Aflaun einleikarans
- Tónskáld
- Jennifer Higdon, Sergej Rakhmanínov, Sergej Prokofíev
- Flytjendur
- Kirill Gerstein
- Kór, hljómsveit, stjórnandi
- Sinfóníuhljómsveit Íslands, Stéphane Denève
Aflraun einleikarans
Harpa Gerstein leikur Rakhmanínov
Higdon og Rakhmanínov ★★★★
Prokofíev ★★★★★
Tónlist: Jennifer Higdon (Blue Cathedral), Sergej Rakhmanínov (píanókonsert nr. 3), Sergej Prokofíev (Rómeó og Júlía, úr svítum 1, 2 og 3). Kirill Gerstein (einleikari). Sinfóníuhljómsveit Íslands. Konsertmeistari: Sigrún Eðvaldsdóttir. Hljómsveitarstjóri: Stéphane Denève. Tónleikar í Eldborg Hörpu fimmtudaginn 26. október 2023.
Jennifer Higdon (f. 1962) er afkastamikið bandarískt tónskáld en eftir hana liggja til að mynda konsertar, hljómsveitarverk og ópera. Verkið blue cathedral (1999) samdi hún til minningar um bróður sinni og var það býsna áheyrilegt. Það fór fínlega af stað, reis hátt og endaði svo undurblítt. Þetta er vinsælasta verk Higdon og hefur verið flutt yfir 750 sinnum um heim allan. Sinfóníuhljómveit Ísland lék verkið vel en þar er lögð áhersla á tvö hljóðfæri, flautu og klarínett; sjálf er Higdon flautuleikari en bróðir hennar lék á klarínett. Bæði Grímur Helgason (klarínett) og Astrid Bjelland (flauta) skiluðu sínum pörtum vel og það var mikill samhljómur í hljómsveitinni undir styrkri stjórn Stéphanes Denèves.
Sergej Rakhmanínov (1873-1943) leit fyrst og fremst á sig sem tónskáld en hann var ekki bara hæfileikaríkur hljómsveitarstjóri heldur einnig einn fremsti píanóleikari veraldar á sinni tíð (hann var með óvenju stórar hendur). Sem tónskáld sótti hann innblástur í 19. öldina ásamt því að þróa áfram eigin síðrómantískan stíl. Tónsmíðum hans var þó ekki alltaf vel tekið. Fyrsta sinfónían kollféll þegar hún var frumflutt í mars 1897 og hafði það mikil áhrif á sjálfstraust tónskáldsins. Raunar svo mikið að Rakhmanínov sökk í djúpt þunglyndi sem varði í nokkur ár. Eftir að hafa leitað sér aðstoðar árið 1900 fór að rofa til og í nóvember árið 1901 frumflutti hann píanókonsert númer tvö við fádæma undirtektir. Smám saman hóf Rakhmanínov að semja á ný og hinn þriðja í röð píanókonserta samdi hann árið 1909, þá fyrir tónleikaferð til Bandaríkjanna. Þessi konsert er jafnan talinn erfiðastur rómantískra píanókonserta í flutningi, þótt hann hafi kannski fallið – framan af – í skuggann af þeim númer tvö.
Kirill Gerstein mótaði hið dapurlega inngangsstef konsertsins ákaflega vel og það var raunar vísir að því sem koma skyldi: Mikil notkun á rubato (hraðabreytingum) og diminuendo og crescendo (styrkleikabreytingum). Gerstein málaði þannig myndir með píanóinu sem birtust áheyrendum ljóslifandi í Hörpu. Raunar voru hraðabreytingar hans það miklar að hljómsveitarstjórinn, Stéphane Denève, átti fullt í fangi með að fylgja honum en sambandið milli þeirra var annars ljómandi gott. Þá voru líka mikil blæbrigði í leik Gersteins, til að mynda í kadensu fyrsta þáttar sem ýmist var leikin af miklum krafti eða undurblítt. Ég tók líka eftir því að í hvert sinn sem upphafsstefið skaut aftur upp kollinum í fyrsta þætti mótaði Gerstein það ákaflega vel, ekki síst í þriðja og síðasta skipti. Annar kaflinn var líka vel leikinn, þótt ég hefði á sumum stöðum, einkum framan af, kosið meiri fyllingu í strengina. Það ætlaði svo eiginlega allt um koll að keyra í þriðja þættinum og þótt skiptingin milli annars og þriðja þáttar hafi ekki verið alveg nákvæm var hann líka vel leikinn. Almennt var tempóið í konsertinum nokkuð hratt (þó ekki jafn hratt og hjá tónskáldinu sjálfu sem hljóðritaði hann með Fíladelfíu-hljómsveitinni og Eugene Ormandy (fyrir RCA)). Gerstein minntist þess svo í aukalaginu að í ár eru 150 ár liðin frá fæðingu Rakhmanínovs og lék hann fallegt sönglag, In the Silence of the Secret Night, eftir tónskáldið. Fyrsta flokks flutningur.
Það verður sjálfsagt ávallt hulin ráðgáta hvers vegna Sergej Prokovíev (1891-1953) kaus að flytja aftur til Sovétríkjanna árið 1936, það er að segja beint í hreinsanir Stalíns, en hann hafði verið búsettur í París um árabil en um það leyti samdi hann einmitt ballettinn við Romeó og Júlíu. Upp úr honum tók hann svo saman þrjár svítur og það var hljómsveitarstjórinn, Stéphane Denève, sem valdi efni tónleikanna í Hörpu og valið tókst ákaflega vel. Þessa kafla úr svítunum hefur Denève einmitt hljóðritað fyrir Deutsche Grammophon með Fílharmóníusveitinni í Brussel (2017) og má hlýða á þá upptöku á öllum helstu streymisveitum.
Strax í fyrsta þættinum, Fyrirskipun prinsins, var gífurlegur kraftur í stórri hljómsveit á sviðinu (12 fyrstu fiðlur, fimm kontrabassar o.s.frv.) og það var greinilegt á þessum flutningi að Denève hafði haldið nokkuð aftur af hljómsveitinni í píanókonsertinum. Denève, sem stjórnaði blaðlaust, var með allar innkomur á hreinu og stjórnaði af miklu öryggi. Sumt var hratt, annað ekki og það voru mikil blæbrigði (dýnamík) í leik Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Þannig leyfði hann til að mynda málmblásturshljóðfærum að leika sterkt á köflum (nokkuð sem ekki allir hljómsveitarstjórar gera) og Denève náði þannig upp mikilli stemningu. Mér fannst kaflarnir Dans riddaranna og Dauði Tybalts frábærlega fluttir en heildin var líka framúrskarandi góð.
Mikið var um lofsvert eintaklingsframtak í hljómsveitinni og ég nefni sérstaklega Sigurð Flosason (saxófónn), Juliu Hantschel (óbó), Astrid Bjelland (flauta), Arngunni Árnadóttur (klarínett), Einar Jónsson (trompet) og ekki síst hornin öll! Það var líka mikil dýpt í strengjunum og flutningurinn var þannig að maður hefði getað hlustað helmingi lengur.
Ég hef áður vikið að því í rýni hér í Morgunblaðinu að það skipti máli hver heldur á tónsprotanum. Denève kunni sannarlega sitt fag og honum tókst þannig að lyfta leik Sinfóníuhljómsveitar Íslands upp á æðra plan, það er að segja draga það besta fram í fari hljóðfæraleikaranna. Það er ekki öllum gefið en þegar það tekst er hrein unun að hlýða á. Bjóðum honum aftur.
Magnús Lyngdal Magnússon
Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í nóvember 2023