Beethoven.is
Fróðleikur · 4. september 2024

Upprunastefnan í klassískri tónlist

Enska hugtakið Historically Informed Performances (eða HIP) hefur verið þýtt sem „upprunastefna“. Bein þýðing væri „sögulega upplýstur flutningur“ en hitt heitið er betra og hefur raunar verið sammælst um það. Í sem stystu máli gengur stefnan (eða skólinn) út á þá aðferðafræði að flytja klassíska tónlist því sem næst í þeim búningi sem hún hljómaði á dögum viðkomandi tónskálds.

Upphaflega gekk upprunastefnan aðallega út á flutning tónlistar frá miðöldum (500-1400), endurreisnartímabilinu (1400-1600) og barokktímabilinu (1600-1750). Öll mörk í tónlistarsögunni – og raunar mannkynssögunni allri – eru hins vegar býsna óskýr. Okkur til hægðarauka er henni þó skipt niður í gróf tímabil. Eftir að hafa verið bundin við tónlist miðalda, endurreisnar og barokks breyttist upprunastefnan upp úr 1970 og fór að teygja anga sína til verka frá klassíska tímabilinu (1750-1820) og því rómantíska (1820-1900). Það var ekki gæfuspor í öllu tilliti.

Fékk byr undir báða vængi

Fyrstu skref upprunastefnunnar voru stigin snemma á 20. öld af frumkvöðlum á borð við Arnold Dolmetsch (1858-1940) og Wöndu Landowska (1879-1959). Hins vegar má segja að fljótlega eftir miðja 20. öldina hafi upprunastefnan fengið byr undir báða vængi, þá með mönnum á borð við Gustav Leonhardt (1928-2012), Nikolaus Harnoncourt (1929-2016) og Frans Brüggen (1934-2014). Í kjölfarið fylgdu hljómsveitarstjórar á borð við Christopher Hogwood (1941-2014), Jordi Savall (f. 1941), sir John Eliot Gardiner (f. 1943), William Christie (f. 1944), Ton Koopman (f. 1944), Trevor Pinnock (f. 1946), René Jacobs (f. 1946) og Philippe Herreweghe (f. 1947). Upptalningin er hvergi nærri tæmandi og margir tónlistarmenn af yngri kynslóðinni, konur og karlar, hafa látið mikið að sér kveða innan upprunaskólans á síðustu árum og áratugum.

Upprunaskólinn er alls ekki óumdeildur og hann er auðvitað fyrst og fremst tónlistar- og sagnfræðileg tilgáta, studd mismiklum rökum. Raunar minna deilurnar um upprunastefnuna mig stundum á það er fræðimenn deildu um notkun Íslendingasagna sem sagnfræðilegra heimilda framan af 20. öldinni og skiptust í hóp sagnfestu og bókfestu (en lítil var kjölfestan). Leitast hefur verið við að leika tónlist á upprunahljóðfæri eða eftirlíkingar þeirra (t.d. viola da gamba, barokkfiðlur og nota barokkboga) auk þess sem strengjaleikarar hafa horfið aftur til notkunar á girnisstrengjum sem stálstrengir höfðu leyst af hólmi í upphafi 20. aldar.

Sembalasafnið brennt

Hljóðfæri tóku auðvitað breytingum eftir því sem tími leið og kannski er píanóið besta dæmið. Semballinn kom til sögunnar á 15. öld en það var venjulega semballeikarinn sem stýrði tónlistarflutningi áður en eiginlegt starf hljómsveitarstjórans kom til sögunnar snemma á 19. öld. Semballinn féll hins vegar úr tísku á 18. öld og það er haft fyrir satt að Tónlistarháskólinn í París hafi brennt sembalasafn sitt í frönsku byltingunni, enda hafði þá forveri nútímapíanós, fortepíanó, leyst sembalinn af hólmi. Píanó (flyglar) eins og við þekkjum í dag (88 nótur) kom fram seint á 19. öld.

Auk upprunahljóðfæra hvílir upprunaflutningur á (mistraustum) grunni tónlistarfræðilegra rannsókna á túlkunarhefðum. Þeir sem aðhyllast upprunaskólann vísa jafnan til samtímaheimilda (til að mynda handrita, bóka og bréfa) máli sínu til stuðnings, enda eigum við auðvitað engar upptökur af flutningi eldri tónverka til þess að styðja mál upprunasinna; þær fyrstu komu í kringum aldamótin 1900.

Hljómsveitir eins og við þekkjum þær komu líka fyrst til sögunnar á fyrri hluta 19. aldar, svo sem Fílharmóníusveitirnar í New York og Vínarborg sem stofnaðar voru 1842. Í upphafi 19. aldar taldi hins vegar dæmigerð hljómsveit í kringum 40 hljóðfæraleikara en um aldamótin 1900 var fjöldinn kominn upp í 90-100 manns, þ.e.a.s. um það bil sá fjöldi sem við þekkjum enn í dag.

Víðtæk áhrif á túlkun verka

Starf hljómsveitarstjórans í þeirri mynd sem nú þekkist varð líka til á fyrri hluta 19. aldar og er það oft rakið til þýska fiðluleikarans og tónskáldsins Louis Spohrs (1984-1859) sem fyrstur manna fór að stjórna en fleiri fylgdu í kjölfarið, tónskáld á borð við Felix Mendelssohn (1809-1847) og Carl Maria von Weber (1766-1826). Almennt er þó talið að erkitýpan af hljómsveitarstjóra nútímans sé Ungverjinn Arthur Nikisch (1855-1922).

Hvað sem mönnum kann að finnast upp upprunaflutning, þá er alveg ljóst að skólinn hefur orðið til þess að fjölmörg eldri verk og jafnvel tónskáld hafa verið „uppgötvuð“ á nýjan leik. Þá hefur líka „rómantískum“ flutningi (hægum og þungum) á til að mynda barokkverkum nánast verið útrýmt en líka að hluta í verkum frá klassíska tímabilinu og því rómantíska. Upprunaskólinn hefur þannig haft víðtæk áhrif á túlkun klassískrar tónlistar. Sumir hljómsveitarstjórar hafa líka nýtt sér hugmyndafræði upprunaskólans að hluta til, án þess kannski að ganga alla leið, og er sir Charles Mackerras (1925-2010) þar kannski besta dæmið. Hann nýtti sér mikið upprunakenningar um tempó, styrkleikabreytingar og fraseringar (þar með talið á tveimur heildarupptökum á sinfóníum Beethovens).

Hins vegar má líka færa rök fyrir því að í einhverjum tilvikum hafi verið gengið of langt; þannig hafi einhverjir fylgismenn upprunaskólans orðið uppvísir að þvergirðingshætti og orðið nánast dogmatískir á köflum í trú sinni á aðferðafræðina og viljað láta hana ganga yfir nánast alla tónlist sem samin hefur verið. Ég ætla að nefna hér tvö dæmi, víbrató annars vegar og tempó hins vegar (en við þessi tvö dæmi mætti hæglega bæta frásögn af styrkleikabreytingum, enda eru allar styrkleikamerkingar sem tónskáld merkja í raddskrár sínar mjög ýktar í flutningi upprunasinna).

Víbrató er tækni sem flytjendur, til að mynda strengjaleikarar og söngvarar, nota til þess að, svo að segja, mýkja tóninn. Í sinni einföldustu mynd má segja að tónninn sé látinn víbra (stundum hratt og grunnt en stundum hægar og dýpra). Fylgismenn upprunaskólans halda því fram að þessi tækni, það er að segja víbratóið, hafi ekki verið í almennri notkun fyrr á öldum (og jafnvel allt fram á 20. öld), heldur hafi tæknin miklu frekar verið notuð sem skraut (ornament). Þessu hafa aðrir hafnað og benda á að heimildir séu fyrir því að víbrató hafi einmitt verið notað hér áður fyrr, til að mynda á dögum Beethovens (frönsk orgel sem smíðuð voru snemma á 19. öld gátu til að mynda kallað fram eftirlíkingu af víbratói). Hvað svo sem kann að vera satt og rétt í þessu máli er alveg víst að víbrató-laus flutningur á verkum Mahlers er kolrangur í öllu tilliti. Hann lést árið 1911 en samferðamenn hans, bæði stjórnendur og hljóðfæraleikarar, hafa einmitt lýst því að Mahler hafi sjálfur lagt áherslu á notkun víbratós.

Var taktmælirinn bilaður?

Til að gera langa sögu stutta má líka segja að intónasjón (það er að segja hversu hreint músíkin hljómar) sé miklu erfiðari í víbrató-lausum flutningi, enda eru fyrstu upptökur upprunaskólans sem gerðar voru í kringum miðja 20. öldina oft ansi vandræðalegar hvað intónasjón varðar. Hraður, víbrató-laus flutningur á það líka til að hljóma kaldur og jafnvel tilfinningalaus og þá á ég einkum við um þau tilvik þar sem aðferðafræði upprunaskólans er beitt á verk frá rómantíska tímabilinu.

Upprunaskólinn hefur líka haft mikil áhrif á tempó (eða hraða) sem flytjendur velja við flutning. Hratt tempó einkennir þannig túlkun upprunasinna, einkum ef miðað er við þá túlkunarhefð sem við áttum að venjast framan af 20. öld. Kannski eru verk Bachs og Beethovens besta dæmið. Taktmælirinn var fundinn upp árið 1815 og Beethoven eignaðist slíkan grip snemma. Þegar árið 1817 var hann þannig búinn að merkja fyrstu átta sinfóníurnar með taktboðum (sú níunda var enn ósamin) með því að nota mælinn. Þetta eru oft miklu hraðari tempó en við eigum (eða áttum) að venjast og stundum það hröð að flutningur varð (og er) tæknilega mjög erfiður.

Það er skemmst frá því að segja að sumir flytjendur fylgja þessum merkingum út í hörgul, aðrir ekki, en eitt af helstu deilumálum klassískrar tónlistar er einmitt spurningin um hvort taktmælir Beethovens hafi verið bilaður. Þeirri spurningu fæst víst aldrei svarað.

Magnús Lyngdal Magnússon

Greinin birtist í Morgunblaðinu í september 2024

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu