Beethoven.is
Fróðleikur · 6. júlí 2024

Strauss og Elektra

Tónskáld
Richard Strauss

Richard Georg Strauss fæddist í München hinn 11. júní 1864, sonur hjónanna Josephine Pschorr og Franz Strauss, en faðir hans var leiðandi hornleikari í hljómsveit Hirðóperunnar í München og prófessor við konunglega tónlistarháskólann þar í borg. Richard litli hóf formlegt tónlistarnám fjögurra ára gamall og sat snemma hljómsveitaræfingar við Hirðóperuna. Hann samdi fyrsta verkið sitt sex ára gamall og eftir að hafa gengið menntaveginn lauk hann námi 19 ára gamall, það er að segja eftir að hafa stundað nám við Háskólann í München í einn vetur 1882 til 1883. Kennarar hans höfðu að vísu mikil áhrif á hann en þungamiðjan í tónlistaruppeldinu var inni á heimilinu. Franz Strauss kenndi Richardi litla allt um Beethoven, Haydn, Mozart og Schubert svo einhver tónskáld séu nefnd.

Richard Strauss var 10 ára gamall þegar hann heyrði tónlist Wagners fyrst, það er að segja óperurnar Lohengrin og Tannhäuser. Fljótlega bættust svo Hringurinn, Meistarasöngvararnir og Tristan og Isolde við. Richard Strauss varð fyrir gríðarlegum áhrifum frá Wagner en það var föður hans til mikillar armæðu, enda var tónsmíðum hans tekið með miklum fyrirvara af Franz Strauss og hún var því ekki leikin á heimilinu. Það breytti því ekki að 19 ára gamall var Richard Strauss orðinn æfingapíanisti á Wagner-hátíðinni í Bayreuth og skömmu síðar var hann orðinn aðstoðarhljómsveitarstjóri Hans von Bülows í Meiningen.

Ferill Richards Strauss sem bæði tónskálds og hljómsveitarstjóra var glæstur. Fljótlega eftir að hann kom til Meiningen sagði Bülow starfi sínu sem tónlistarstjóri lausu og kom það í hlut Richards Strauss að feta í fótspor hans. Meðal þess sem hann fékkst við var að undirbúa hljómsveitina fyrir frumflutning á fjórðu sinfóníu Brahms, sem Brahms stjórnaði sjálfur. Gamli maðurinn hlýddi svo á verk Strauss og gaf hinu unga tónskáldi föðurlegar ábendingar um hvað mætti betur fara í tónsmíðunum.

Árið 1885 bast Richard Strauss vináttuböndum við tónskáldið Alexander Ritter. Sá hinn síðarnefndi var kvæntur frænku Wagners og hann hvatti Strauss til þess að breyta um stíl, draga úr íhaldssemi í verkum sínum og horfa frekar til þeirra Wagners og Franz Liszts („nýþýska skólans“), sem Strauss og gerði. Áhrifa beggja tónskálda gætir enda í verkum sem Strauss samdi í framhaldinu, svo sem tónaljóðunum en kannski ekki hvað síst óperunum sem síðar fylgdu.

Strauss stjórnaði víða hljómsveitum og lagði stund á tónsmíðar jöfnum höndum. Hann fluttist frá Meiningen til Hirðóperunnar í München (nú Ríkisóperan í München) árið 1886 en sú vist reyndist örðug. Fjárhagserfiðleikar óperunnar urðu til þess að æfingatími var skorinn niður og Strauss var oft fenginn til þess að stjórna verkum á síðustu stundu, illa æfðum og flutningurinn var eftir því. Strauss stjórnaði hins vegar víðar við góðan orðstír og árið 1887 hitti hann Gustav Mahler í fyrsta skipti og varð þeim vel til vina. Stuttu síðar kynntist Strauss eiginkonu sinni, Paulinu Ahna, hæfileikaríkri söngkonu sem átti eftir að hafa mikil áhrif á feril hans.

Árið 1894 var fyrsta ópera Strauss, Guntram, frumflutt en hún hlaut slæmar viðtökur. Skömmu áður höfðu aftur á móti tónaljóð á borð við Don Juan (1889) og Tod und Verklärung (1890) slegið rækilega í gegn og skotið Strauss upp á stjörnuhimininn. Strauss stjórnaði fyrst á Wagner-hátíðinni í Bayreuth árið 1895 og frá svipuðum tíma eru til að mynda tónaljóðin Ugluspegillinn, Also sprach Zarathustra og Don Kíkóti.

Árið 1898 var Strauss ráðinn listrænn stjórnandi við Ríkisóperuna í Berlín og gegndi þeirri stöðu í 15 ár. Hann var þá orðinn eftirsóttur gestastjórnandi víða um heim og heimsþekkt tónskáld. Nú fóru óperur hans að vekja verðskuldaða athygli og Salóme (1905) sló í gegn – þó að hún fengist hvorki flutt í Bretlandi né Bandaríkjunum. Vakti bannið hins vegar enn meiri athygli á verkinu en það er reist á samnefndu leikriti Oscars Wildes. Nú fór í hönd óperutímabil á tónskáldaferli Strauss og nutu verk hans gríðarlegra vinsælda og voru flutt um allan heim, þ.e.a.s. þau sem ekki voru bönnuð í öndverðu.

Ekki verður skilið við Richard Strauss án þess að geta um samband hans við Þriðja ríkið. Hitler hafði séð Salóme árið 1907 og hrifist og auðvitað vildu skósveinar hans nýta sér frægð Strauss. Vandamálið var bara að tónskáldið hafði lítinn áhuga á pólitísku vafstri – en hann hafði hins vegar áhuga á að koma verkum sínum á framfæri. Strauss hafði líka mikilla hagsmuna að gæta, enda voru tengdadóttir og barnabarn af gyðingaættum. Eftir sem áður tók Strauss við stöðu forseta tónlistardeildar Þriðja ríkisins (Reichsmusikkammer) úr hendi Josephs Göbbels. Strauss efndi þó til samstarfs til Stefan Zweig, sem var af gyðingaættum, og kostaði það óvild stjórnvalda. Fleira kom til þess að Strauss varð áhrifalaus í þessari forsetastöðu sinni og raunar litinn hornauga af ráðamönnum. En það breytti því ekki að í lok stríðsins stóð hann uppi snauður og rúinn trausti sem aldrei fékkst aftur, þrátt fyrir tónsmíðar á borð við til að mynda tónaljóðið Metamorphosen (1945) og Vier letzte Lieder (1948). Strauss lést í München hinn 8. september 1949.

Köfum aðeins dýpra í eitt verka Strauss, en sjálfsagt er leitun að jafn áhrifamikilli byrjun á nokkurri óperu – eða yfir höfuð tónverki – og upphafinu á Elektru. Í sjálfu sér er þetta sáraeinfalt stef, þrjár nótur úr d-moll þríhljómi, en þegar það er leikið af risavaxinni hljómsveit í fortissimo (ff) er ekki laust við að það fari pínulítið um hlustendur. Og það sem meira er, þá gefur þetta stef vísbendingu um það sem koma skal – verkið er uppfullt af ofbeldi.

Það er ríflega öld síðan Elektra eftir Richard Strauss var frumflutt í Dresden, nánar tiltekið hinn 25. janúar 1909. Þetta var fyrsta óperan sem Strauss samdi við texta austurríska skáldsins Hugos von Hofmannstahls en samstarf þeirra átti eftir að geta af sér verk á borð við Die Frau ohne Schatten, Der Rosenkavalier og Ariadne auf Naxos svo einhver séu nefnd.

Strauss sá uppfærslu Max Reinhardts á leikgerð Hofmannstahls á gríska harmleiknum Elektru í Berlín í nóvember 1905 og talið er víst að tónskáldið hafi þá þegar séð verkið fyrir sér sem óperu. Strauss vann aftur á móti á þessum tíma að öðru verki, að mörgu leyti keimlíku Elektru, sem var frumflutt í Dresden ári síðar, það er að segja 1906. Þar kyssti prinsessan Salóme höfuð Jóhannesar skírara en í Elektru eggjar samnefnd konungsdóttir systkini sín til hefnda eftir föður þeirra, Agamemnon.

Titilhlutverk Elektru er risastórt, skrifað fyrir dramatískan sópran sem er nánast allan tímann á sviðinu – það er að segja í um það bil klukkutíma og þrjú korter. Það er þó ekki bara lengdin sem gerir hlutverkið erfitt því hljómsveitin er gríðarlega stór og það þarf snjallan hljómsveitarstjóra til þess að drekkja ekki söngvurunum á sviðinu. Fiðlurnar og víólurnar eru þrískiptar og á einum stað mynda þrjú fremstu púltin í 1. fiðlu fjórða fiðlupartinn. Raddskráin gerir enn fremur ráð fyrir t.a.m. átta klarínettum, átta hornum, sex trompetum og allt að níu slagverksleikurum, sem gefur nokkra mynd af þeim fjölda hljóðfæraleikara sem söngvararnir þurfa að fleyta sér yfir. Það þarf því ekki að koma sérstaklega á óvart að hljómsveitin á það til að drekkja söngvurum á sýningum í óperuhúsum og Elektra er afar vandasamt verk í flutningi.

Þegar óperan hefst hefur Agamemnon konungur í Mýkenu verið ráðinn af dögum; hann var á brott í um áratug og fór fyrir herjum Grikkja í Trójustríðinu. Í millitíðinni tók eiginkona hans, Klýtemnestra, sér elskhuga að nafni Ægisþos og í sameiningu afréðu þau að myrða Agamemnon við heimkomuna. Þannig rændu þau völdum og dætur Klýtemnestru og Agamemnons, Elektra og Krýsóþemis, búa í kjölfarið við þröngan kost. Bróðir þeirra Órestes er horfinn og talinn af.

Hofmannstahl styðst hér við harmleik Sófóklesar en í leikgerð Austurríkismannsins er Elektra tákngervingur hefndarinnar; hún eggjar systur sína til að hefna föðurins og ráða Klýtemnestru og friðil hennar af dögum. Áður en þær systur ná að gera alvöru úr fyrirætlunum sínum – eða öllu heldur fyrirætlunum Elektru því hún hefur lítið álit á hugrekki systur sinnar – dúkkar Órestes svo upp. Elektra segir honum allt af létta og hann gengur hreint til verks og myrðir bæðir móður sína, Klýtemnestru og Ægisþos. Að því loknu dansar Elektra sigurdans í fullkominni hugarsturlun áður en hún fellur örend niður.

Magnús Lyngdal Magnússon

Greinin birtist í Morgunblaðinu í júlí 2024

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu