„Biblía óperunnar“ – Maria Callas 100 ára
Hinn 2. desember árið 1923 fæddist stúlka á Flower Fifth Avenue-spítalanum á Manhattan í New York. Á fæðingarvottorðinu stendur ritað nafnið Sophie Cecilia Kalos en hún var hins vegar skírð Maria Anna Cecilia Sofia Kalogeropoulos. Faðir stúlkunnar stytti fyrst ættarnafnið (Kalogeropoulos) í Kalos en breytti því svo loks í Callas. Þessi stúlka varð síðar heimsfræg undir heitinu Maria Callas.
Foreldrar Callas, George Kalogeropoulos (1881-1972) og Elmina Evangelia Litsa Dimitriadou (1894-1982), voru af snauðu fólki komin. Þeim varð þriggja barna auðið og var Maria yngst. Fyrir áttu þau Jackie (f. 1917) og Vassilis (f. 1920) en drengurinn féll frá árið 1922. Eftir að Litsa varð ólétt að Mariu afréð Georg að fjölskyldan skyldi freista gæfunnar í Bandaríkjunum, þrátt fyrir hávær mótmæli Litsu, og fluttust þau búferlum vestur um haf sumarið 1923, um það bil fjórum mánuðum áður en Callas fæddist.
Lífið vestra var enginn dans á rósum og ekki hjálpaði til að hjónaband þeirra Georges og Litsu reyndist stormasamt. Hún flutti því aftur til Grikklands með stelpurnar árið 1937 og sama ár innritaðist Callas í tónlistarháskóla í Aþenu, fyrst í Grísku þjóðarakademíuna og tveimur árum síðar í Tónlistarháskólann í Aþenu. Callas hafði snemma sýnt mikla tónlistarhæfileika og tranaði móðir hennar henni fram við hvert tækifæri; það var upphafið að erfiðu sambandi mæðgnanna sem slitnaði endanlega upp úr laust eftir árið 1950. Raunar hélt Callas því allar götur fram að móðir sín hefði svipt sig æskunni og það fyrirgaf hún aldrei.
Callas hóf söngnám þrettán ára gömul og lagði hart að sér. Þannig var sagt að hún hefði mætt fyrst allra á morgnana og farið síðust heim á kvöldin. Í öndverðu var Callas talin vera contralt en fljótlega skipti fyrri kennarinn hennar, Maria Trivella, um skoðun og áleit hana vera mezzósópran; hæðin lá líka vel fyrir henni. Seinni kennari Callas, Elvira Hidalgo, hélt áfram að vinna í hæðinni og raunar að beisla þetta mikla hljóðfæri sem Callas hafði hlotið í vöggugjöf.
Callas kom fyrst fram á Grikklandi í litlu hlutverki árið 1941 en það var ári síðar sem hún þreytti frumraun sína í titilhlutverkinu í Toscu eftir Puccini. Þá varð ekki aftur snúið og þegar Callas kvaddi Grikkland í lok seinna stríðs hafði hún sungið 56 sýningar (í sjö hlutverkum) og komið fram á 20 einsöngstónleikum.
Þvert á ráðleggingar Hidalgo hélt Callas til Bandaríkjanna árið 1945 og hóf að syngja þar, meðal annars við Metrópólítan-óperuna. Þar var henni boðinn byrjendasamningur sem hún hafnaði en ári síðar var hún ráðin til þess að syngja titilhlutverkið í Turandot eftir Puccini í Chicago. Áður en að frumsýningu kom fór óperuhúsið hins vegar á hausinn en bassasöngvarinn Nicola Rossi-Lemeni, sem einnig hafði átt að syngja í sömu sýningu, hreifst mjög af rödd Callas og mælti með henni við ítalska hljómsveitarstjórann Tullio Serafin. Það leiddi af sér titilhlutverkið í La Giaconda eftir Ponchielli á Arena di Verona og nú fóru hjólin að snúast.
Lærði hlutverk á sex dögum
Kannski má þó segja að eftir að hafa sungið hlutverk Elviru í I puritani eftir Bellini í Feneyjum árið 1949 hafi allar flóðgáttir brostið. Callas hljóp þar í skarðið fyrir aðra söngkonu og hafði sex daga til að læra hlutverkið og undirbúa sig. Það er enn merkilega fyrir þær sakir að á sama tíma var hún að syngja hlutverk Brynhildar í Die Walküre eftir Wagner sem er skrifað fyrir dramatískan sópran; Elvira er hins vegar bel canto-hlutverk, skrifað fyrir miklu léttari rödd. Callas sló hins vegar rækilega í gegn en það kom Serafin ekki á óvart sem sagði hana geta sungið allt!
Nú féllu vígin hvert á fætur öðru: Mílanó (La Scala) 1951, Lundúnir (Covent Garden) 1952, Chicago (Lyric) 1954 og New York (Metrópólítan) 1956 svo dæmi séu tekin. Oftast þreytti hún frumraun sína í titilhlutverkinu í Normu eftir Bellini og af þeim tæplega 50 hlutverkum sem hún söng var Norma í uppáhaldi.
Samhliða heimsfrægð komust fljótlega á kreik alls kyns sögur um Callas. Hún átti að vera erfið í samstarfi og reglulega var fjallað um eitrað samband hennar við móður sína. Þá deildu Callas og ítalska sópransöngkonan Renata Tebaldi opinberlega en þær voru oft (en ranglega) bornar saman. Ranglega segi ég, því þær voru gerólíkar söngkonur. Callas átti það líka til (eins og margir óperusöngvarar) að afboða sig á sýningar, þá aðallega vegna veikinda. Frægasta dæmið var þegar hún lét staðar numið eftir fyrsta þátt í Normu í Róm árið 1958 og olli það miklu fjaðrafoki. Sama ár var hún rekin af Metrópólítan-óperunni. Ástæða þess var að hún neitaði að syngja hlutverk Víólettu í La traviata eftir Verdi (lýrískt hlutverk) og hlutverk Lafði Macbeth í Macbeth eftir Verdi (dramatískt hlutverk) með nokkurra daga millibili. „Rödd mín er ekki lyfta,“ sagði Callas við það tækifæri og óperustjórinn Rudolf Bing rak hana. Fyrirsagnir í heimspressunni daginn eftir hljóðuðu svo: „Bing rekur Callas!“
Nýtur enn mikilla vinsælda
Frá blautu barnsbeini hafði Callas verið yfir kjörþyngd. Hún létti sig hins vegar um nærri 40 kíló 1953-1954. Það er nefnt í sömu andrá og það að rödd hennar tók að dala. Margt annað hefur einnig verið nefnt, svo sem að Callas hafi framan af sungið of þung hlutverk eða þá að hún hafi einfaldlega misst kjarkinn til að koma fram á sviði. Hver svo sem skýringin kann að vera má segja að eftir 1955 hafi Callas farið að eiga í verulegum vandræðum með röddina. Það varð til þess að hún hætti endanlega að koma fram í óperuhúsum en síðustu sýninguna á sviði söng hún í Lundúnum (Covent Garden) í júlí 1965. Hún kom lengur fram á einsöngstónleikum en var aðeins skugginn af sjálfri sér.
Callas hafði gifst Giovanni Battista Meneghini árið 1949 og entist hjónabandið í 10 ár (þau skildu hins vegar ekki formlega fyrr en árið 1966). Eftir að upp úr hjónabandinu slitnaði tók Callas saman við gríska skipakónginn Aristotle Onassis sem síðar fór frá Callas (1968) fyrir Jackie Kennedy. Síðustu árin bjó Callas í París þar sem hún lést úr hjartaáfalli hinn 16. september 1977, 53 ára að aldri. Síðustu árin hafði hún einangrað sig mikið; kenndi að vísu masterklassa við Juilliard 1971-1972 og fór svo í misheppnaða tónleikaferð um heiminn 1973-1974 (með Giuseppe di Stefano).
Callas er erkitýpan af dívu og flestir ef ekki allir kannast að minnsta kosti við nafnið og tengja það óperuheiminum. Hún nýtur enn mikilla vinsælda, tæpri hálfri öld eftir að hún féll frá, og má nefna sem dæmi að í hverjum mánuði streyma yfir tvær milljónir hlustenda efni með henni á Spotify.
Margar tilraunir hafa verið gerðar til þess að flokka rödd Mariu Callas. Það er hins vegar ekki auðvelt. Var hún mezzósópran með firna góða hæð, dramatískur sópran eða jafnvel dramatískur koloratúrsópran? Úr því fæst sjálfsagt aldrei skorið en eftir hana liggja fjölmargar upptökur, þar á meðal 20 heildarupptökur af aðskiljanlegum óperum auk einsöngsplatna. Þá eru til ókjör af tónleikaupptökum með henni. Frægasta upptakan er sennilega Tosca eftir Puccini frá 1953 með þeim Giuseppe di Stefano og Tito Gobbi en það er de Sabata sem stjórnar (EMI/Warner).
Bandaríski hljómsveitarstjórinn og tónskáldið Leonard Bernstein kallaði Callas eitt sinn „biblíu óperunnar“ en þau unnu náið saman um tíma. Vísast er það rétt lýsing. Hins vegar er það þannig að Callas er ekki allra, það er að segja sem söngkona. Við sem dýrkum hana (og við erum mörg) erum hins vegar á því að hér fari ein fremsta óperusöngkona veraldar og það er ljóst að hún var stórkostlegur listamaður, bæði í leik og söng.
Magnús Lyngdal Magnússon
Greinin birtist í Morgunblaðinu í desember 2023