Beethoven.is
Gagnrýni · 2. febrúar 2024

Glæsilegur sellókonsert en óskýrar myndir

Tónskáld
Alberto Ginastera, Anna Clyne, Modest Músorgskíj
Flytjendur
Senja Rummukainen
Kór, hljómsveit, stjórnandi
Sinfóníuhljómsveit Íslands, Emilia Hoving

Myndir á sýningu

Fjórir dansar úr Estancia ★★★★

DANCE ★★★★★

Myndir á sýningu ★★½

Tónlist: Alberto Ginastera (Fjórir dansar úr Estancia), Anna Clyne (DANCE, sellókonsert), Modest Músorgskíj (Myndir á sýningu, úts. Ravel). Senja Rummukainen (einleikari). Sinfóníuhljómsveit Íslands. Konsertmeistari: Una Sveinbjarnardóttir. Stjórnandi: Emilia Hoving. Tónleikar í Eldborg Hörpu fimmtudaginn 18. janúar 2024.

Við heyrum að jafnaði ekki mikið flutt af tónlist argentínska tónskáldsins Albertos Ginasteras (1916-1983) hér á landi. Það var því vel að á efnisskrá Sinfóníuhljómsveitar Íslands fimmtudagskvöldið 18. janúar sl. væru fjórir dansar úr ballettinum Estancia en svíta úr honum var frumflutt árið 1943. Leikur Sinfóníuhljómsveitar Íslands, undir stjórn hins unga finnska hljómsveitarstjóra Emiliu Hoving var býsna fjörugur frá fyrstu töktum og það var nóg að gera fyrir blásarana, einkum í þriðja og fjórða dansinum. Lýrískur annar dansinn var vel mótaður en mér fannst fjórði dansinn best fluttur; þar byggði Hoving upp spennu allt fram í lokataktana og suðuramerísk einkenni tónlistarinnar voru mest áberandi.

Sellókonsertinn DANCE eftir enska tónskáldið Önnu Clyne (f. 1980) var frumfluttur árið 2019 og hlaut gríðarlega góðar viðtökur. Hann er í fimm þáttum og er innblásinn af 13. aldar persnesku ljóði. Verkið er uppfullt af hrífandi laglínum og einkar vel samið fyrir einleikshljóðfærið, enda nýtir tónskáldið sér í orðsins fyllstu merkinu allt tónsvið sellósins. Verkið er í senn áleitið og viðkvæmt en líka kraftmikið og talar vel til hlustenda; það snertir djúpa kviku. Hljómsveitarútsetningin er líka vel útfærð, hún styður vel við einleikarann og er full af alls kyns litbrigðum.

Finnski sellóleikarinn Senja Rummukainen lék konsertinn ákaflega vel. Hárfínn fyrsti þátturinn („When you're broken open“) hljómaði í senn innhverfur en um leið afar sannfærandi og jafnvægið milli einleikara og hljómsveitar var gott. Rummukainen túlkaði þennan þátt eftirminnilega með viðkvæmri spilamennsku og smekklegu portamento (þar sem hún renndi sér milli tóna) og þessi þáttur er einhver sú fallegasta samtímatónlist sem ég hef heyrt. Kraftmikill annar þátturinn („If you've torn the bandage off“) var líka sannfærandi með afar grípandi aðalstefi sem hljómaði ýmist í meðförum einleikara eða hljómsveitar og var nokkurs konar endurlit til gamalla tíma. Rummukainen túlkaði svo þriðja þáttinn („In the middle of the fighting“) af mikilli dýpt og mótaði langar línur sem hljómsveitin studdi í sparsamri hljómsveitarútsetningu. Krafturinn í fjórða og fimmta þætti („In your blood“ og „When you're perfectly free“) skilaði sér vel og leikur Rummukainen var sem fyrr sannfærandi. Hún var mjög örugg í túlkun sinni og tónninn var alltaf fallegur. Eftirminnilegur flutningur.

Hvorki dansar úr Estancia né DANCE höfðu áður verið flutt á Íslandi en lokaverkið á tónleikunum hefur oft hljómað hér á landi, það er að segja Myndir á sýningu eftir Modest Músorgskíj (1839-1881) í útsetningu Ravels. Það eru til fjölmargar hljómsveitarútsetningar á þessu verki Músorgskíjs sem hann samdi fyrir píanó en sú sem Ravel gerði er langoftast flutt. Um er að ræða virtúósastykki fyrir hljómsveit sem gefur hljóðfæraleikurum tækifæri til þess að sýna hvað í þeim býr.

Músorgskíj sótti innblástur í verk sitt í myndir sem vinur hans, listmálarinn Viktor Hartmann, málaði en um er að ræða alls tíu teikningar og vatnslitamyndir. Hljómsveitarstjórinn, Emilia Hoving, valdi nokkuð hratt tempó í upphafskaflann og það var vísir að því sem koma skyldi en fyrsti trompet á tónleikunum, Monika Holst-Olsen, lék göngustefið glæsilega með fallegum tón. Fyrsta myndin, „Dvergurinn“, var leikin of hratt og það vantaði í túlkunina bæði dýpt og dulúð. „Gamli kastalinn“ tókst mun betur og var fallega mótaður. Það var líka „Uxakerran“ með glæsilegu sólói hjá fyrsta básúnuleikaranum, Jóni Arnari Einarssyni.

Hoving hélt áfram að „mála“ myndir í túlkun sinni en það var farið of hratt yfir sögu og nánast hvergi staldrað við. Þrátt fyrir glæsilegt einstaklingsframtak víða í hljómsveitinni (til að mynda Monika Holst-Olsen á pikkolótrompetinn í kaflanum „Tveir pólskir gyðingar“) hefði Hoving mátt slaka aðeins meira á í túlkun sinni og litast betur um hér og þar. Hraðabreytingar voru heldur ekki alltaf sannfærandi og virkuðu bara alls ekki alls staðar sem skyldi. Túlkunin var því fremur köld og þrátt fyrir góðan leik Sinfóníuhljómsveitar Íslands (og mjög skýrt slag Hoving) skilaði inntak Mynda á sýningu sér ekki nema að mjög takmörkuðu leyti. Við getum kannski orðað það þannig að punktar og kommur voru á réttum stöðum en leiklesturinn sjálfan skorti dýpt og dulúð. Hoving byggði að vísu upp töluverða spennu í lokaþættinum, „Hliðið mikla við Kænugarð“, en lokataktarnir voru alltof hraðir og keyrðir í gegn. Því miður.

Magnús Lyngdal Magnússon

Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í febrúar 2024

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu