Beethoven.is
Gagnrýni · 14. september 2024

Kammersveit Reykjavíkur í 50 ár

Tónskáld
Johann Sebastian Bach, Páll Pamplicher Pálsson, Bohuslav Martinu, Arcangelo Corelli, Francesco Geminiani
Kór, hljómsveit, stjórnandi
Kammersveit Reykjavíkur, Kjartan Óskarsson

Kammersveit Reykjavíkur – Afmælistónleikar

★★★★

Tónlist: Johann Sebastian Bach, Páll Pamplicher Pálsson, Bohuslav Martinu, Arcangelo Corelli og Francesco Geminiani. Kammersveit Reykjavíkur. Konsertmeistari: Una Sveinbjarnardóttir. Stjórnandi (í verki Páls Pamplichers Pálssonar): Kjartan Óskarsson. Fimmtíu ára afmælistónleikar í Norðurljósum Hörpu sunnudaginn 8. september 2024.

Hinn 4. ágúst árið 1974 hélt nýstofnuð Kammersveit Reykjavíkur sína fyrstu tónleika. Þar voru samankomir hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands og kennarar við Tónlistarskólann í Reykjavík. Markmiðið var einkum að leika annars vegar barokktónlist og hins vegar samtímatónlist, það er að segja tónlist 20. aldar, bæði íslenska og erlenda. Sveitin hefur haldið svo að segja árlega tónleika allar götur síðan og meðal annars unnið með stjórnendum á borð við Vladimír Ashkenazy og Paul Zukofsky. Sunnudaginn 8. september fagnaði Kammersveitin 50 ára afmæli sínu með því að flytja verk eftir sömu tónskáld og leikin voru á upphafstónleikunum.

Fremst á efnisskránni var tríósónata úr Tónafórninni (Das Musikalische Opfer) eftir Johann Sebastian Bach (1685-1750). Hún er hluti af stærra verki sem Bach samdi við stef eftir Friðrik mikla Prússakeisara. Þau Una Sveinbjarnardóttir (fiðla), Hrafnkell Orri Egilsson (selló), Áshildur Haraldsdóttir (flauta) og Guðrún Óskarsdóttir (semball) fluttu tríósónötuna einkar vel. Þannig var hljómurinn mjúkur og jafnvægi milli hljóðfæra var gott. Allar hendingar voru vel útfærðar og verkið fékk að anda. Í flutningi kammertónlistar eru hljóðfæraleikarar einmitt „berskjaldaðri“ en í stærri hljómsveitum en hér bar hver og einn sannarlega ábyrgð á sínum parti og útkoman var einkar músíkölsk.

Næst hljómaði verkið Kristallar 2(000) eftir Pál Pampichler Pálsson (1928-2023) sem samið var í minningu Lárusar Sveinssonar trompetleikara. Hér var Kammersveitin fullskipuð undir stjórn Kjartans Óskarssonar. Um er að ræða verk sem er fullt af expressjónískum andstæðum, ómstrítt á köflum en aldrei atónal. Í verkinu gefur á að hlýða fallegar einleiksstrófur sem félagar í Kammersveitinni fluttu af öryggi. Kjartan stjórnaði verkinu af festu og hljómurinn var bæði skýr og jafnvægið milli strengja og blásara var gott.

Eftir hlé heyrðist fyrst kvartett eftir tékkneska tónskáldið Bohuslav Martinu (1890-1959) fyrir býsna sérstaka hljóðfærasamsetningu, það er að segja fyrir klarínett, horn, selló og sneriltrommu. Verkið samdi tónskáldið árið 1924 en það voru þau Rúnar Óskarsson (klarínett), Joseph Ognibene (horn), Hrafnkell Orri Egilsson (selló) og Soraya Nayyar (sneriltromma) sem fluttu. Kvartettinn er í þremur þáttum, fyrsti og síðasti eru snarpir en miðþátturinn er nokkurs konar einleiksverk fyrir selló og þar fór Hrafnkell Orri á kostum. Þannig lék hann dulúðarfullt upphafsstefið ákaflega vel og fylgdi því eftir með fantagóðri spilamennsku út í gegnum þáttinn. Að mínum dómi var þetta hápunktur tónleikanna.

Framfarir í hljóðfærasmíð urðu til þess að hljóðfæratónlist sótti mjög í sig veðrið á 17. öld, til dæmis einleiksverk fyrir fiðlu, og það var ekki síst fyrir tilstuðlan ítalska fiðlusnillingsins og tónskáldsins Arcangelos Corelli (1653-1713). Hann varð þannig fyrstur tónskálda til þess að ná frægð innan Evrópu allrar án þess að semja fyrir raddir, enda samdi hann eingöngu hljóðfæratónlist, þar á meðal fiðlu- og tríósónötur. Hann samdi einnig tólf verk sem bera heitið Concerto Grosso en formið einkennist af samspili lítils hóps einleikshljóðfæra og svo aftur stærri hljómsveitar. Sá nr. 4 hljómaði í Norðurljósum í flutningi Kammersveitar Reykjavíkur og var glæsilega fluttur, einkum fyrsti og síðasti þáttur.

Síðast á efnisskránni var svo útsetning ítalska tónskáldsins og fiðluleikarans Francescos Geminiani (1687-1762) á La Folia. Folia, sem þýðir „tryllingur“, er forn dans í þrískiptum takti frá Íberíuskaga og ein elsta varðveitta „laglína“ (eða hljómagangur) tónlistarsögunnar. Hann má að öllum líkindum rekja aftur til 15. aldar en yfir 150 tónskáld hafa nýtt sér þetta stef í tónsmíðum sínum, allt frá Lully og Marais á Frakklandi, Corelli og Vivaldi á Ítalíu og Bach og Händel þegar norðar dregur en það er einmitt oft talið að franska tónskáldið Jean Baptiste Lully (1632-1687) hafi formfest dansinn eins og við þekkjum hann í dag. Mér fannst hins vegar útsetning Geminianis, miðað við margt annað, heldur bragðdauf og flutningurinn hefði mátt vera blæbrigðaríkari, til að mynda meiri andstæður milli piano (veikt) og forte (sterkt).

Kammersveit Reykjavíkur gegnir mikilvægu hlutverki í íslensku tónlistarlífi. Þannig háttar til að undirritaður og sveitin eru nánast jafnaldrar og ég hef því alist upp við hana sem fasta í tónlistarlífinu. Þótt framan af hafi starfsemi hennar að mestu leyti byggst á óeigingjörnu einstaklingsframtaki (oftast í sjálfboðavinnu) er mikilvægt er að tryggja starfsgrundvöll hennar til framtíðar.

Magnús Lyngdal Magnússon

Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í september 2024

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu