Kammertónlist í blóma
- Tónskáld
- Ludwig van Beethoven, Finnur Karlsson, Robert Schumann
- Flytjendur
- Strokkvartettinn Siggi
Kammermúsíkklúbburinn
★★★★½
Tónlist: Ludwig van Beethoven (strengjakvartett í F-dúr nr. 1, op. 18), Finnur Karlsson („Ground“ fyrir strengjakvartett), Robert Schumann (píanókvintett í Es-dúr, op. 44). Strokkvartettinn Siggi (Una Sveinbjarnardóttir fiðla, Helga Þóra Björgvinsdóttir fiðla, Þórunn Ósk Marínósdóttir víóla og Sigurður Bjarki Gunnarsson selló), Bjarni Frímann Bjarnason píanó. Tónleikar í Norðurljósum Hörpu sunnudaginn 12. nóvember 2023.
Joseph Haydn er oft auknefndur „faðir strengjakvartettsins“ (og raunar sinfóníunnar líka) en það kom í hlut Ludwigs van Beethovens (1770-1827) að þróa formið áfram og svo að segja fullkomna það. Beethoven kom til Vínarborgar árið 1792 og vakti strax athygli, ekki síst sem afburðapíanisti, en hann átti þó enn margt ólært í tónsmíðum og sótti meðal annars um skeið tíma hjá Haydn – þótt samskipti þeirra hafi aldrei náð flugi.
Tónskáldaferli Beethovens er jafnan skipt í þrjú tímabil og nær hið fyrsta fram til ársins 1802, miðtímabilið frá 1802-1812 og hið síðasta frá 1812 og uns hann lést í mars 1827. Fyrstu sex strengjakvartettar tónskáldsins komu út árið 1801 en voru að mestu samdir á árunum 1799-1800. Þeir tilheyra því fyrsta tímabilinu á tónskáldaferli Beethovens, rétt eins og til að mynda fyrsta sinfónían, og þar eru áhrifin frá Haydn og Mozart nokkuð áberandi. Fyrstur kvartettanna op. 18 sækir til að mynda fyrirmyndina að aðalstefi fyrsta þáttar (Allegro con brio) í 32. fiðlusónötu Mozarts (K. 454) og strengjakvartett Haydns (nr. 1, op. 50) en Beethoven horfir eftir sem áður fram á veginn og ólíkt syngjandi stefjum Haydns og Mozarts er stef Beethovens brotakenndara. Strengjakvartettar þóttu líka „lærð“ tónlistargrein upp úr aldamótunum 1800 og því ekki á hvers manns færi að leggja formið fyrir sig. Það gerði Beethoven hins vegar með eftirminnilegum hætti í alls sextán aðskildum kvartettum sem hver og einn þykja afbragð og ljúka upp dyrum sem áður voru luktar í tónlistarsögunni.
Það er öllu tónlistarfólki hollt að leika kammertónlist þar sem hver og einn flytjandi er ábyrgur fyrir sínum parti og hlustun er ekki síðri þáttur en sjálfur leikurinn. Það var greinilegt á aðsókninni í Norðurljósasal Hörpu að kammertónlist nýtur mikillar hylli og stemningin var góð. Það var líka greinilegt frá fyrstu töktum í Beethoven-kvartettinum að Strokkvartettinn Siggi hefur á að skipa góðum hljóðfæraleikurum, enda var fyrsta innkoman bæði fumlaus, hrein og full af blæbrigðum. Jafnvægi milli hljóðfæra var gott og spilamennskan var mjög samhæfð. Eftir sem áður var mikill karakter í spilamennskunni og styrkleikabreytingar og notkun á rubato bæði smekkleg og sannfærandi. Það var sem sagt mikil músík í hendingum, sem voru fallega mótaðar, og saman mynduðu þær langar línur. Þannig háttar einmitt til í strengjakvartettum að hver einasta nóta í hverju einasta hljóðfæri heyrist og það kallar því á mikinn aga að leika slík verk. Því var einmitt fyrir að fara hjá Strokkvartettinum Sigga í Hörpu og flutningurinn á þessu snemmbúna verki Beethovens reyndist bæði fallegur og sannfærandi. Verkið flaut vel áfram og spilamennskan einkenndist af stöðugri framvindu, án þess þó að hljóma flýtt. Ég varð var við smá intónasjónvandamál í 4. þættinum (Allegro), annars var flutningurinn til fyrirmyndar.
Næst á efnisskránni var nýtt verk, það er að segja frumflutningur á nýjum strengjakvartett eftir Finn Karlsson (f. 1988). Það er mikilvægt að leika samtímatónlist (og raunar hljóðrita hana líka) og það var vel að Strokkvartettinn Siggi, sem verkið var samið fyrir, skyldi prógrammera það inn á milli klassískra verka tónlistarsögunnar. Mér fannst Finni takast vel upp. Þannig gekk býsna einfalt en grípandi stef 1. þáttar (Stack) hugvitsamlega í gegnum kvartettinn; hrynjandin í 2. þætti (208 slides) var skemmtileg og gullfallegur 3. þátturinn (#32, take two) byggist á kafla úr eldra einsöngsverki Finns, „Fjögur lög með millispilum“. Fjórði þátturinn (Different Day) bauð svo upp á nokkurs konar mínimalisma og var eiginlega Pärt-ískur í einfaldleika sínum. Það er mikið þing að samtímatónskáld skuli nýta sér strengjakvartettsformið og Finnur á hrós skilið, sem og Stokkvartettinn Siggi sem flutti verkið vel. Spilamennskan var að mestu hrein og einkenndist af samheldni og öryggi.
Eftir hlé var á efnisskránni einn af hornsteinum rómantíkurinnar, píanókvintett í Es-dúr op. 44 eftir Robert Schumann (1810-1856). Verkið samdi tónskáldið árið 1842, þá á svonefndu „kammerári“ Schumanns en hann helgaði sig ólíkum formum á mismunandi tíma á tónskáldaferli sínum (til að mynda var árið 1840 ár sönglagsins, 1841 ár sinfóníunnar og svo framvegis). Schumann var býsna snöggur að semja kvintettinn, gekk hreint til verks og lauk honum á fáeinum vikum haustið 1842. Kvintettinn er tileinkaður eiginkonu Schumanns, Clöru Wieck, en þar gætir einmitt töluverðra áhrifa frá Beethoven, ekki síst í 3. og 4. þætti verksins. Það var frumflutt í einkasamkvæmi í desember árið 1842 en svo hljómaði það fyrst opinberlega í Leipzig (Gewandhaus) í janúar 1843. Því var almennt vel tekið en það var einna helst Franz Liszt sem hafði um það efasemdir, nokkuð sem fór mjög fyrir brjóstið á Schumann og hann erfði það við hann um langt skeið, meðal annars í einkabréfum.
Píanópartinum hefur verið lýst sem snúnum eða jafnvel „djöfullegum“ en til stóð að Clara léki hann í fyrrnefndu einkasamkvæmi í desember 1842. Vegna veikinda dró hún sig í hlé og það var enginn annar en Felix Mendelssohn sem hljóp í skarðið, óundirbúinn, og lék partinn beint af blaðinu. Clara var hins vegar orðin heil heilsu þegar verkið hljómaði fyrst opinberlega og hún lék það margoft á næstu árum, enda naut það (og nýtur) mikilla vinsælda.
Rétt eins í Beethoven fyrir hlé var fyrsta innkoma (Allegro brilliante) Strokkvartettsins Sigga (nú ásamt Bjarna Frímanni Bjarnasyni á píanó) algjörlega fumlaus og sannfærandi. Það var gott jafnvægi milli strengja og flygilsins og allar hendingar voru vel mótaðar. Þannig kölluðust ólík hljóðfæri á, sum hófu stef á meðan önnur kláruðu eða botnuðu hugsanir tónskáldsins og allt fór fram með eðlilegri öndun á milli stefja og hendinga. Eins og í Beethoven var framvindan stöðug og flutningurinn leitaði þannig eðlilega áfram.
Sennilega er útfararmarsinn í öðrum þætti (In modo d'una Marcia) meðal átakanlegri tónsmíða Schumanns og viðkvæm spilamennskan skilaði einmitt inntakinu vel. Niðurlag þáttarins (Coda) var einstaklega vel leikið og tilfinningaþrungið. Þriðji þáttur (Scherzo: Molto vivace – Presto) var hárfínt leikinn og það sama var upp á teningnum í fjórða þætti (Allegro ma non troppo), þar sem flytjendur mótuðu saman langar línur, kryddaðar með blæbrigðum þar sem ýmist var hægt á eða gefið í. Þannig var notkun flytjenda á rubato til fyrirmyndar og hljómaði alltaf eðlilega. Æsilegt niðurlag (Coda) fjórða þáttar var svo rúsínan í pylsuendanum.
Flutningur þeirra Unu Sveinbjarnardóttur, Helgu Þóru Björgvinsdóttur, Þórunnar Óskar Marínósdóttur, Sigurðar Bjarka Gunnarssonar og Bjarna Frímanns Bjarnasonar á verki Schumanns var fyrsta flokks. Jafnræðis gætti meðal hljóðfæra og flutningur var á dýptina, tónlistarlega séð. Ég ítreka að það er ekki einfalt mál að leika í strengjakvartett – eða þá kammertónlist yfir höfuð – en allir flytjendur skiluðu sínu og vel það. Þessir fjórðu tónleikar Kammermúsíkklúbbsins á starfsárinu 2023-2024 voru hljóðfæraleikurunum til sóma og það var greinilegt af viðbrögðum í þétt setnum Norðurljósasalnum að áheyrendur kunnu að meta flutninginn.
Magnús Lyngdal Magnússon
Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í nóvember 2023