þýska meistarans að hann fór á hnén og kyssti höndina á Wagner eftir frumsýninguna á Tristan und Isolde (1965) í München (Bruckner tileinkaði Wagner þriðju sinfóníu sína).
Bruckner þjáðist allar götur af stórkostlegri minnimáttarkennd. Samtíðarmenn hans lýstu honum sem einföldum sveitamanni sem lagði líf sitt og verk í dóm guðs. Hann átti ýmislegt sameiginlegt með yngri samtímamanni sínum, Mahler. Þannig sömdu báðir níu sinfóníur (níunda hjá Bruckner er ófullgerð og sú tíunda hjá Mahler), báðir sóttu þeir innblástur í þjóðlegan menningararf og Beethoven og Wagner höfðu mikil áhrif á bæði tónskáldin. Kannski má þó segja að þar með ljúki því sameiginlega.
Framan af samdi Bruckner einkum kirkjuverk en nánast ekkert fyrir orgel, þrátt fyrir að vera í hópi fremstu orgelleikara í heimalandi sínu og víðar. Hann var hins vegar kominn á fertugsaldur þegar sinfóníurnar fóru að láta á sér kræla. Þessi verk vöktu athygli hljómsveitarstjóra á borð við Artur Nikisch, Hermann Levi og Gustav Mahler en gagnrýnendur voru flestir á öðru máli, sérstaklega hinn áhrifamikli Eduard Hanslick í Vínarborg. Það helgaðist þó ekki síst af flokkadráttum vegna deilna um „nýþýska skólann“, en þar studdi Hanslick íhaldsarminn (Brahms og félaga) gegn Wagner og Liszt.
Allar níu fullgerðar sinfóníur Bruckners eru í hefðbundnu fjögurra þátta formi og flestar þeirra hefjast á veikum, titrandi tóni í strengjunum (tremolo) sem tónskáldið byggir svo stef ofan á. Þessum verkum hefur stundum verið lýst sem „dómkirkjum í tónum“ en þau einkennast af breiðum hljómaflekum og eru öll umfangsmikil.
Kannski má segja að sá tónlistarunnandi sem á enn óheyrðan lokaþáttinn úr fjórðu sinfóníu Bruckners með rúmenska hljómsveitarstjóranum Sergiu Celibidache sé eins og prestur „sem enn á ólesna fjallræðuna“ (eins og Jón Helgason ritaði fyrir margt löngu og af öðru tilefni). Þetta má vitanlega finna á streymisveitum eins og mikið af Bruckner-hljóðritunum Celibidaches sem bæði EMI/Warner og Sony hafa gefið út (Deutsche Grammophon-upptökurnar frá Stuttgart eru miklu síðri, forðist þær).
Þar sem Bruckner þjáðist alla tíð af minnimáttarkennd lagði hann við hlustir þegar verk hans, einkum sinfóníurnar, sættu gagnrýni sem þær gerðu alla jafna. Ýmsir samferðamenn hans, til að mynda hljómsveitarstjórar og nemendur, lögðu þannig til breytingar á verkunum, oftast til einföldunar og styttingar, og Bruckner hljóp á eftir flestu. Sumu var líka stundum breytt án hans vitundar. Afraksturinn er sá að flestar sinfóníurnar eru til í mörgum gerðum og það hefur reynst þrautin þyngri að greiða úr flækjunni. Upprunalegar hugmyndir Bruckners liggja heldur ekki alltaf í augum uppi. Robert Haas var fyrstur manna til þess að fara skipulega í gegnum sinfóníur tónskáldsins en á eftir honum fylgdi svo Leopold Nowak.
Útgáfur Haas og Nowaks eru alla jafna fluttar í dag. Í seinni tíð hafa aðrir látið til sín taka og í mörgum tilvikum minna Bruckner-fræði núorðið á trúarbrögð. Allar hugsanlegar „gerðir“ af sinfóníunum eru þannig gefnar út og oft hljóðritaðar, jafnvel eitthvað sem aldrei var flutt á dögum tónskáldsins. Fæst af þessu er til bóta.
Magnús Lyngdal Magnússon
Greinin birtist í Morgunblaðinu í september 2024