Áhrifamikil en líka furðuleg ópera
- Tónskáld
- Arrigo Boito
Óperan Mefistofele eða Mefistófeles eftir ítalska tónskáldið og rithöfundinn Arrigo Boito var frumflutt á Scala í Mílanó 5. mars 1868. Verkið er byggt á leikriti Goethes um Faust en Boito samdi textann eða líbrettóið sjálfur. Óperan var upphaflega í fimm þáttum auk formála og eftirmála en eftir vægast sagt skelfilegar viðtökur á frumsýningarkvöldinu endurskoðaði Boito verkið og stytti; fyrst fyrir uppfærslu í Bologna 4. október 1875 og svo aftur áður en óperan var sett á svið í Rossini-leikhúsinu í Feneyjum 13. maí 1876. Báðar endurskoðuðu gerðirnar eru í fjórum þáttum, auk formála og eftirmála, og það er útgáfan frá 1876 sem er jafnan flutt í dag.
Mefistófeles er æði misjafnt verk. Það er á köflum bæði áhrifamikið og mjög fallegt en það eru líka staðir í verkinu sem eru býsna furðulegir. Boito lagði mikið upp úr því að vera frumlegur og raunar vildi hann umbylta óperuforminu á sinni tíð. Miðað við viðtökur frumsýningargesta í Mílanó 1868 varð tónskáldinu lítt ágengt; Giuseppe Verdi orðaði þetta eitthvað á þessa leið: „Boito hefur metnað til að vera frumlegur en útkoman er hálfskrýtin.“
Vildi rústa og byggja á ný
Boito fæddist í Padua á Ítalíu 1842 en ólst upp í Feneyjum. Tónlistarhæfileikar hans komu snemma í ljós og 1854 hlaut hann styrk til að nema við Tónlistarháskólann í Mílanó. Þar vann Boito til verðlauna í flokki tónsmíða; vinningurinn var ferð til Parísar þar sem hið unga tónskáld komst meðal annars í kynni við Verdi, Rossini og Berlioz.
Boito og kynslóð hans bar hins vegar takmarkaða virðingu fyrir ríkjandi hefð í ítölsku listalífi og nú skyldi velta í rústir og byggja á ný. Meðal þess sem Boito gagnrýndi í ræðu og riti var staðnað óperuform; ummæli hans stórmóðguðu Giuseppe Verdi en áratugum síðar áttu þeir raunar eftir að eiga náið samstarf þegar Boito tók þátt í endurskoðun á Simon Boccanegra ásamt því að semja texta upp úr verkum Shakespeares við tvær síðustu óperur Verdis, Otello og Falstaff. Og Boito sat við rúmstokk Verdis þegar sá síðarnefndi skildi við 27. janúar 1901.
Sjálfur var Boito farinn að huga að óperu reistri á leikriti Goethes laust eftir 1860. Frábærar viðtökur á óperunni Faust eftir Charles Gounod, sem var frumflutt 1859 í París og 1862 í Mílanó, settu hins vegar strik í reikninginn. Eftir nokkurra ára hlé hófst Boito þó handa á ný og lauk við Mefistófeles í lok árs 1867. Æfingar á verkinu hófust í janúar 1868 og stjórnaði tónskáldið sjálft frumflutningnum sem fór fram, eins og fyrr segir, 5. mars 1868.
Átti að marka endurreisn
Ýmsar ástæður hafa verið tilgreindar fyrir viðtökunum sem Mefistófeles fékk á frumsýningarkvöldinu í mars 1868. Fyrir það fyrsta þótti lengd verksins keyra úr öllu hófi – fimm þættir auk formála og eftirmála – en í öðru lagi voru söngvararnir í aðalhlutverkum slakir. Þó hefur sennilega mestu ráðið sú fullyrðing Boitos og stuðningsmanna hans að frumflutningur óperunnar myndi valda straumhvörfum í óperuheiminum og marka upphafið að endurreisn óperuformsins. Ummæli af þessu tagi vöktu reiði meðal íhaldssamra óperuaðdáenda í Mílanó og stór hluti tónlistargagnrýnenda var efins um að það væri innistæða fyrir yfirlýsingum fylgismanna Boitos.
Það var því með mikilli eftirvæntingu að frumsýningarkvöldið rann upp og spenna ríkti víðar en í óperuhúsinu sjálfu; mikill mannfjöldi hafði safnast saman fyrir framan Scala-óperuna og beið frétta af frumflutningnum. Formála óperunnar var vel tekið en eftir að honum lauk fór að síga á ógæfuhliðina. Áhorfendur æptu að tónskáldinu og frá því var síðar skýrt í dagblaðinu Gazzetta að lætin hefðu raunar vart orðið meiri þó svo áhorfendasvalir hefðu hrunið. Það var komið fram yfir miðnætti þegar frumsýningin var loks á enda en lætin héldu áfram í og við óperuhúsið fram undir morgun. Önnur sýning fór fram nokkrum dögum síðar og var afráðið að deila verkinu niður á tvö kvöld. Ekki tókst betur til en á frumsýningarkvöldinu og þurfti að kveðja til lögreglu að skakka leikinn.
Tókst í annarri tilraun
Ófarir frumsýningarkvöldsins höfðu djúpstæð áhrif á Boito. Hann dró sig í hlé frá tónsmíðum og helgaði sig næstu árin greinaskrifum og þýðingum. Eftir vel heppnaðan flutning á formála Mefisófelesar í Trieste 1871 fór tónskáldið þó að huga að endurskoðun á verkinu sem lyktaði með nýjum uppfærslum í Bologna í október 1875 og Feneyjum í maí 1876; í bæði skiptin með sterkum hópi einsöngvara. Nú í fjórum þáttum í stað fimm hlaut óperan prýðilegar viðtökur og var í kjölfarið sett upp víða, þar á meðal í Lundúnum og New York 1880 áður en verkið komst aftur á fjalir Scala-óperunnar 1881 við fádæma undirtektir.
Uppfærslur á Mefistófelesi hafa oftar en ekki tengst ákveðnum bassasöngvurum; hér má nefna söngvara á borð við Norman Triegel, Cesare Siepi, Samuel Ramey og Nikolai Ghiaurov en ef við förum lengra aftur Ezio Pinza og þó ekki síst Fjodor Sjaljapín. Mefistóteles var fyrsta hlutverkið sem Sjaljapín söng á sviði utan Rússlands, það er að segja á Scala 16. mars 1901, en sama kvöld var Enrico Caruso í hlutverki Fausts. Sjaljapín debúteraði einnig á Metrópólítan í hlutverki Mefistófelesar 20. nóvember 1907 og meðal annarra söngvara á sviðinu það sama kvöld má nefna Geraldine Farrar í hlutverki Margarítu.
Sakaður um að stæla Wagner
Tónlistarlega séð er þriðji þáttur Mefistófelesar sá jafnasti og kannski sá besti. Hann gerist í dýflissu þar sem Margaríta bíður dóms fyrir morð á barni sínu og móður. Þar hittir Faust hana fyrir og reynir árangurslaust að fá hana til að flýja með sér. Þátturinn hefst á langri aríu Margarítu, „L'altra notte in fondo al mare“, þar sem hún lætur hugann reika. Þetta hlutverk er oft sungið af dramatískum sópransöngkonum en raunar fer miklu betur á því að það sé sungið af lýrískum spinto-sópran eins og til að mynda Mirellu Freni.
Meðal þess sem Boito var sakaður um eftir frumsýningarkvöldið var að stæla Wagner en Boito var vissulega aðdáandi þýska meistarans. Ýmsir hafa fundið merki um Wagnerisma í Mefistófelesi en kannski stafar það af endurtekningu á stefi formálans, bæði í þriðja þætti og svo í eftirmálanum. Hér er þó ekki um leiðarstef að ræða en vissulega veitir þessi endurtekning verkinu ákveðið samhengi. Þetta stef má meðal annars heyra í lokin á þriðja þætti, í atriði sem Boito bætti við óperuna fyrir lokagerðina 1876.
Það eru til þónokkrar mjög fínar heildarupptökur af Mefistófólesi eftir Arrigo Boito (margar þeirra eru á streymisveitum). Hér má nefna upptökur með stjórnendum á borð við Patanè og Muti (hljóðið er dálítið loðið hjá Muti). Samuel Ramey fer með titilhlutverkið hjá báðum stjórnendum og hann má líka sjá á mynddiskaútgáfu frá San Francisco sem hefur fengið fína dóma tónlistarlega séð en uppfærslan (Robert Carsen leikstjóri) þykir skrautleg. Aðdáendur Giuseppes di Stefano fá líka töluvert fyrir sinn snúð með því að hlýða á útdrátt úr verkinu sem Decca gefur út.
Magnús Lyngdal Magnússon
Greinin birtist í Morgunblaðinu í ágúst 2024