Beethoven.is
Gagnrýni · 11. júní 2024

Seigfljótandi hreyfingar í alrými Hörpu

Tónskáld
Anna Þorvaldsdóttir
Kór, hljómsveit, stjórnandi
Sinfóníuhljómsveit Íslands, Eva Ollikainen

METAXIS

★★★★★

Tónlist: Anna Þorvaldsdóttir. Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hljómsveitarstjórar: Eva Ollikainen og Ross Jamie Collins. Tónleikar í alrými Hörpu á opnunarhátíð Listahátíðar í Reykjavík 1. júní 2024.

Listahátíð í Reykjavík var sett á dögunum og eitt af opnunaratriðum hennar var heimsfrumflutningur á nýju verki eftir Önnu Þorvaldsóttur, METAXIS. Sjálf lýsir Anna verkinu sem innsetningu fyrir tvístraða hljómsveit og rými. Þar var Sinfóníuhljómsveit Íslands skipt upp í nokkra misstóra hljóðfærahópa og komu þeir sér fyrir á mismunandi stöðum í hinu opna rými Hörpu. Áheyrendum gafst þannig einstakt tækifæri til þess að kanna tónlistina á virkan hátt út frá ólíkum sjónarhornum, til að mynda með því að ganga um og finna hvernig upplifun tónlistarinnar breytist við hvert fótmál. Í sem stystu máli má segja að hver og einn hlustandi hafi komist í einstakt samband við grundvallaratriði tónlistar Önnu, það er að segja lagskiptingu hennar, flæði tónefnisins og enduróm rýmisins. Hljóðfæraleikararnir voru dreifðir um ólíkar hæðir hússins og blönduðust með margvíslegum hætti.

Það er stundum sagt að arkítektúr sé „frosin“ tónlist og tónlist sé þar af leiðandi „fljótandi“ arkítektúr en Anna Þorvaldsdóttir byggir mörg verka sinna upp með svipuðum hætti. Hún er eitt fremsta tónskáld samtímans en verk hennar beisla krafta eða réttar sagt frumkrafta og birtingarmyndin er einstakt tónmál. Hljóðheimur Önnu er þannig engu líkur en hún dregur upp ákveðna mynd í verkum sínum, hvort sem er í lágstemmdu og örfínu tónmáli eða risavöxnum hendingum. Hún nýtir ávallt hljómsveitina til hins ýtrasta.

Í METAXIS mátti til að mynda heyra taktfast upphaf áður en blásarar bættust við. Eftir eilítið atónal upphaf tóku svo við óræðar hreyfingar yfir pedaltóni í hægum fjórskiptum takti. Þá byggði Anna smám saman upp spennu sem leystist úr læðingi með undurfallegu, hægfara stefi (gott ef hún vitnaði ekki í eigið verk, Heyr þú oss himnum á) sem hljómaði undir taktföstum trommuslætti uns yfir lauk. Þannig var um seigfljótandi hreyfingar að ræða sem blönduðust vel í alrýminu. Hljómurinn var ávallt þéttur og Evu Ollikainen fórst hljómsveitarstjórn vel úr hendi en hún naut í þeim efnum dyggrar aðstoðar frá Ross Jamie Collins.

Ég naut þess að standa á efstu svölum í upphafi verksins og fikra mig svo hægt og rólega niður á jarðhæð meðan á flutningi stóð. Kannski er einfaldast að líkja upplifun minni við það að virða fyrir sér landslag úr ólíkum áttum en mér fannst ég alltaf „sjá“ og heyra eitthvað nýtt eftir því hvar ég stóð. Sinfóníuhljómsveit Íslands lék líka vel og naut frelsisins (bogastrok voru til að mynda ekki samhæfð). Allt myndaði þetta eina heild þannig að úr varð ógleymanleg innsetning.

Magnús Lyngdal Magnússon

Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í júní 2024

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu