„Sín hvor“ hljómsveitin fyrir og eftir hlé
- Tónskáld
- Wolfgang Amadeus Mozart, Richard Strauss
- Flytjendur
- Marianna Shirinyan, Jan Söderblom
- Kór, hljómsveit, stjórnandi
- Sinfóníuhljómsveit Íslands, Eva Ollikainen
Harpa Eva og Marianna
Mozart ★★★★★
Strauss (Burleske) ★★★★
Strauss (Tod und Verklärung) ★★
Tónlist: Wolfgang Amadeus Mozart (sinfónía nr. 41) og Richard Strauss (Burleske og Tod und Verklärung). Einleikari á píanó: Marianna Shirinyan. Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórnandi: Eva Ollikainen. Konsertmeistari (og stjórnandi í Mozart): Jan Söderblom. Tónleikar í Eldborg Hörpu fimmtudaginn 18. apríl 2024.
Það var að mörgu leyti áhugavert að hlýða á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg í Hörpu fimmtudaginn 18. apríl. Fyrir hlé lék hljómsveitin nefnilega án eiginlegs hljómsveitarstjóra en eftir hlé slóst hins vegar hljómsveitarstjóri með í för. Var einhver munur? Stutta svarið er: „Já, heilmikill!“ Munurinn liggur hins vegar í öðru en lesendur myndu í fyrsta kasti giska á.
Sinfónía nr. 41 (K. 551) er sú síðasta númeraða eftir Wolfgang Amadeus Mozart (1756-1791). Vera má að sú sem ber númerið á undan, það er að segja sinfónía nr. 40, sé hlustendum að mörgu leyti kunnara verk, en fertugasta og fyrsta sinfónían er jafnan talin „besta“ sinfónía Mozarts (þó svo að slík einkunn sé í besta falli þarflaus). Ekki bara það, verkið er oft tilgreint sem helsta sinfónía klassíska tímabilsins í tónlistarsögunni. Þetta er enn fremur lengsta sinfónían sem Mozart samdi og hlaut viðurnefnið „Júpíter“ áratugum eftir að tónskáldið lauk við verkið árið 1788.
Það var greinilegt frá fyrstu töktum að Sinfóníuhljómsveit Íslands hafði góð tök á verkinu. Það var finnski fiðluleikarinn Jan Söderblom sem gegndi bæði stöðu konsertmeistara kvöldsins og stjórnaði sinfóníunni eftir Mozart frá fremsta púlti (eins og hefðin var á tímum tónskáldsins). Áheyrendur sáu auðvitað bara og heyrðu afrakstur þrotlausra æfinga fyrir tónleikana sjálfa en skemmst er að segja frá því að flutningur hljómsveitarinnar í Hörpu á þessu meistaraverki Mozarts var framúrskarandi.
Strax frá fyrstu töktum lá ljóst fyrir að túlkunin yrði „klassísk“ en ekki „rómantísk“. Allar hendingar voru léttar og fallega mótaðar. Þær voru um leið dýnamískar og skýrar og léttleikinn var í fyrirrúmi. Jafnvægi milli einstakra hljóðfærahópa var einnig gott, að minnsta kosti þar sem ég sat, og intónasjón var góð, ekki hvað síst á viðkvæmustu stöðunum. Einstaka raddir skiluðu sér vel í gegn en þó aldrei á kostnað heildarhljómsins, sem var giska þéttur. Hljómsveitin var auðvitað ekki stór, enda í samræmi við það sem gerðist á tímum Mozarts.
Þó svo að til séu tæknilega miklu erfiðari verk en þau sem Mozart samdi er ekki þar með sagt að hann sé „auðveldur“ í flutningi. Síður en svo. Það er meira að segja býsna erfitt að fá verk hans til þess að ganga upp þannig að þau fái á sig þann ljóma sem einungis er á færi bestu hljómsveita að laða fram. Ég veit ekki hvernig Söderblom æfði sinfóníu nr. 41 fyrir flutninginn í Hörpu en hitt veit ég að flutningurinn sjálfur var afbragð.
Sjálfsagt verður deilt um það á meðan Norðurlönd eru byggð hvort og þá hvaða endurtekningum hljóðfæraleikarar eiga að fylgja í verkum Mozarts. Sumir sleppa þeim alfarið meðan aðrir taka þær allar; loks eru þeir sem fara bil beggja. Mér heyrðist einmitt Söderblom fara bil beggja, sumt var þannig endurtekið, annað ekki. Heildarmyndin var hins vegar skýr og gott jafnvægi ríkti á milli einstakra þátta verksins. Loks voru tempóin fín og voru þannig aldrei of hæg, án þess þó að hljómsveitin væri að flýta sér um of. Sjálfsagt „græddi“ flutningurinn á því að enginn stóð fyrir framan hljómsveitina og því voru allir á tánum. Þetta er auðvitað hægt í tónlist fram undir rómantíska tímabil tónlistarsögunnar.
Eftir hlé stjórnaði Eva Ollikainen flutningi á tveimur verkum eftir Richard Strauss (1864-1949), búrlesku fyrir píanó og hljómsveit og svo Tod und Verklärung. Bæði verkin samdi Strauss á þrítugsaldri og hafði raunar ekki nema ár um tvítugt þegar hann samdi búrleskuna, þá fyrst sem Scherzo fyrir píanó og hljómsveit, en endurnefndi það nokkrum árum síðar og breytti lítillega. Þetta er ekki í hópi þekktustu verka Strauss en samt sem áður töluvert mikið flutt og hefur oft verið hljóðritað.
Armensk-danski píanóleikarinn Marianna Shirinyan lék einleik í búrleskunni og fórst það vel úr hendi. Þó svo að verkið sé í hópi minna þekktra verka Strauss er það mjög aðgengilegt og píanóparturinn er glæsilegur. Hann er í senn lýrískur en á köflum ekki bara hnyttinn, heldur inniheldur hann líka hlaupandi tónstiga og er að mörgu leyti mikilfenglegur. Eftirminnilegasti kafli verksins er „samtal“ einleikarans við pákuleikarann og þar stóð Soraya Nayyar sig einkar vel. Tónninn hjá Mariönnu Shirinyan var líka glæsilegur og syngjandi en það var helst í hljómsveitarköflum verksins að flutningurinn hljómaði þunglamalegur og stirður. Aukalagið eftir Schubert, sem Marianna Shirinyan lék, var mjög vel flutt og vakti verðskuldaða hrifningu áheyrenda.
Lokaverk tónleikanna var svo Tod und Verklärung, sem íslenskað hefur verið sem Dauði og uppljómun. Þetta tónaljóð Strauss er í hópi mest fluttu hljómsveitarverka tónskáldsins og rekur ættir sínar til tónaljóða Franz Liszts og prógrammtónlistar „nýþýska skóla“ 19. aldar. Tónlist Richards Strauss verður seint lýst sem „hlýrri“ en „túlkun“ Evu Ollikainen var nánast við frostmark. Hún lamdi þannig verkið áfram, stundum bæði af hæfileikum og elju, oftast mest af elju, og það fékk lítið sem ekkert að anda. Ekki misskilja mig, verkið var í sjálfu sér alls ekki illa leikið. Sinfóníuhljómsveit Íslands – sérstaklega blásarahluti hljómsveitarinnar – er fyrir nokkru komin á þann stað að geta leikið nánast hvað sem er, það er að segja tæknilega séð, en það verður líka að túlka verk. Mér er þannig í sjálfu sér sama þó að einhver slái fleilpúst hér og þar, ef um er að ræða áhugaverða túlkun á viðkomandi tónverki. Því var bara ekki fyrir að fara hér. Eva Ollikainen slakaði þannig aldrei á og fyrir vikið hljómaði verkið mjög þvingað. Fyrir utan intónasjónvandamál í strengjunum á stöku stað var tæknilega ekkert að flutningnum, en einhvers konar túlkun var bara ekki fyrir að fara.
Þó svo að Tod und Verklärung sé samhangandi verk er það að vissu leyti líka kaflaskipt. Það segir af dauðastríði listamanns og hafði Strauss raunar endaskipti á prógrammeringu verksins. Í stað þess að semja það við fyrirfram ákveðna frásögn fól hann ljóðskáldinu Alexander Ritter að semja ljóð við tónverkið og lýsa þannig framvindu þess í bundnu máli.
Verkið hefst undurblítt og því lýkur með sama hætti. Um miðbikið vex því ásmegin og með réttu ætti það að ná hápunkti á tilgreindum stað. Vandamálið í flutningnum nú í Hörpu var hins vegar það að verkið náði aldrei neinum hápunkti. Það sem var skrifað sterkt í raddskránni hljómaði þannig eiginlega bara allt jafn sterkt og fyrir vikið algjörlega flatt. Veikari kaflar verksins voru svo að sama skapi líflausir og óinnblásnir.
Mér er engin skemmtun í að finna að þessum misráðna flutningi á Tod und Verklärung eftir Richard Strauss. Hann var bara alls ekki góður, þó tæknilegar misfellur hafi verið fáar. Það er bara ekki nóg leika réttar nótur, það er að segja þegar „músíkina“ vantar nánast algjörlega.
Magnús Lyngdal Magnússon
Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í maí 2024