Beethoven.is
Gagnrýni · 20. júlí 2024

Á glæsilegu ferðalagi um tónlistarsöguna

Tónskáld
Leoš Janáček, Johann Sebastian Bach, Luigi Boccherini
Flytjendur
Sergey Malov, Benedikt Kristjánsson, Kordó-kvartettinn

Sumartónleikar í Skálholti

Janáček (strengjakvartett) ★★★★

Bach (aría) ★★★★½

Bach og Boccherini (fiðlukonsertar) ★★★★★

Tónlist: Leoš Janáček, Johann Sebastian Bach og Luigi Boccherini. Einleikari: Sergey Malov. Einsöngvari: Benedikt Kristjánsson. Aðrir flytjendur: Kordó-kvartettinn (Juaquin Páll Palomares, Vera Panitch, Þórarinn Már Baldursson og Hrafnkell Orri Egilsson), Jacek Karwan (kontrabassi) og Halldór Bjarki Árnason (semball). Lokatónleikar á Sumartónleikum í Skálholti sunnudaginn 14. júlí 2024.

Það var aftur boðið upp á veislu á Sumartónleikum í Skálholti á dögunum, að þessu sinni á lokatónleikum hátíðarinnar þetta árið, sunnudaginn 14. júlí síðastliðinn. Standardinn var hár, mjög hár. Leikin voru verk frá barokktímabilinu, klassíska tímabilinu og 20. öld.

Það var Kordó-kvartettinn sem hóf leikinn á strengjakvartett nr. 1 („Kreutzer sónötunni“) eftir tékkneska tónskáldið Leoš Janácek (1854-1928). Hann var eitt þeirra austurevrópsku tónskálda á öndverðri 20. öld sem sóttu meðal annars í þjóðlegan arf til þess að semja framsækna tónlist. Ferill Janáceks var að mörgu leyti sérstæður; hann samdi flest verka sinna orðinn býsna fullorðinn og hann vakti raunar ekki athygli utan heimabæjar síns, Brno, fyrr en með óperunni Jenufa (frumsýnd 1904). Strengjakvartett nr. 1 – Kreutzer sónötuna – samdi Janácek árið 1923, fimm árum áður en hann lést. Hann var innblásinn af samnefndri skáldsögu Leos Tolstojs (Beethoven hafði sótt í sama brunn).

Kvartettinn er í fjórum þáttum. Um er að ræða ástríðufullt verk, barmafullt af sálfræðilegum átökum (en Janácek notar líka þagnir með áhrifamiklum hætti). Þetta er í annað skipti sem ég heyri Kordó-kvartettinn leika á tónleikum og hljómurinn er giska þéttur og samhentur. Allar hendingar voru þannig skýrar og innkomur samhæfðar (vel tímasettar). Það voru líka mikil blæbrigði í leik kvartettsins (stundum veikt, stundum kraftmikið). Það er greinilegt að þau Juaquin Páll Palomares, Vera Panitch, Þórarinn Már Baldursson og Hrafnkell Orri Egilsson ná vel saman og var það meðal annars áberandi þar sem Janácek brýtur upp hæga og breiða „hljómfleka“ með stuttum, hröðum og köflum inn á milli. Verkið er vissulega sérstakt (eins og stíll Janáceks almennt er) og á margan hátt brotakennt. Flutningur Kordó-kvartettsins var sannfærandi, nema hvað í 3. og 4. bar örlítið á intónasjónvandamálum.

Violoncello da spalla er nokkurs konar lítið selló sem hljóðfæraleikari ber upp að bringu sér og hefur dimmari hljóm en venjuleg fiðla. Það var einmitt slíkt hljóðfæri sem rússnesk-ungverski fiðlu- og víóluleikarinn Sergey Malov mundaði í flutningi á aríunni „Woferne du den edlen Frieden“ úr kirkjukantötu BWV 41 eftir Johann Sebastian Bach (1685-1750). Hana samdi tónskáldið árið 1724, þá Tómasarkantor í Leipzig, til flutnings á nýársdag 2025. Þetta er gullfalleg aría (í a-moll) þar sem einsöngvari og violoncello da spalla kallast á. Það var Benedikt Kristjánsson sem söng með sinni mjúku, fallegu rödd (hann og Malov hafa meðal annars unnið saman áður á hljómdisknum Judas). Halldór Bjarki Árnason (semball) og Hrafnkell Orri Egilsson (selló) sáu um fylgibassann. Flutningur var ljómandi fínn og gaman að heyra Malov leika á þetta sjaldséða barokkhljóðfæri (að minnsta kosti hér á Íslandi).

Malov skipti yfir í nútímafiðlu þegar hann lék næst umritun á hljómborðskonserti í g-moll eftir Bach, það er að segja útgáfu á konsertinum fyrir einleiksfiðlu (BWV 1056r). Kordó-kvartettinn (ásamt þeim Halldóri Bjarka á sembal og Jacek Karwan á kontrabassa) léku með. Hljómurinn var þéttur þrátt fyrir fámenna hljómsveit og tónn Malovs flaut yfir öllu. Leikur hans (og hljómsveitarinnar) í 1. þætti var mjög dýnamískur og í anda upprunaskólans. Syngjandi og skreytt (ornamentuð) laglína 2. þáttar var falleg (þar sem Malov notaði örlítið víbrató í lok hendinga) á meðan hljómsveitin lék pizzicato undir. Þá var aftur mikil dýnamík á ferðinni í 3. kafla og ekki spillti glæsileg kadensan fyrir. Flutningurinn var afbragð.

Galant-stíll Luigis Boccherinis (1743-1805) þykir á margan hátt einfaldur en um leið stílhreinn. Fiðlukonsertinn í D-dúr (G 486) er býsna dæmigerður fyrir stíl Boccherinis. Einkar áferðarfallegur en skortir þó kannski einna helst dýpt. Sergey Malov greip aftur til violoncello da spalla og meðleikur var í höndum þeirra sömu og í fiðlukonserti Bachs. Hljómurinn hjá Boccherini er kannski ekki eins þéttur og hjá Bach en flutningurinn var stílhreinn, samtaka og fullur af blæbrigðum. Hér lék Malov með meira víbratói og spilamennska hans er á þeim standard að hann getur gert hvað sem er með hljóðfærinu. Eftir sem áður var allt smekklega fram sett, þar með taldar allar þrjár kadensurnar.

Ég sá tvenna tónleika á Sumartónleikum í Skálholti þetta árið. Þeir voru afbragð og aðstandendum til sóma. Það verður spennandi að sjá dagskrá 50 ára afmælisársins 2025.

Magnús Lyngdal Magnússon

Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í júlí 2024

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu