Ljóðræn birta
- Tónskáld
- John Anthony Speight, Wolfgang Amadeus Mozart
- Flytjendur
- Rut Ingólfsdóttir
- Kór, hljómsveit, stjórnandi
- Kemmersveit, Hjörtur Páll Eggertsson
Kvoslækur
Speight og Mozart
★★★★
Tónlist: John Anthony Speight (Cantus II, frumflutningur) og Wolfgang Amadeus Mozart (Divertimento nr. 3). Einleikur á fiðlu: Rut Ingólfsdóttir. Fjórtán manna strengjasveit. Konsertmeistari: Pétur Björnsson. Hljómsveitarstjóri: Hjörtur Páll Eggertsson. Tónleikar í Hlöðunni á Kvoslæk sunnudaginn 1. september 2024.
Það var búið að vera heldur þungbúið á Suðurlandi framan af helginni og að því er virtist haustveður í kortunum. Hins vegar var eins og hendi væri veifað um kaffileytið á þessum fyrsta degi septembermánaðar í Fljótshlíðinni þegar gesti bar að garði á Kvoslæk. Fáninn blakti við hún við Hlöðuna þar sem fram undan voru tónleikar sem hjónin Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari og Björn Bjarnason fyrrverandi ráðherra skipulögðu. Þau hafa haldið úti bæði tónleikum og fyrirlestrahaldi á Kvoslæk af miklum rausnarskap.
Á þessum lokatónleikum sumarsins rammaði nýtt verk eftir John Anthony Speight inn Divertimento (nr. 3 í F-dúr) eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Þannig kallaðist óræður en um leið ljóðrænn og á köflum dimmur strengjahljómurinn í verki Speights á við táp og fjör Mozarts.
Speight samdi Cantus II fyrir einleiksfiðlu og strengi fyrir Rut Ingólfsdóttur. Verkið hefst undurblítt en þó ólgandi undir niðri og einleiksfiðlan flýtur ofan á. Svo tók við þungur strengjahljómur þar sem ólík blæbrigði kölluðust á, ýmist flaututónar eða glissando (þar sem strengjaleikarar renna sér upp og niður milli tóna). Milli ljóðrænna þátta einleiksfiðlunnar birtust svo snarpar hendingar en ávallt kölluðust einleikshljóðfærið og hljómsveitin á, það er að segja Rut setti fram stef sem hljómsveitin svo svaraði. Flutningurinn var góður, oftast samhentur og að mestu leyti hreinn.
Það sama má segja um Mozart; skemmtitónlistin sem hann samdi í Salzburg innan við tvítugt hljómaði sannfærandi undir stjórn Hjartar Páls Eggertssonar. Hendingar voru léttar og flutningurinn fullur af blæbrigðum (og oftast hreinn). Verk Speights var svo flutt aftur á eftir Mozart. Ég er ekki frá því að í seinna skiptið hafi flutningurinn verið „hlýrri“ og Rut tókst á við einleikspartinn af festu.
Það var farið að þykkna aftur upp á leiðinni heim og raunar tókst á alls kyns veður á leiðinni til Reykjavíkur. Það fór vel á því, enda kannski á ferðinni sams konar „átök“ og einmitt hljómuðu á Kvoslæk: Sól, þungbúin ský, rigning og ljóðræn birta.
Magnús Lyngdal Magnússon
Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í september 2024