Áhrif Beethovens á Wagner
- Tónskáld
- Richard Wagner
Í sjálfsævisögu sinni, Mein Leben, ræðir Richard Wagner (1813-1883) meðal annars um þá tónlist sem hafði hvað mest mótandi áhrif á hann sem æskumann. Hann tók meðal annars miklu ástfóstri við Der Freischütz eftir Carl Maria von Weber og hinn ungi Richard gerði sér til að mynda að leik að setja upp sýningar á verkinu heima fyrir í litlu strengjabrúðuleikhúsi sem faðir hans, Carl Friedrich, hafði átt. Sjálfur var Weber stöku sinnum gestur á heimili Wagner-fjölskyldunnar. Fjórtán ára gamall varð Richard hins vegar fyrir djúpstæðum áhrifum af verki sem hann heyrði þá í fyrsta skipti en það var tónlist Ludwigs van Beethovens (1770-1827) við leikrit Goethes um greifann af Egmont.
Það er ekki einungis í Mein Leben sem Wagner fjallar um áhrif Beethovens. Hann getur hans í smærri skrifum á borð við smásögu sem Wagner nefnir „Pílagrímaför til Beethovens“ og tónskáldið setti saman í kringum 1840, þá ungur maður í París. Sagan gerist í Vínarborg og segir frá skálduðu samtali Beethovens við óþekkt tónskáld. Er það margra manna mál að þau orð sem lögð eru Beethoven í munn í sögunni hafi verið fyrirboði um þær breytingar og ekki hvað síst þær endurbætur sem Wagner vildi sjálfur gera á sviðstónlist. Kemur meðal annars fram í máli Beethovens að mannsröddin standi framar öllum hljóðfærum að fegurð en þetta tvennt megi tvinna saman í eina órofa heild. Að lokum ræðir Beethoven um tilurð níundu sinfóníu sinnar og þá erfiðleika sem blöstu við honum þegar kom að því að velja texta sem færi saman við þann boðskap sem hljómsveit verksins skyldi flytja. Kannski má segja að inntak sögunnar varpi áhugaverðu ljósi á þróun Wagners sem tónskálds og þau mótandi áhrif sem Beethoven hafði á hann sem óperutónskáld, það er að segja sambland mannsradda, texta og hljómsveitar.
Beethoven var ekki gallalaus maður. Wagner leit hins vegar djúpt í karakter Beethovens og sá þá snilligáfu sem bjó undir viðkvæmri kvikunni. Áður er nefnd sú djúpstæða reynsla sem Wagner varð fyrir er hann heyrði tónlistina við Egmont og það er alveg ljóst að greifinn af Egmont var maður að skapi Beethovens; maður sem hlaut fordæmingu fyrir að rísa upp gegn kúgun og þó svo að Beethoven hafi einungis samið eina óperu má slá því föstu að dramatísk framvinda tónlistarinnar við Egmont og svo forleikurinn að harmleiknum um rómverska hershöfðingjann Coriolanus (Coriolan-forleikurinn) hafi haft mótandi áhrif á Wagner sem óperutónskáld.
Þegar Beethoven lá banaleguna harmaði hann mjög að hafa aldrei samið tónlist við leikritið Faust eftir Goethe, það er að segja ef frá er talið eitt sönglag sem tónskáldið samdi árið 1809 og ber heitið „Söngur Mefistófelesar“. Undir áhrifum frá Beethoven samdi Wagner sönglag við sama texta og bar saman við sönglag Beethovens. Hann samdi einnig píanósónötu í anda Beethovens en það verk telst seint í hópi betri verka tónskáldsins, enda samið þegar Wagner var einungis 18 ára gamall. Fleira kemur til. Fimmtándi strengjakvartett Beethovens (op. 132) hafði til að mynda áhrif á Wagner þegar hann samdi Tristan og Isolde. Í fyrsta þætti óperunnar þegar Isolde segir Brangaene frá því er hún áttar sig á því hver Tristan er í raun og veru. Hún hyggst leggja hann með sverði en þegar augu þeirra mætast fella þau saman hugi. Undirleikur hljómsveitarinnar á þessum stað er allt að því í strengjakvartettútsetningu.
Á unglingsárum sínum eignaðist Wagner raddskrána af tólfta strengjakvartett Beethovens (op. 127) og þar má finna hrynjandi sem síðar birtist í Tristan og Isolde 30 árum síðar. Hér má nefna sem dæmi upphafið á „O sink hernieder, Nacht der Liebe.“ Í kvartettinum notar Beethoven að vísu taktboðann 12/8 en taktboði Wagners er 3/4 auk þess sem Wagner bætir vitaskuld við söngröddum. Angurvært upphafið er hins vegar keimlíkt þar sem raddir víxlast í allt að því kammerútfærslu. Wagner var enda ekki feiminn á hinum síðari árum við að viðurkenna áhrif Beethovens í tónsmíðum sínum: „Ég hefði ekki getað samið tónlist með þeim hætti sem ég hef gert ef Beethovens hefði ekki notið við en það sem ég hef nýtt mér og þróað áfram eru afmarkaðar einingar samdar af forvera mínum sem bjó yfir snilligáfu og þessar einingar hef ég ekki alltaf sótt í óperutónlist.“
Í fimmtánda strengjakvartett Beethovens má einnig finna fyrirmynd að samtali Sachs og Walthers í þriðja þætti Meistarasöngvaranna þar sem Sachs syngur: „Mein Freund! In holder Jugendzeit“. Þar hljómar undirspilið eins og strengjakvartett eða kammertónlist. Wagner talaði oft um Meistarasöngvarana sem eitt af sínum meistaraverkum en það er margslungið verk sem inniheldur ólík tónlistarform og stundum er sagt að þar sýni Wagner fram á hversu mikið hann hafði lært af forverum sínum. Þetta birtist líka í texta verksins þar sem Sachs hvetur til þess að byggja nýjar hugmyndir á gömlum og traustum grunni. Við getum auðvitað sagt að Tristan og Isolde hafi verið verk á undan sinni samtíð og margt í því þótti nánast ofurmannlegt; það reyndi einfaldlega of mikið á flytjendur. Hins vegar má kannski segja að með Meistarasöngvurunum hafi Wagner svarað gagnrýnendum sínum með því að semja verk sem að hluta til hvíldi á gömlum merg.
Níunda sinfónía Beethovens fylgdi Wagner fram eftir ævinni og hann stjórnaði verkinu margoft, þar á meðal þegar hornsteinn var lagður að leikhúsinu í Bayreuth árið 1872. Verkið var honum hugleikið og mótaði hann sem tónskáld. Sjálfur komst Wagner svo að orði um þá reynslu að sjá raddskrá sinfóníunnar í fyrsta sinn: „Þegar ég opnaði raddskrána blöstu örlögin við mér, einkum fimmundirnar í upphafi verksins. Mér líður þessi hljómur seint úr minni og hann mótaði fyrstu hugmyndir mínar um tónlist. Sú minning leitar sífellt á mig aftur eins og nokkurs konar draugur fortíðar. Það var eins og þessi sinfónía byggi yfir leyndarmáli allra leyndarmála.“ Þessar dularfullu fimmundir rekumst við síðar á í verkum Wagners en forleikurinn að Hollendingnum fljúgandi hefst á fimmundum sem kasta okkur beint í öldurótið og við heyrum þær aftur í upphafinu á ballöðu Sentu í öðrum þætti. Það er líka stundum sagt að Wagner hefði aldrei getað samið Hollendinginn ef Beethoven hefði ekki samið Fidelio. Hvað sem hæft er í fullyrðingum af því tagi er ljóst að í báðum verkum reynist kona endurlausnari manns og þannig má segja að Leónóra í óperu Beethovens hafi birst sem Senta í Hollendingi Wagners.
Wagner leitaði í smiðju Beethovens allan sinn tónskáldaferil. Hann dansaði þegar hann heyrði hluta úr tólfta strengjakvartettinum og innan við mánuði áður en hann lést gerðist það sama þegar hann heyrði Franz Liszt leika glettuna (Scherzo) úr áttundu sinfóníunni. Þannig má kannski segja að Beethoven hafi haldið Wagner ungum. Það er líka margt til í því að Wagner hafi haft áhrif á það hvernig verk Beethovens voru túlkuð. Viðvíkjandi það atriði komst píanistinn og hljómsveitarstjórinn Daniel Barenboim einmitt svo að orði: „Wagner hafði áhrif á hvernig allur heimurinn, án undantekninga, leit á þá tónlist sem samin hafði verið fyrir daga hans, til að mynda verk Mozarts, Beethovens, Schuberts og Schumanns. Og það á ekki bara við um verkin sjálf heldur einnig flutning þeirra og skiptir þá ekki máli hvort við erum að tala um stjórnendur á borð við Furtwängler, Weingärtner, Walter eða Toscanini. Það sama á við um hljómsveitir og einleikara, svo sem Schnabel, Fischer, Backhaus og fleiri. Túlkun þessara listamanna hefði verið óhugsandi án þeirra hugmynda sem Wagner hafði sett fram. Þannig hefur hann haft áhrif á alla sögu í túlkun tónlistar og kannski má segja að það sem nú er kallað upprunaflutningur sé að mörgu leyti viðbrögð við Wagnerisma.“
Magnús Lyngdal Magnússon
Greinin birtist í Morgunblaðinu í mars 2024