Beethoven.is
Gagnrýni · 8. júní 2024

„Rödd aldarinnar“

Tónskáld
Edvard Grieg, Giacomo Puccini, Giuseppe Verdi, Jean Sibelius, Richard Wagner, Franz Schubert, Franz Lehár, Frederick Loewe
Flytjendur
Lise Davidsen, James Baillieu

Lise Davidsen á Listahátíð í Reykjavík

★★★★★

Tónlist: Edvard Grieg, Giacomo Puccini, Giuseppe Verdi, Jean Sibelius, Richard Wagner, Franz Schubert, Franz Lehár og Frederick Loewe. Einsöngvari: Lise Davidsen. Píanóleikari: James Baillieu. Tónleikar í Eldborg Hörpu á Listahátíð í Reykjavík 1. júní 2024.

Hinn 1. júní síðastliðinn gengu landsmenn að kjörborðinu og kusu konu sem næsta forseta lýðveldisins í annað skiptið í sögunni. Þannig háttar til að þegar kona var kjörin í embættið í fyrsta skipti, það er að segja í júní 1980, kom stórsöngvarinn Luciano Pavarotti fram á Listahátíð í Reykjavík. Kvöldið sem tónleikarnir voru haldnir (í Laugardalshöll) fóru fram kappræður forsetaframbjóðenda í Ríkissjónvarpinu og kusu landsmenn frekar að sitja heima og virða fyrir sér umræðurnar en að fjölmenna á Pavarotti, enda var ekki uppselt. Mér datt þetta í hug vegna þess að þegar norska sópransöngkonan Lise Davidsen, sem syngur jöfnum höndum á Scala, Metrópólítan, Covent Garden og í Bayreuth, kom fram á Listahátíð í Reykjavík á síðastliðinn kjördag reyndist ekki uppselt. Landsmenn virtust frekar vilja sitja heima og bíða eftir fyrstu tölum. Þeir misstu af miklu, mjög miklu.

Davidsen, sem er á föstum samningi hjá forleggjaranum Decca, og píanóleikarinn James Baillieu buðu upp á veislu í Eldborgarsal Hörpu. Efnisskráin var fjölbreytt og raunar var ég pínulítið hissa á breiddinni sem hún fól í sér, allt frá viðkvæmum sönglögum upp í dramatískar óperuaríur. Sannast sagna gerðu þau allt vel og eiginlega miklu meira en það.

Fyrir hlé rammaði Davidsen inn þrjár spinto-aríur (eina eftir Puccini og tvær eftir Verdi) með sönglögum eftir Grieg og Sibelius. Í fyrstu þremur Grieg-lögunum skalaði Davidsen röddina til, það er að segja sýndi fram á að hún getur sungið undurblítt með þessu risastóra hljóðfæri sem hún býr yfir frá náttúrunnar hendi. En að sama skapi sýndi hún fram á ægikraft í „Sola, perduta abbondana“ úr Manon Lescaut eftir Giacomo Puccini en ekki síst í „Morrò, ma prima in grazia“ úr Grímudansleiknum eftir Giuseppe Verdi. Liturinn á röddinni í upphafi beggja aría var svartur og raunar sýndi Davidsen fram á ótal litbrigði á tónleikunum. Maríubænin (Ave Maria) úr lokaþætti Otello eftir Verdi var líka frábærlega flutt, uppfull af næmi og loka as-ið (10. taktur eftir bókstafinn „T“ í raddskránni) var ótrúlegt, afar veikt en barst um allan sal. Þessu fylgdi Davidsen eftir með fjórum sönglögum eftir Jean Sibelius, öll einstaklega vel flutt, ekki síst „Svarta rosor“ sem var síðasta verkið fyrir hlé.

Eftir hlé bauð Davidsen gesti velkomna með aríu Elísabetar úr öðrum þætti Tannhäuser, „Dich, teure Halle“, og gerði það stórkostlega. Svo sneri hún sér að Schubert og fylgdi fjórum sönglögum hans úr hlaði með því að segjast vera pínulítið hrædd við að flytja verk tónskáldsins. Sá ótti reyndist algjörlega ástæðulaus, enda var flutningur þeirra Davidsen og Baillieus ekki bara fallegur og músíkalskur, heldur allur á dýptina. Textaframburður var framúrskarandi og Davidsen var allan tímann að „segja frá“. Ég vil eiginlega ekki gera upp á milli þessara fjögurra Schubert-laga sem þau fluttu en „Litanei auf das Fest Allerseelen“ (D. 343) var gullfallegt, fallega mótað og raunar ógleymanlegt (það sama má raunar segja um „Álfakónginn“ og „Grétu við rokkinn“). Sönglögin fimm eftir Richard Strauss voru líka öll á dýptina en fegurðin sem býr í „Morgen“ (op. 27) er slík að halda mætti að Strauss hafi fengið símtal af himnum ofan þegar hann samdi það.

Undir lokin bauð Davidsen upp á flugeldasýningu, annars vegar með aríu eftir Lehár og ekki síst frægasta númerinu úr My Fair Lady, „I Could Have Danced All Night“. Þessu öllu saman var fagnað af innlifun og fengu áheyrendur að heyra „Vissi d'arte“ úr öðrum þætti Toscu eftir Puccini sem aukalag (í lúshægu tempói).

Eins og fyrr segir buðu þau Lise Davidsen og James Baillieu upp á veislu hinn fyrsta dag júnímánaðar síðastliðinn. Samband þeirra var náið alla tónleikana og Baillieu er afburða píanisti, næmur og andaði vel með Davidsen. Tækni hennar var líka þannig að allt hljómaði eins og hún væri að drekka vatn (toppur, botn, stuðningur, öndun) og Davidsen hefur einstakt lag á að móta hendingar og segja sögu með flutningi sínum. Röddin er vissulega risastór en hún hefur líka lag á að láta veiku tónana berast um allt og textaframburður var alltaf afar skýr.

Stórblaðið New York Times lýsti Davidsen sem „rödd aldarinnar“ og það ekki að ófyrirsynju. Sá hæfileiki að geta sungið bæði Wagner (dramatík) og Schubert (ljóðasöngur) er bara alls ekki öllum gefinn, sérstaklega þegar röddin er svona stór. Sumir hafa freistast til þess að bera Davidsen saman við aðra sópransöngkonu, það er að segja samlöndu hennar, Kirsten Flagstad. Fyrir mér hefur Davidsen miklu meiri breidd sem minnir um margt á þá breidd og dýpt sem kanadíski tenórsöngvarinn Jon Vickers hafði.

Hvað um það, þetta voru stórkostlegir tónleikar!

Magnús Lyngdal Magnússon

Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í júní 2024

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu