„Þegar svefninn sækir að“
- Tónskáld
- Engelbert Humperdinck
- Flytjendur
- Jóna G. Kolbrúnardóttir, Kristín Sveinsdóttir, Eggert Reginn Kjartansson, Hildigunnur Einarsdóttir, Áslákur Ingvarsson, Hanna Ágústa Olgeirsdóttir
- Kór, hljómsveit, stjórnandi
- Kammeróperan
Hans og Gréta
★★★★½
Tónlist: Engelbert Humperdinck. Líbrettó: Adelheid Wette. Íslensk þýðing: Bjarni Thor Kristinsson. Leikstjórn: Guðmundur Felixson. Búningar og leikmynd: Eva Björg Harðardóttir. Lýsing: Friðþjófur Þorsteinsson. Tónlistarstjórn: Gísli Jóhann Grétarsson. Hljómsveit: Eva Þyri Hilmarsdóttir (píanó), Anna Elísabet Sigurðardóttir (víóla), Steiney Sigurðardóttir (selló), Baldvin Ingvar Tryggvason (klarínett) og Emil Friðfinnsson (horn). Söngvarar: Jóna G. Kolbrúnardóttir (Gréta), Kristín Sveinsdóttir (Hans), Eggert Reginn Kjartansson (nornin), Hildigunnur Einarsdóttir (mamman), Áslákur Ingvarsson (pabbinn) og Hanna Ágústa Olgeirsdóttir (Óli lokbrá). Kammeróperan frumsýndi í Tjarnarbíói 2. desember 2023.
Það skein eftirvænting úr augum margra ungra frumsýningargesta í Tjarnarbíói á laugardaginn var þegar ævintýraópera þýska tónskáldsins Engelberts Humperdincks var frumsýnd í Tjarnarbíói. Kannski ekki laust við að eftirvæntingin væri að einhverju leyti blandin smá ótta: Hvernig skyldi nú nornin líta út? Það fór hins vegar allt á besta veg og ég sá ekki betur en að gestir hafi skemmt sér fádæma vel, ungir sem og aldnir (og allt þar á milli).
Engelbert Humperdinck fæddist í Siegburg í Þýskalandi 1854 og lést í Neustrelitz 1921 og má því nokkurn veginn flokka sem síðrómantískt tónskáld. Hann hóf snemma að nema píanóleik og bar með sér augljósa tónlistarhæfileika en afréð þó að skrá sig í arkitektúr þegar kom að því að velja háskólanám. Ekki leið á löngu þar til Humperdinck gaf húsagerðarlistina upp á bátinn – föður sínum til armæðu – og innritaðist í tónlistarnám við Kölnarháskóla. Námið sóttist vel og innan nokkurra ára hafði Humperdinck víða hlotið verðlaun fyrir námsárangur. Eftir fimm ár í Köln hélt hann í framhaldsnám við Konunglega tónlistarháskólann í München 1877 og komst þar í fyrsta skipti í kynni við tónlist Wagners. Þýski meistarinn átti eftir að hafa meiri áhrif á Humperdinck en nokkurt annað tónskáld. Humperdinck sá til að mynda Hringinn árið 1878 og gekk í kjölfarið í Wagnerfélagið í München. Leiðir þeirra tveggja lágu svo saman stuttu síðar. Humperdinck hafði hlotið námsdvöl á Ítalíu að launum árið 1880 fyrir afburða námsárangur og þar komst hann í kynni við Richard Wagner sjálfan sem í kjölfarið bauð hinu unga og upprennandi tónskáldi að koma til Bayreuth 1881 og aðstoða sig við frumflutninginn á Parsifal; boð sem Humperdinck þáði með þökkum.
Ég nefni þessi kynni Humperdincks af Wagner því engum dylst – sem þekkir verk Wagners – að þýski meistarinn hefur haft mikil áhrif á Humperdinck. Reyndar voru þessi áhrif vinum og samstarfsmönnum Humperdincks nokkurt áhyggjuefni; þeir töldu meðal annars að aðdáun hans á Wagner stefndi sjálfstæði hans í hættu. Þessu andmælti Humperdinck og svaraði því til að hann myndi glaður fórna öllum frumleika ef hann gæti samið kóra á borð við þá sem heyra má í Parsifal.
Það birtist sem sagt áberandi Wagnerismi í ævintýraóperunni Hans og Grétu (til að mynda þykkir hljómar, samofnar laglínur og ítrekun stefja í takt við atburðarás) en það má líka komast þannig að orði að einfaldleiki sé annað aðalmerki verksins. Frábærlega eftirminnilegar laglínur – og þá bæði þær sem Humperdinck sótti í þýsk þjóðlög sem og frumsamdar laglínur – ljá verkinu ákveðinn blæ sem er ólíkur flestum öðrum óperum. Humperdinck leggur út af þýskum þjóðlögum á þremur eða fjórum stöðum í Hans og Grétu. Það er hins vegar nokkuð algengur misskilningur að tónskáldið hafi stuðst meira og minna við þjóðlög í verkinu. Það er kannski ekkert skrýtið enda eru sumar frumsamdar laglínur Humperdincks í óperunni einkar grípandi en um leið frábærlega einfaldar og vega þannig upp á móti þykkri hljómsveitarútsetningu.
Þó svo að flestir hafi alist upp við að heyra ævintýrið um Hans og Grétu er rétt að benda á að leikgerð óperunnar er örlítið frábrugðin útgáfu Grimms-bræðra. Þetta er þó bitamunur, ekki fjár, og í öllum aðalatriðum kannast hlustendur við söguna. Hér eru þó öngvir brauðmolar sem vísa veginn heim og í stað vondu stjúpunnar sem flæmir Hans og Grétu á brott hittum við fyrir sjálfa móður barnanna, Geirþrúði. Hún er í eðli sínu alls ekki illa innrætt eins og vonda stjúpan en er þjökuð af áhyggjum af framfærslu fjölskyldunnar. Pabbinn, eða Pétur, er hins vegar léttlyndur og kannski ívið drykkfelldur náungi sem hefur minni áhyggjur af framtíðarhorfum fjölskyldunnar.
Sú gerð sem Kammeróperan færði upp að þessu sinni er nokkuð stytt, enda meðal annars ætluð börnum fimm ára og eldri, og hljómsveitarútsetningin er umritun fyrir píanókvintett (klarínett, horn, víóla, selló og píanó). Það kom í sjálfu sér ekki að sök, enda um kammeruppfærslu að ræða. Umritun var í höndum tónlistarstjórans, Gísla Jóhanns Grétarssonar, og fórst honum það vel úr hendi – gerði sem sagt mikið úr litlu. Bjarni Thor Kristinsson annaðist íslenska þýðingu textans og var hún á köflum stórskemmtileg og listilega vel útfærð. Til að mynda þýddi Bjarni upphafið að dúettinum fallega „Abends will ich schlafen gehn“ sem „Þegar svefninn sækir að“ og það var fallegt augnablik í sýningunni.
Söngurinn var góður en einsöngvarar voru sex talsins. Raddirnar voru ekki ýkja stórar en það fór vel á því miðað við uppfærsluna. Ég sat á öðrum bekk og jafnvægið milli söngvara og hljóðfæraleikara – sem voru staðsettir aftan við leikmyndina – var fínt. Þá var framburður skýr. Ég vil ekki gera upp á milli söngvara í sýningunni, enda stóðu þeir sig allir vel, en það myndaðist skemmtileg stemning í salnum þegar nornin (Eggert Reginn Kjartansson) steig á svið; það var bæði hlegið og grátið.
Uppfærslunni var vel leikstýrt af Guðmundi Felixsyni og leikmyndin var giska falleg í einfaldleika sínum. Þá var lýsingin góð. Hljóðfæraleikarar stóðu sig líka afar vel og heildarútkoman var skemmtileg og falleg sýning sem höfðar til allra. Við sjáum ekki mikið af óperu á Íslandi nú um stundir og uppfærsla Kammeróperunnar er því kærkomin.
Magnús Lyngdal Magnússon
Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í desember 2023