Beethoven.is
Fróðleikur · 23. maí 2024

Ópera byggð á ósiðlegu leikriti

Tónskáld
Giuseppe Verdi

Leikrit Victors Hugos (sem fæddist árið 1802 og lést 1885), Kóngurinn skemmtir sér (Le Roi s‘amuse), var frumflutt við Comédie-Française-leikhúsið í París árið hinn 22. nóvember 1832 við dræmar undirtektir. Fór þar saman illa æfð sýning og saga sem fór fyrir brjóstið á áhorfendum. Strax daginn eftir var leikritið bannað, þótti enda ósiðlegt þar sem það fjallaði um flagara á konungsstóli, François I. Undir lok ársins, það er að segja seint á árinu 1832, var leikritið hins vegar prentað og komst þannig í dreifingu. Prentaðri gerð fylgir formáli eða öllu heldur varnarræða höfundarins. Leikritið komst þó ekki aftur á fjalirnar í París fyrr en hálfri öld síðar, það er að segja 1882, en þá höfðu Parísarbúar skemmt sér konunglega í hartnær 30 ár yfir óperu byggðri á verkinu. Nefnilega Rigoletto eftir ítalska tónskáldið Giuseppe Verdi (1813-1901).

Við vitum hins vegar ekki hvenær Verdi komst fyrst í tæri við prentaða gerð leikritsins en getum slegið því sem föstu að hann sá það ekki flutt á sviði. Verdi hafði samið óperuna Ernani við leikriti Hugos árið 1844 sem hlaut afar góðar viðtökur. Þegar hann hóf að leita sér að yrkisefni í næstu óperu – sem á endanum varð I due Foscari – kom margt til álita en hvergi í bréfum sínum nefnir hann leikrit Hugos, Kóngurinn skemmtir sér. Þegar hann vann hins vegar að óperunni Luisu Miller (sem frumflutt var árið 1849) minnist hann stuttlega á leikritið í bréfi, dagsettu 7. september 1849, til textahöfundarins Salvatores Cammaranos. Ekki liðu nema átta mánuðir uns Verdi skrifar textahöfundinum Francesco Maria Piave í bréfi, dagsettu 28. apríl 1850, að hann hafi leikritið í huga sem yrkisefni næstu óperu. Þá átti Verdi í samingaviðræðum við La Fenice-leikhúsið í Feneyjum um uppfærslu á nýju verki.

Samstarf þeirra Verdis og Piaves hafði gengið með ágætum í vinnunni við Ernani og þá var leikrit Victors Hugos lagt til grundvallar eins og áður er nefnt. Mátti því ekki búast við stormandi lukku með svipað samtarf á nýjan leik? En málið var ekki svo einfalt. Norður-Ítalía var á þessum tíma undir stjórn Austurríkismanna og ritskoðendur þar féllust ekki á hugmyndina; leikritið þótti enn of ósiðlegt. Verdi og Piave reyndu þó ýmislegt til þess að ýta málinu áfram; titlinum var meðal annars breytt í Bölvunina (La maledizione) en endaði sem Rigoletto. Kóngurinn var lækkaður í tign og varð hertogi og verkið var fært frá París til Mantuva, hertogalaust hertogasvæði á yfirráðasvæði Austurríkis. Persónur fengu líka ný nöfn: Hirðfíflið hét Triboulet í leikriti Hugos en varð nú Rigoletto og dóttir hans, Blanche, varð Gilda. Kjarninn í verkinu stóð þó eftir.

Fyrir rúmum þrjátíu árum skrifaði tónskáldið Atli Heimir Sveinsson eftirfarandi texta um Rigoletto:

„[Óperan] … fjallar um hirðfífl sem hefur drepið í sjálfum sér sinn betri mann – í atvinnuskyni. Það er ekki örugg staða að vera hirðfífl. Hylli húsbóndans er fallvölt. Rigoletto hefur það að atvinnu að vera illgjörn og smjaðrandi rógstunga. Þannig þykist hann þóknast herra sínum. En hann hefur byggt sér annan heim, vandlega verndaðan. Þar á hann skjól í nöprum stormi lífs síns, hjá dóttur sinni, sem er tákn gæsku, fegurðar og sakleysis. Örlögin haga því svo að hann tortímir þessum heimi, verður dóttur sinni að bana. Hann einn á sökina.“

En hvað var svona ósiðlegt við söguna? Óperur fjalla gjarnan um svik og morð og jafnvel morð á konungum. Það sem greinir Rigoletto frá öðrum verkum samtímans er einmitt siðleysi titilpersónunnar, það risti dýpra en áður hafði sést og heyrst. Í öðrum verkum var hægt að greina á milli dyggðar og illverka en hér renna þessi tvö atriði saman. Meira að segja Gilda er ekki bara saklaus – hún syndgar líka. Það býr mikil þversögn í karakterum verksins og það gekk gegn fyrri venjum.

Það er kannski erfitt fyrir okkur á 21. öldinni að skilja mótbárur yfirvalda. Þá er þess að gæta að á tíma Verdis (og raunar lengur) ríkti íhaldssemi sem birtist meðal annars í því að allt sem gat komið róti á samfélagið var litið hornauga. Það er því ekki skrítið þegar Verdi skrifar Piave í apríl 1849 eitthvað á þá leið: „Ég er með í huga efni, ef yfirvöld þá á annað borð fallast á það, sem er einhver mesta listsköpun nútímaleikhúss. Það er stórfenglegt, mikilfenglegt og hefur á að skipa karakter sem er einhver sá best skapaði í sögunni. Sagan er Kóngurinn skemmtir sér og karakterinn er Triboulet“; hann varð vitanlega að Rigoletto.

Samningar við leikhúsið og yfirvöld tókust í janúar 1851 og þá var unnið hratt. Verdi hafði að vísu byrjað að semja tónlistina nokkru áður og raddskráin lá að mestu fyrir í febrúar 1851, réttum mánuði fyrir frumsýninguna. Búið var að leggja drög að leikmynd og söngvarar fengu sumt af pörtunum sínum hinn 7. febrúar en þó alls ekki allt. Æfingar hófust hinn 19. febrúar og Verdi hélt áfram að fullgera hljómsveitarútsetninguna fram á síðustu stundu. Með hlutverk Rigolettos fór Felice Varesi en hann hafði meðal annars frumflutt hlutverk Macbeths í samnefndri óperu Verdis nokkrum árið 1847. Raffaele Mirate söng hertogann og Teresa Brambilla fór með hlutverk Gildu. Verdi lagði mikla áherslu á að farið væri leynt með verkið á meðan á æfingum stóð, einkum og sér í lagi tónlistina sem tilheyrði hertoganum. Þannig var Mirate bannað að raula opinberlega nokkuð sem tengdist hlutverkinu og þá sérstaklega „La donna è mobile“.

Óperan Rigoletto var frumflutt hinn 11. mars árið 1851 fyrir stappfullu La Fenice-leikhúsinu í Feneyjum. Verkið sló eftirminnilega í gegn og þá ekki síst arían „La donna è mobile“ sem heyrðist sungin á götum úti dagana á eftir. Óperan var sýnd þrettán sinnum og tekin til sýninga á nýjan leik á næsta leikári. Hún fór svo sigurför um Ítalíu og ári síðar höfðu öll helstu leikhús landsins tekið hana til sýninga, að vísu stundum undir öðru heiti til þess að þóknast yfirvöldum, heitum á borð við Viscardello, Lionello og Clara de Perth. Frá og með árinu 1852 fór verkið svo sigurför um heiminn og var tekið til sýninga í bæði Norður- og Suður-Ameríku auk allra helstu staða í Evrópu. Þetta var mikil sigurganga fyrir Verdi, sem var löngu orðinn þjóðhetja á Ítalíu, og á eftir fylgdu svo Il trovatore og La traviata þó seinna verkið hafi að vísu kolfallið á frumsýningarkvöldinu en það er önnur saga.

Rigoletto hefur allar götur frá frumsýningarkvöldinu haldið vinsældum sínum og er önnur mest flutta Verdi-óperan í heiminum á eftir La traviata. Sem dæmi má nefna að hún var áttunda mest flutta ópera heimsins leikárið 2018 til 2019 (það er að segja fyrir heimsfaraldur kórónuveirunnar) en þá var hún flutt 597 sinnum í 124 uppfærslum. Hún var síðast sett á svið hjá Íslensku óperunni árið 2010.

Magnús Lyngdal Magnússon

Greinin birtist í Morgunblaðinu í maí 2024

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu