Beethoven.is
Gagnrýni · 8. febrúar 2024

Fyrsta flokks flutningur

Tónskáld
Robert Schumann, Johannes Brahms
Flytjendur
Kordo-kvartettinn, Arngunnur Árnadóttir

Kordo-kvartettinn

Strengjakvartett í a-moll, op. 41 nr. 1 ★★★★

Klarínettukvintett í h-moll, op. 115 ★★★★★

Tónlist: Robert Schumann (strengjakvartett í a-moll, op. 41 nr. 1) og Johannes Brahms (klarínettukvintett í h-moll, op. 115). Kordo-kvartettinn (Vera Panitch, fiðla, Páll Palomares, fiðla, Þórarinn Már Baldursson, víóla, og Hrafnkell Orri Egilsson, selló) og Arngunnur Árnadóttir, klarínett. Tónleikar í Norðurljósum Hörpu sunnudaginn 4. febrúar 2024.

Dagskrá sjöttu og síðustu tónleika Kammermúsíkklúbbsins á starfsárinu 2023-2024 var sett saman af miklu hugviti, enda voru þeir Robert Schumann (1810-1856) og Johannes Brahms (1833-1897) tengdir nánum böndum, bæði tónlistarlega séð og í persónulega lífinu. Brahms stóð á tvítugu þegar hann kvaddi dyra á heimili Schumann-hjónanna í Düsseldorf, kynnti sig og lék fyrir þau nokkur verk á píanóið. Schumann var gagntekinn sem varð til þess að hann ritaði lofsamlegan dóm í rit sitt, Neue Bahnen (Nýjar brautir), og lýsti Brahms sem hinum útvalda, nokkurs konar spámanni tónlistarheimsins.

Ekki varði þó vinátta Brahms og Schumanns lengi því einungis nokkrum mánuðum síðar missti hinn síðarnefndi endanlega heilsuna og eyddi síðustu tveimur árum ævi sinnar á geðsjúkrahúsi. Við fráfall Schumanns árið 1856 varð Brahms raunar um tíma ábyrgur fyrir heimilishaldi Schumann-fjölskyldunnar og gekk börnunum sjö í föðurstað. Samband hans og Clöru Wieck varð náið og er í raun og veru ráðgáta enn þann dag í dag. En ekki bara það, við fráfall Schumanns varð Brahms á svipstundu sjálfskipaður leiðtogi íhaldssamari tónskálda hins þýskumælandi heims, það er að segja tónskáld sem vildu fara aðra leið í tónsmíðum en forsprakkar hins svonefnda „nýþýska skóla“ tónlistarsögunnar; framtíðartónskálda á borð við Franz Liszt og Richard Wagner. Átök milli stríðandi fylkinga náðu hámarki árið 1860 og urðu af þessu mikil málaferli. Í sem stystu máli má segja að Brahms og fylgismenn hann hafi fylgt þeirri kenningu að tónlist væri óhlutbundin og fegurð hennar fælist þannig í vel mótuðum formum og hendingum á meðan „nýþýski skólinn“ vildi láta inntakið ráða forminu en ekki öfugt. Hér má því kannski segja að fortíð og framtíð hafi að mörgu leyti borist á banaspjót.

Robert Schumann samdi strengjakvartettinn í a-moll, op. 41 nr. 1, árið 1842, þá á svonefndu „kammerári“ tónskáldsins en Schumann helgaði sig ólíkum formum á mismunandi tíma á tónskáldaferli sínum (til að mynda var árið 1840 ár sönglagsins, 1841 ár sinfóníunnar og svo framvegis). Eftir að hafa fylgt eiginkonu sinni, Clöru Wieck, á tónleikaferðalagi um Norður-Þýskaland og Danmörku fyrri hluta ársins 1842 sneri Schumann aftur einn síns liðs heim til Leipzig og til þess að bægja frá sér þunglyndi tók hann til við að æfa sig í kontrapunkti og grúska meðal annars í strengjakvartettum Haydns, Mozarts og Beethovens. Tónleikaferðalagi Clöru lauk í apríl sama ár og fljótlega eftir að hún var komin heim til Leipzig tók Schumann til við að semja eigin strengjakvartetta. Þeir urðu að endingu þrír talsins og var sá fyrsti þeirra á dagskrá Kammermúsíkklúbbsins í Hörpu á köldu febrúarkvöldi. Það var Kordo-kvartettinn sem lék en hann var stofnaður síðla sumars árið 2018 og lék hann einmitt sína fyrstu tónleika fyrir sléttum fimm árum eða í febrúar árið 2019.

Dulúðugt upphafið í verki Schumanns (Introduzione. Andante espressivo) fékk að njóta sín vel í meðförum Kordo-kvartettsins og flutningurinn var bæði samhentur og vel mótaður. Fóru þar saman langar hendingar og mikil blæbrigði í til að mynda styrkleika. Jafnvægið milli radda var gott og hljómurinn bæði mjúkur og áferðarfallegur. Hraðabreytingin (yfir í Allegro) var sannfærandi og tónlistin fékk að „anda“. Þá var snerpa áberandi í glettu (scherzo) annars þáttar og sá þriðji (Adagio) var mjög fallega mótaður; sérstaklega þar sem raddir kölluðust á í upphafi þáttarins á býsna lágu tónsviði. Kordo-kvartettinn lék þennan hæga kafla ákaflega vel og dýptin var áberandi, ekki síst í fallegum einleiksstrófum sellósins undir plokki (pizzicato) 1. fiðlu. Notkun á rubato (hraðabreytingum) var alltaf smekkleg og mér fannst spilamennskan einkennast af því að brugðið var upp örmyndum hér og þar sem saman mynduðu eina órofa heild. Þessi þáttur var án efa sá best flutti á fyrri hluta tónleikanna. Loks gustaði af leik kvartettsins í lokaþættinum (Presto) og það var unun að heyra hvernig upphafsstef þáttarins gekk í gegnum allar raddir kvartettsins í ólíkum útfærslum. Bæði veik og sterk spilamennskan skilaði sér vel. Eina sem ég hef út á að setja í þessum flutningi voru lítilsháttar intónasjón-vandamál á stöku stað, einkum í fyrstu tveimur þáttunum og svo í lokaþættinum.

Hluti af því sem Johannes Brahms glímdi við alla tíð var gífurleg sjálfsgagnrýni. Hann lá yfir verkum sínum og setti sér afar ströng skilyrði fyrir útgáfu. Hér eru raunar strengjakvartettar hans gott dæmi. Hann samdi að minnsta kosti tuttugu slík verk, sumir segja jafnvel þrjátíu, en einungis þrír voru gefnir út. Restinni fargaði hann í eldi. Fyrstu árin vann hann mest að kammermúsík en hljómsveitina nálgaðist hann af varúð. Það átti auðvitað eftir að breytast en seint á ferlinum vék Brahms aftur að kammertónlist, þá meðal annars eftir að hafa kynnst klarínettuleikaranum Richard Mühlfeld. Hann samdi klarínettukvartettinn (op. 115) árið 1891 (og raunar fleiri verk þar sem klarínettið var í leiðandi hlutverki) og var því afar vel tekið við frumflutninginn, raunar svo mjög að Adagio-kaflinn var klappaður upp.

Kvintett Brahms er að mörgu leyti „þéttari“ tónsmíð en kvartett Schumanns og ræður þar sjálfsagt hljómasamsetning mestu. Næmt upphafið var samhent hjá Kordo-kvartettinum og gulltónn Arngunnar Árnadóttur, sem hlustendur þekkja sem leiðandi klarínettuleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands, naut sín í gríðarlega fallegri innkomu hljóðfærisins. Jafnvægið milli klarínetts og strengja var mjög gott og saman ófu hljóðfærin þéttan vef. Brahms var auðvitað meistari laglínunnar en verkið er einkar vel samið upp á jafnvægi að gera. Þannig er klarínettið ýmist í einleikshlutverki á meðan annars staðar fellur það inn í verkið í nokkurs konar „tutti“-hlutverki.

Fyrsti þátturinn (Allegro) var einkar vel útfærður hjá hljóðfæraleikurunum og styrkleikabreytingar (stundum subito) skiluðu sér vel sem og áleitið niðurlag þáttarins. Einföld en grípandi laglína annars þáttar (Adagio – Più lento) var fallega mótuð, fyrst af klarínettinu en svo ítrekuð af röddum strengjanna. Kaflinn var uppfullur af dulúð og flutningur var einkar músíkalskur. Þannig drógu Kordo-kvartettinn og Arngunnur upp „myndir“ sem voru í senn íburðarmiklar en um leið með ívið hryggu yfirbragði. Ég get eiginlega ekki hrósað flutningi þessa þáttar of mikið og skil vel að hann hafi verið klappaður upp við frumflutninginn. Þá tók við léttleikandi þriðji þátturinn (Andantino – Presto non assai, ma con sentimento) með samhentum leik og svo lokaþátturinn (Con moto) sem var fallega leikinn; allar innkomur voru samhentar og frasering eiginlega eins og hún gerist best. Eins og í verki Schumanns voru allar hraðabreytingar (rubato) sannfærandi og vel útfærðar. Raddskrá Brahms er býsna nákvæm þegar kemur að fyrirmælum um túlkun og þeim fylgdu Kordo-kvartettinn og Arngunnur vel. Flutningurinn var því fyrsta flokks, blæbrigðaríkur og mjög músíkalskur.

Það er mikilvægt fyrir hljóðfæraleikara, ekki síst fyrir þá sem leika í stærri hljómsveitum, að leika kammertónlist. Flutningur hennar er alltaf vandasamur, enda hver og einn hljóðfæraleikari ábyrgur fyrir sínum parti og það þarf því hugrekki til þess að leika tónlist af þessu tagi. Ég er hins vegar sannfærður um að reglulegur flutningur á kammertónlist gerir hljóðfæraleikara betri, enda læra þeir ekki síst að hlusta, ekki síður enn að leika, þegar slíkri tónlist er fyrir að fara. Þessu skilaði Kordo-kvartettinn (Vera Panitch, Páll Palomares, Þórarinn Már Baldursson og Hrafnkell Orri Egilsson) og Arngunnur Árnadóttir vel, ekki síst í flutningunum á Brahms.

Með þessum tónleikum í Norðurljósasal Hörpu lauk yfirstandandi starfsári Kammermúsíkklúbbsins. Dagskrá næsta starfsárs (2024-2025) liggur að mestu fyrir en það eru blikur á lofti í starfsemi klúbbsins. Fer þar saman að erfiðlega hefur gengið að afla styrkja til starfseminnar og félögum í Kammermúsíkklúbbnum fer fækkandi. Útlit er því fyrir að næsta starfsár, sem verður hið 68. í samfelldri sögu klúbbsins, verði það síðasta sem hann starfar. Illt er af því að vita og það yrði mikill skaði fyrir íslenskt tónlistarlíf ef starfsemi klúbbsins legðist af og það má bara ekki gerast.

Magnús Lyngdal Magnússon

Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í febrúar 2024

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu