Flugeldasýning og Beethoven hjúpaður ljóma
- Tónskáld
- Charles Ives, Felix Mendelssohn, Caroline Shaw, Ludwig van Beethoven
- Flytjendur
- Vadim Gluzman
- Kór, hljómsveit, stjórnandi
- Sinfóníuhljómsveit Íslands, Ludovic Morlot
Mendelssohn og Beethoven
Sinfónía nr. 3 (Ives) og Entr'ance (Shaw) ★★★★
Fiðlukonsert í e-moll (Mendelssohn) og sinfónía nr. 8 (Beethoven) ★★★★★
Tónlist: Charles Ives (sinfónía nr. 3), Felix Mendelssohn (fiðlukonsert í e-moll), Caroline Shaw (Entr'ance) og Ludwig van Beethoven (sinfónía nr. 8). Vadim Gluzman (einleikari). Sinfóníuhljómsveit Íslands. Konsertmeistari: Sigrún Eðvaldsdóttir. Stjórnandi: Ludovic Morlot. Tónleikar í Eldborg Hörpu fimmtudaginn 8. febrúar 2024.
Það var haganlega samsett efnisskráin á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands fimmtudagskvöldið 8. febrúar síðastliðinn, það er að segja bæði þýsk og bandarísk tónverk – ný og gömul. Raunar hugðist hljómsveitin flytja sömu efnisskrá í apríl 2021 (með sama stjórnanda) en þeim tónleikum var aflýst vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar.
Bandaríska tónskáldið Charles Ives (1874-1954) naut ekki frægðar fyrir tónverk sín fyrr en seint og um síðir. Hann seldi tryggingar og efnaðist vel en samdi tónlist í frístundum sem oftar en ekki þurfti að bíða lengi eftir að hljóma opinberlega. Stíll hans er ærið sérstakur en bandaríska tónskáldið og hljómsveitarstjórinn Leonard Bernstein sagði eitt sinn að Ives hefði með verkum sínum hrundið af stað sinni eigin tónlistarbyltingu. Hljóðheimur Ives er ólíkur flestu öðru sem heyrist í tónleikasölum; oft ægir til að mynda ólíkum hugmyndum saman.
Ives samdi fjórar númeraðar sinfóníur og hljómaði sú þriðja (auknefnd The Camp Meeting) á þessum tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands; hljómsveitin var að leika þetta verk í fyrsta skipti. Ives samdi það á árunum 1908-1910 en það var ekki frumflutt fyrr en árið 1946, þá undir stjórn Lous Harrisons. Ári síðar hlaut Ives Pulitzer-verðlaunin fyrir sinfóníuna; verðlaunaféð lét hann allt af hendi rakna, þar af gaf hann Harrison helming þess.
Franski hljómsveitarstjórinn Ludovic Morlot, sem stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikunum, þekkir tónverk Ives vel og þriðju sinfóníuna hefur hann til að mynda hljóðritað með Sinfóníuhljómsveitinni í Seattle (fyrir Hyperion). Verkið, sem er í þremur þáttum, helgast mjög af tilvitnunum tónskáldsins í til að mynda bandarísk sálmalög en þær eru vissulega brotakenndar og framvindan býsna flókin. Verkið er líka, öfugt við 1., 2. og 4. sinfóníuna, samið fyrir litla hljómsveit. Sinfóníuhljómsveit Íslands lék sinfóníuna vel og Morlot tókst einmitt að draga sálmabrotin nokkuð skýrt fram og laðaði fram blæbrigði í styrk og hendingum. Strengirnir eru í forgrunni verksins en innra jafnvægi þeirra var gott og hljómur þeirra giska þéttur. Jafnvægið milli strengja og blásara (flauta, óbó, klarínett, fagott, tvö horn og básúna) var líka prýðilegt.
Fiðlukonsert í e-moll eftir þýska tónskáldið Felix Mendelssohn (1809-1847) var næstur á efnisskránni. Hafi verk Ives verið nokkuð lágstemmt tók annað við hér. Flugeldasýningin hefst þegar í öðrum takti þegar einleikarinn kemur inn með aðalstef fyrsta þáttar; það er sem sagt engum hljómsveitarkafla til að dreifa í upphafinu eins og tíðkaðist jafnan hjá eldri tónskáldum. Mendelssohn var undrabarn og samdi tónlist frá barnsaldri. Honum auðnaðist hins vegar ekki hár aldur (hann féll frá aðeins 38 ára gamall). Eftir hann lágu fjölmörg verk en áhugi á þeim dvínaði fljótlega eftir fráfall tónskáldsins, meðal annars vegna gyðingaandúðar í Þýskalandi. E-moll-konsertinn var þó að mörgu leyti undantekning, enda hefur hann notið vinsælda allt frá frumflutningnum.
Það var ísraelski fiðluleikarinn Vadim Gluzman sem var einleikari kvöldsins. Innkoma hans var eins og best verður á kosið, skýr og ljóðræn. Tónninn barst líka mjög vel og flaut vel yfir hljómsveitinni. Tæknin var óaðfinnanleg; þannig hljómaði til að mynda hver einasti sextándi partur í flutningi Gluzmans og rómantísk túlkunin fékk að njóta sín með smekklegu rubato. Hljómsveitin, undir stjórn Morlots, studdi líka vel við leik Gluzmans og það var hvergi slegið af, án þess þó að tónlistinni væri flýtt; framvindan var fullkomlega eðlileg. Gluzman mótaði langa og fallega laglínu annars þáttar með ljóðrænum hætti og leyfði sér að draga seiminn hér og þar í fallegu samtali við hljómsveitina. Tæknin var heldur ekki að þvælast fyrir Gluzman í hröðum lokaþættinum og sem fyrr var túlkun hans frábærlega músíkölsk.
Aukalagið sem hljómaði á tónleikunum í flutningi Gluzmans var svo gullfalleg serenaða fyrir einleiksfiðlu eftir úkraínska tónskáldið Valentyn Silvestrov (f. 1937). Sjálfur er Gluzman fæddur í Úkraínu sem á þeim tíma var hluti Sovétríkjanna.
Eftir hlé lék Sinfóníuhljómsveit Íslands svo tvö verk. Hið fyrra kemur frá Bandaríkjunum og er eftir Caroline Shaw (f. 1982). Hún er, eins og Charles Ives, handhafi Pulitzer-verðlaunanna í tónlist. Entr'ance er upphaflega samið fyrir strengjakvartett en hljómaði hér í útgáfu fyrir strengjasveit. Fallegt en um leið dramatískt upphafsstefið hljómaði vel hjá hljómsveitinni. Smám saman leystist það upp og við tók vel útfært og samhent plokk (pizzicato) þar sem hljómsveitin hafði nóg að gera. Upphafsstefið hljómaði svo aftur áður en Sigurgeir Agnarsson – leiðandi sellóleikari hljómsveitarinnar – lauk verkinu á fíngerðu plokki. Mér fannst flutningurinn almennt góður og vel haldið utan um hann af Morlot.
Lokaverk tónleikanna var svo áttunda sinfónían eftir Ludwig van Beethoven (1770-1827). Þetta er stutt verk – tekur innan við hálftíma í flutningi – en er sennilega kannski erfiðasta sinfónía tónskáldsins að láta ganga upp á tónleikum. Beethoven samdi verkið árið 1812 og taldi sjálfur það vera betra verk en til að mynda sjöundu sinfóníuna (sem er í hópi allra mest fluttu verka tónskáldsins og hefur ætíð notið miklu meiri vinsælda en sú áttunda).
Áttunda sinfónían er hratt og gáskafullt verk og uppfullt af húmor. Það var greinilegt frá fyrstu töktum að túlkun Morlots yrði „klassísk“ en ekki sprottin upp úr rómantíska skólanum. Þannig voru til að mynda glæsilegir og mjög taktfastir upphafstaktarnir (Allegro vivace e con brio) mjög dýnamískt leiknir af hljómsveitinni og styrkleikamerkingar tónskáldsins virtar til hins ýtrasta (fyrstu fjórir taktarnir eru til að mynda merktir forte (sterkt) en næstu fjórir á eftir piano (veikt)). Það er gríðarlega mikilvægt ef túlkun á verkinu á að annað borð að ganga upp. Það var líka greinilegt í stríðnislegum öðrum þættinum (Allegretto scherzando) að Morlot vissi nákvæmlega hvað hann vildi fá út úr hljómsveitinni. Slag hans var kannski sparsamt en skilaði miklu og það gerði það einnig í dansandi takti þriðja þáttar (Tempo di menuetto). Lokaþátturinn (Allegro vivace) er svo, í mínum huga, einhver skemmtilegasta tónsmíð Beethovens þar sem hann leikur sér með hrynbrellur og dýnamík og ef hann er „rétt“ leikinn er tónsmíðin full af ljóma. Þessi ljómi skilaði sér einmitt í leik Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu! Það er bara alls ekki sjálfgefið og hreint allt ekki á allra færi. Fyrir það ber að hrósa hljóðfæraleikurum og hljómsveitarstjóra sérstaklega.
Magnús Lyngdal Magnússon
Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í febrúar 2024