Beethoven.is
Gagnrýni · 10. febrúar 2024

„Þú ert blóm með blíðan dóm“

Tónskáld
Þorkell Sigurbjörnsson
Kór, hljómsveit, stjórnandi
Cantoque Ensemble, Steinar Logi Helgason

Cantoque Ensemble syngur Þorkel

★★★★★

Tónlist: Þorkell Sigurbjörnsson. Texti: Hannes Pétursson, Matthías Jochumsson, Páll V.G. Kolka, Þorgeir Sveinbjarnarson, Bent Støylen (í þýðingu Sigurbjörns Einarssonar), Kolbeinn Tumason, Jón Arason og Hallgrímur Pétursson). Kór: Cantoque Ensemble. Stjórnandi: Steinar Logi Helgason. Tónleikar á Myrkum músíkdögum í Hallgrímskirkju 28. janúar 2024.

Nýverið stóð yfir tónlistarhátíðin Myrkir músíkdagar sem er ein elsta tónlistarhátíð landsins, stofnuð 1980 af Tónskáldafélagi Íslands. Hátíðin var í öndverðu vettvangur fyrir íslensk tónskáld til þess að fá verk sín flutt en leggur nú áherslu á að flytja og kynna samtímatónlist, það er að segja bæði íslensk og erlend verk. Á meðal viðburða á hátíðinni í ár voru tónleikar helgaðir kórverkum Þorkels Sigurbjörnssonar (1938-2013). Hann þarf ekki að kynna sérstaklega, enda eitt af höfuðtónskáldum Íslands. Eftir hann liggja ríflega 300 tónverk og eru mörg þeirra mikið flutt, ekki síst kórverkin.

Kórinn Cantoque Ensemble var stofnaður árið 2017 og er hann skipaður atvinnusöngvurum. Hann hefur komið víða fram, bæði heima og erlendis, og flytur jöfnum höndum snemmtónlist, samtímatónlist og óperu. Félagar í hópnum hafa margir hverjir sungið hlutverk á sviði Íslensku óperunnar og víðar og komið fram með hljómsveitum víða um heim. Það er hins vegar ekki endilega ávísun á að kór sem er einungis skipaður einsöngvurum blandist vel en hljómurinn var ótrúlega fallegur og gott jafnvægi milli radda (í blandaðri stöðu). Ég tók líka eftir því að það var gott augnsamband milli stjórnandans og kórsins og það var mikið brosað – fólk naut þess sem það var að gera.

Á efnisskránni voru 11 verk, 10 frumsamin og ein útsetning, samin á árabilinu 1973 til 1993. Flest þeirra voru stutt við texta skálda á borð við Hannes Pétursson, Matthías Jochumsson, Kolbein Tumason, Jón Arason og Hallgrím Pétursson. Sum verkanna eru mjög vel þekkt en önnur eru sjaldheyrðari. Textaframburður var prýðilegur og stjórnandinn, Steinar Logi Helgason, leyfði tónlistinni að anda með mjúkum en öruggum hreyfingum. Flutningurinn var í senn afslappaður og öll tónlistarleg framvinda verkanna naut sín í ríkulegum eftirhljómi Hallgrímskirkju, þó aldrei á kostnað eðlilegrar framvindu. Þá voru styrkleikabreytingar ákaflega vel útfærðar og smekklegar, ekki síst í verkum á borð við „Til þín, Drottinn hnatta og heima“ og „Missa Brevis“. Síðarnefnda verkið var – eins og önnur verk á tónleikunum – glæsilega flutt, fullt af blæbrigðum og „litum“, til að mynda þegar kórinn söng orðin „Benedictus qui venit / in nomine Domini“.

Útsetning Þorkels á norsku þjóðlagi við texta Sigurbjörns Einarssonar, „Ég veit um himins björtu borg“, var frábærlega flutt af kórnum og ég vil líka nefna verkin „Englar hæstir“ og „Kvöldbænir“. „Heyr himnasmiður“ er án efa þekktasta verk Þorkels; hér var það flutt í nokkuð gangandi tempói (ég er yfirleitt hrifnari af því sungnu í hægara tempói) en það var vel sungið með miklum blæbrigðum (síðasta erindið sungið undurblítt). Kórinn gekk svo út syngjandi í síðustu töktunum í lokaverkinu „Kvöldbænir“ en sneri svo aftur inn og endurtók „Heyr himnasmiður“ og kirkjan tók undir. Þetta voru glæsilegir tónleikar og listamönnunum til sóma.

Magnús Lyngdal Magnússon

Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í febrúar 2024

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu