Þegar ónærgætin keyrsla leysir túlkun af hólmi
- Tónskáld
- Gustav Mahler
- Flytjendur
- Christina Bock
- Kór, hljómsveit, stjórnandi
- Vox feminae, Kammerkórinn Aurora, Stúlknakór Reykjavíkur, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Eva Ollikainen
Mahler nr. 3 á Listahátíð í Reykjavík
★★½
Tónlist: Gustav Mahler (Sinfónía nr. 3). Texti: Friedrich Nietzsche (Miðnæturljóð Zaraþústra) og brot úr þjóðkvæðasafninu Töfrahorn drengsins (Des Knaben Wunderhorn). Einsöngvari: Christina Bock. Kórar: Vox feminae (kórstjóri: Stefan Sand), Kammerkórinn Aurora (kórstjóri: Sigríður Soffía Hafliðadóttir) og Stúlknakór Reykjavíkur (kórstjóri: Margrét Pálmadóttir). Sinfóníuhljómsveit Íslands. Konsertmeistari: Sigrún Eðvaldsdóttir. Stjórnandi: Eva Ollikainen. Tónleikar í Eldborg Hörpu á Listahátíð í Reykjavík fimmtudaginn 6. júní 2024.
Um og upp úr miðri 19. öld var deilt um sinfóníuformið í hinum þýskumælandi heimi, deilur sem oft eru kenndar við hinn „nýþýska skóla“. Eftir fráfall Felix Mendelssohns (d. 1847) og Roberts Schumanns (d. 1856) fengust enda fáir við formið og tónskáld á borð við Richard Wagner taldi sinfóníuna raunar hafa átt sína dýrðarstund með níundu sinfóníu Beethovens; eftir það yrði hvorki hægt að þróa formið áfram né gera á nokkurn hátt betur. Vildi hann því brydda upp á nýjungum í stíl og formi. Þessu voru íhaldssamari tónskáld sannarlega ósammála og fór þar fremstur í flokki Johannes Brahms. Hann samdi fjórar sinfóníur um dagana og blés þannig lífi í formið á nýjan leik. Í kjölfarið fylgdu svo önnur tónskáld eins og Anton Bruckner en ekki síst Gustav Mahler sem með níu fullgerðum sinfóníum teygði og togaði á sinfóníuforminu svo um munaði, raunar svo mikið að verk hans urðu að nokkurs konar endastöð sinfóníuhefðar hins þýskumælandi heims. Kom það í hlut tónskálda annars staðar að en frá Þýskalandi eða Austurríki að halda merkjum sinfóníunnar á lofti, svo sem Jeans Sibeliusar í Finnlandi en líka Dmitríjs Shostakovitsj í Sovétríkjunum.
Verk Mahlers, sem fæddist árið 1860 í þorpinu Kalište á svæði sem nú tilheyrir Tékklandi en heyrði þá undir Austurríska keisaradæmið, mynda nokkurs konar brú frá rómantík yfir í módernisma í tónlistarsögunni. Hann var sannarlega rómantíker að því leyti að verk hans tjá djúpar tilfinningar og vekja mikil áhrif en þau eru stór í sniðum og hefur hugtakið „maxímalismi“ stundum verið notað til þess að lýsa módernismanum sem hann tilheyrði. Ekkert verka Mahlers er stærra í sniðum en áttunda sinfónían (1906), sem kallar á ókjör flytjenda, en lengst sinfónía tónskáldsins er hún ekki. Það er þriðja sinfónían (1893-1896), sem raunar er lengsta sinfónían sem kemur reglulega fyrir á efnisskrám sinfóníuhljómsveita um heim allan. Hún er í sex þáttum og kallar á stóra hljómsveit, mezzósópran og kóra. Flutningur þriðju sinfóníu Mahlers tekur um hálfan annan tíma (fer eftir því hver er að stjórna) og kallar á gríðarlegt úthald, ekki síst hjá málmblásurum. Það stóð því mikið til þegar Sinfóníuhljómsveit Íslands flutti verkið á Listahátíð í Reykjavík hinn 6. júní síðastliðinn.
Tónskáldaferli Mahlers er stundum skipt í þrjá hluta og nær sá fyrsti fram til ársins 1901 og til hans heyra kantatan Das klagende Lied, lagaflokkarnir Lieder eines fahrenden Gesellen (Söngvar förusveins, 1884-1885) og lög við vísur úr þjóðkvæðasafninu Des Knaben Wunderhorn (Töfrahorn drengsins, 1892-1901), auk sinfónía númer eitt til fjögur. Í síðasttöldu verkunum nýtti Mahler sér einmitt lögin sem hann hafði samið en í tilviki þriðju sinfóníunnar sækir tónskáldið meðal annars í brunn Des Knaben Wunderhorn, það er að segja í fimmta kafla sinfóníunnar. Hér áður fyrr var það aðeins á færi bestu hljómsveita heims að flytja sinfóníur Mahlers, hugsanlega að þeirri fjórðu frátalinni (sem er minnst í sniðum). Eftir því sem hljómsveitir hafa orðið tæknilega betri er Mahler nú reglulega á efnisskrá fjölmargra þeirra og Sinfóníuhljómsveit Íslands er ein þeirra sem leika verk tónskáldsins jöfnum höndum. Þetta var í þriðja skiptið sem hljómsveitin flutti þriðju sinfóníu Mahlers og í öll skiptin voru það finnskir hljómsveitarstjórar sem héldu á tónsprotanum, fyrst Petri Sakari (árið 2000), svo Osmo Vänskä (árið 2014) og loks Eva Ollikainen. Þetta var líka þriðja Mahler-sinfónían sem ég heyri Ollikainen stjórna í Hörpu en áður hafði ég heyrt hana stjórna fyrstu og fimmtu sinfóníunum. Túlkun hennar á þeim verkum var slök og því miður var það sama upp á teningnum að mestu leyti nú þegar þriðja sinfónían fékk að hljóma.
Fyrsti þátturinn í þriðju sinfóníu Mahlers er lengsti einstaki sinfóníuþátturinn sem tónskáldið samdi og hann er jafnframt sá erfiðasti í flutningi og túlkun. Eva Ollikainen gerði raunar vel í þessum þætti, hélt honum þétt saman (sem er ekki auðvelt) og mótaði býsna smekklega. Þá gaf hún hljómsveitinni nokkurt frelsi og leyfði henni að „blása út“ þar sem við á, til að mynda undir lok þáttarins þar sem Mahler skrifar einmitt „Mit höchster Kraft“. Tempó voru skynsamlega valin, enda tók þátturinn rétt rúmar 33 mínútur í flutningi sem er mjög það sem gengur og gerist almennt. Blásarar (tré og málmur) áttu stórleik, ekki síst Jón Arnar Einarsson (básúna), Joris De Rijbel (trompet) og hornin átta undir forystu Stefáns Jóns Bernharðssonar. Enn vantar hins vegar nokkuð upp á fyllingu í strengjahljóm hljómsveitarinnar en hljómurinn var giska þunnur á stöku stað í fyrsta þætti sinfóníunnar og víðar (átta kontrabassar gáfu hins vegar góðan botn).
Vandamálin í túlkun Ollikainen hófust hins vegar strax í öðrum þætti. Þá fór enn á ný að bera á því sem vill brenna við hjá henni, gegndarlausri og ónærgætinni keyrslu; fyrir vikið liggja öll blæbrigði í raddskránni í valnum. Intónasjón var líka slæm í fyrstu fiðlu á stöku stað í öðrum þætti (og það sama var raunar upp á teningnum í þriðja þættinum) en það var aðallega stíf og klínísk keyrsla Ollikainen sem var vandamálið.
Það er stundum haft á orði að til þess að kunna skil á Mahler þurfi maður að þekkja verk Schuberts vel en fyrir áratugum komst þýski hljómsveitarstjórinn Otto Klemperer, sem sjálfur kynntist Mahler lítillega, svo að orði að í verkum Mahlers birtist einmitt maður sem „sakni“ Schuberts. Hvergi eru þessi tengsl nánari í þriðju sinfóníunni en einmitt í menúettinum, það er að segja öðrum þætti. Þar fór Einar Jónsson á kostum á pósthorninu, í sólói sem leikið er í fjarska og er mjög berskjaldað. Hér vitnar Mahler raunar í spænskan dans, jota aragonesa, ekki ósvipað því sem bæði Glinka og Liszt höfðu gert áður, en áhrifin á Mahler hvað laglínu pósthornsins varðar eru sennilega komin frá Busoni.
Mezzósópranparturinn í fjórða og fimmta þætti er kannski ekki viðamikill í töktum talið en hann er gullfallegur. Hann söng Christina Bock mjög vel, ekki síst upphafið, „O Mensch! Gib Acht!“, það er að segja Miðnæturljóð Nietzsches og í fimmta þætti voru sameinaðir kórar fínir í broti úr Des Knaben Wunderhorn.
Aðalvonbrigði tónleikanna – og þau voru mikil satt best að segja – var hins vegar sjötti og síðasti þáttur sinfóníunnar. Mahler endar verkið á hægum kafla en slíkt var óvenjulegt um hans daga og raunar hafði bara Tsjajkovskíj gert slíkt hið sama nokkru áður, það er að segja í sjöttu sinfóníu sinni. Lokakafli Mahlers er hins vegar eitthvað það allra fallegasta sem hann samdi nokkru sinni og býður raunar upp á nokkuð breitt val þegar kemur að tempói (Mahler gefur raunar fyrirmæli í upphafi um að kaflinn skuli leikinn hægt, „langsam – ruhewoll – empfunden“ eða „hægt – kyrrlátt – með djúpri tjáningu“). Ollikainen kaus hins vegar að „keyra“ kaflann í gegn á sléttum 20 mínútum, sem er nálægt því að vera hraðamet. Ekki bara það, tónlistin fékk lítið sem ekkert að anda. Það var farið á hundavaði yfir alla kórala og tilvitnunin í Nietzsche („Tief ist ihr Weh!“) fór fyrir ofan garð og neðan (hún hefst tveimur töktum á undan æfinganúmerinu 20 í raddskránni).
Sinfóníuhljómsveit Íslands lék þriðju sinfóníu Mahlers býsna vel tæknilega séð, sérstaklega blásarar sem áttu margir hverjir mjög músíkalska einleiksspretti. Þannig vill til að ég sá flutninginn á sama verki með hljómsveitinni, bæði 2000 og 2014, og á þeim aldarfjórðungi sem liðinn er frá því að þriðja sinfónía Mahlers var fyrst flutt hér á landi (þá í Háskólabíói) hefur Sinfóníuhljómsveit Íslands tekið stórstígum framförum svo ekki sé fastar að orði kveðið. Svona erfitt verk varpar hins vegar ljósi á bæði styrkleika og veikleika þeirra hljómsveita sem það flytja og í mörgu tilliti stendur Sinfóníuhljómsveit Íslands býsna framarlega, ekki þó alveg öllu. Hins vegar má alls ekki rugla tæknilega góðum flutningi saman við slaka, ónærgætna keyrslu. Það var því miður að mestu leyti raunin á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu 6. júní síðastliðinn. Þar er ekki við hljóðfæraleikara (og aðra flytjendur) að sakast, heldur stjórnandann.
Magnús Lyngdal Magnússon
Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í júní 2024