Þegar mannsröddin sigrar
- Tónskáld
- Richard Strauss, Francis Poulenc
- Flytjendur
- Barbara Hannigan
- Kór, hljómsveit, stjórnandi
- Sinfóníuhljómsveit Íslands, Barbara Hannigan
Harpa Barbara Hannigan og Mannsröddin
★★★★★
Tónlist: Richard Strauss (Ummyndanir) og Francis Poulenc (Mannsröddin). Hljómsveitarstjóri og einsöngvari: Barbara Hannigan. Sinfóníuhljómsveit Íslands. Konsertmeistari: Sigrún Eðvaldsdóttir. Tónleikar í Eldborg Hörpu föstudaginn 5. apríl 2024.
Kanadíska sópransöngkonan og hljómsveitarstjórinn Barbara Hannigan sótti Sinfóníuhljómsveit Íslands heim á dögunum og er þetta í þriðja skiptið sem hún kemur fram með hljómsveitinni. Það er alltaf fróðlegt að sjá efnisskrá Hannigan en í fyrsta skipti bauð hún upp á Berg, Schönberg, Ives og Gershwin og í annað skiptið voru Haydn, Khayam og Mahler á efnisskránni. Nú stjórnaði hún bæði Ummyndunum (Metamorphosen) eftir Richard Strauss og Mannsröddinni (La voix humaine) eftir Francis Poulenc. Í seinna verkinu kom Hannigan einnig fram sem söngkona.
Kammerverkið Ummyndanir eftir Richard Strauss (1864-1949) er samið fyrir 23 strengjaleikara (tíu fiðlur, fimm víólur, fimm selló og þrjá kontrabassa). Þetta er raunar verk fyrir 23 „einleikara“, samið til minningar um þýskan menningararf sem lá í rúst undir lok seinna stríðs. Upphafsdagsetningin á raddskránni er 13. mars 1945, það er að segja daginn eftir að bandamenn sprengdu óperuhúsið í Vínarborg í tætlur, en Strauss lauk verkinu hinn 12. apríl sama ár. Það var frumflutt í Sviss í janúar 1946 og er í hópi síðustu verka tónskáldsins. Sjálf kallaði Hannigan Ummyndanirnar „óperu án orða“ í viðtali við Morgunblaðið hinn 5. apríl 2024 og bætti við: „Hver strengjaleikari hljómsveitarinnar hefur sitt hlutverk, þeir spila ekki sem samstillt heild heldur er eins og þeir séu allir einleikarar.“
Flutningurinn á verki Strauss var einkar sannfærandi. Allar hendingar voru fallega mótaðar (þeim lauk oft á subito piano) en eitt af einkennum verksins er að einstakar raddir strengjanna kallast á. Verkið hefst á lágstemmdum inngangi og ég hef sjaldan heyrt jafn fallegan hljóm í strengjum Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Túlkun Hannigan náði flugi og í henni var raunar lýrísk stígandi. Þá var snerpa (ít. attacca) í leiknum sú jafn besta sem ég hef heyrt hjá hljómsveitinni, ekki hvað síst hjá sellóunum.
Strauss vitnar á nokkrum stöðum í verk annarra tónskálda, en tilbrigði við stef úr útfararmarsi 3. sinfóníu Beethovens er þar mest áberandi, enda gengur það í gegnum allt verkið. Það skýtur upp kollinum að minnsta kosti fimm sinnum og heyrist fyrst undurblítt leikið af víólu. Stefið heyrðist vel, enda var túlkun Hannigan á verkinu mjög gagnsæ og raddir komust því vel í gegn. Þetta var hins vegar ekki á kostnað heildarhljómsins, sem var bæði þykkur og hlýr, en Ummyndanir eru einmitt það verk Strauss sem kemst næst því að vera „hlýtt“. Ég sakna þess stundum að heyra þennan þykka hlýja strengjahljóm hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands en hér fóru 23 hljóðfæraleikarar hljómsveitarinnar á kostum.
Eftir hlé minnkaði sjónarspilið svo sannarlega ekki. Þá stjórnaði Hannigan og söng Mannsröddina eftir Francis Poulenc (1899-1963). Óperan er samin við einþáttung eftir Jean Coucteau og segir af „samtali“ konu við ástmann sinn í síma. Við heyrum aldrei í ástmanninum, aðeins konunni, en af orðum hennar má af ýmsu ráða um viðbrögð hans. Poulenc samdi Mannsröddina í nánu samstarfi við sópransöngkonuna Denise Duval, en hún söng hlutverkið á frumflutningnum í París í febrúar 1959 (það var Georges Prêtre sem stjórnaði). Verkinu var vel tekið og er reglulega sett upp, komst meðal annars á fjalir Íslensku óperunnar sálugu 1999 og 2017, auk þess sem verkið var flutt á Listahátíð í Reykjavík 2015. Sá er munurinn að hingað til hefur verkið alltaf verið flutt í einfaldaðri gerð í píanóútsetningu hér á landi (útsetningu sem Poulenc samþykkti raunar aldrei sjálfur) en í Hörpu nú hljómaði verkið í sinni upprunalegu gerð, það er að segja með fullskipaðri sinfóníuhljómsveit.
Hér var raunar ekki um hefðbundna konsertuppfærslu að ræða, heldur útfærslu sem Hannigan hefur sjálf þróað. Hún sneri að mestu leyti baki í áheyrendur en að sama skapi gátu þeir fylgst með leik Hannigan, svipbrigðum og söng á stóru sýningartjaldi. Hún var allt í öllu, lék, söng og stjórnaði og gerði það af miklu listfengi. Verkið er líka listilega vel samið, hljómsveitin heldur sér þannig nokkuð til hlés á meðan á söngnum stendur en inn á milli koma kraftmiklir hljómsveitarkaflar. Auðvitað er ekki um eiginlegar aríur að ræða, stærsti hlutinn er í formi söngless, en þrátt fyrir það er Mannsröddin mjög lýrískt verk. Hannigan hefur bjarta sópranrödd sem skilaði sér vel, að minnsta kosti þar sem ég sat á 16. bekk, og jafnvægið á milli raddar og hljómsveitar var þannig gott. Kannski voru hreyfingar Hannigan á köflum öðruvísi en þær sem við eigum að venjast hjá hinum almenna hljómsveitarstjóra en hún lifði sig einkar vel inn í hlutverkið. Ég get ímyndað mér að hljóðfæraleikarar Sinfóníuhljómsveitar Íslands hafi þurft að vera á tánum hvað innkomur varðar, en aldrei örlaði á misfellum í leik hennar.
Hér áður fyrr bauð Sinfóníuhljómsveit Íslands reglulega upp á konsertuppfærslur á óperum og ég vildi óska þess að gert yrði meira af því. Barbara Hannigan sýndi með konsepti sínu að þær geta verið einkar líflegar og ég vona að við fáum að sjá meira af henni í framtíðinni. Áheyrendur í Hörpu voru að minnsta kosti gagnteknir af flutningnum, enda hef ég aldrei heyrt önnur eins fagnaðarlæti að loknum sinfóníutónleikum þar. Hannigan var fagnað sem poppstjörnu og er það vel!
Magnús Lyngdal Magnússon
Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í apríl 2024