Ljóðræn flugeldasýning
- Tónskáld
- Veronique Vaka, Béla Bartók, Ludwig van Beethoven
- Flytjendur
- Leila Josefowicz
- Kór, hljómsveit, stjórnandi
- Sinfóníuhljómsveit Íslands, Eva Ollikainen
Bartók og Beethoven
Veronique Vaka ★★★★
Bartók ★★★★★
Beethoven ★★½·
Tónlist: Veronique Vaka (Inmost), Béla Bartók (fiðlukonsert nr. 2), Ludwig van Beethoven (sinfónía nr. 3). Leila Josefowicz (einleikari). Sinfóníuhljómsveit Íslands. Konsertmeistari: Sigrún Eðvaldsdóttir. Hljómsveitarstjóri: Eva Ollikainen. Tónleikar í Eldborg Hörpu fimmtudaginn 9. nóvember 2023.
Það stóð mikið til í Hörpu fimmtudaginn 9. nóvember síðastliðinn, enda á dagskrá Sinfóníuhljómsveitar Íslands heimsfrumflutningur á nýju verki eftir Veronique Vöku (f. 1986). Inmost („innstur“ eða „dýpstur“) er um það bil 11 mínútna verk sem sækir innblástur í rannsóknir og kortlagningu tónskáldsins á landslagi Heklu. Meðal annarra orða, þá beindi Veronique Vaka sjónum að gjóskudreifingu úr eldgosum á tímabilinu frá 3.000 til 950 f.Kr. og tileinkaði verkið hljómsveitarstjóra kvöldsins, Evu Ollikainen. Með verkinu pantaði tónskáldið ljóð frá Steinunni Arnbjörgu Stefánsdóttur og mátti vel heyra ljóðið kallast á við tónmál verksins, til að mynda „auga Vítis“, „aðalkraft“ og „duft sprengjunnar“, svo eitthvað sé nefnt. Inmost er býsna lágstemmt verk, án eiginlegra stefja en rís inn á milli hátt með risavöxnum hendingum í hljómsveitinni. Mér fannst ég kenna áhrif jarðhræringa í hljóðheimi Veronique Vöku sem einmitt hefur lagt sig eftir að skrá og umrita breytingar sem verða í íslenskri náttúru. Þannig myndaði verkið langar línur og var býsna seigfljótandi, rétt eins og hraun. Verkið var ágætlega flutt af Sinfóníuhljómsveit Íslands, en tvö horn, hluti slagverks og básúna voru staðsett á svölum ofan við hljómsveitina sjálfa og mynduðu þannig nokkurs konar mótvægi við heildina.
Béla Bartók (1881-1945) átti lengst af andstreymt í lífinu. Hann var að vísu afburða píanísti og var prófessor í píanóleik (ekki tónsmíðum, merkilegt nokk) í Ungverjalandi og meðal nemenda hans voru frægir tónlistarmenn á borð við sir Georg Solti og Fritz Reiner. Bartók var alla tíð mjög andsnúinn uppgangi fasisma sem fór eins og eldur í sinu víða á millistríðsárunum, þar á meðal í Austur-Evrópu, og fór svo á endanum að hann hrökklaðist úr landi og stóð slyppur og snauður á bryggjusporði í New York-borg ásamt eiginkonu sinni í október árið 1940. Bandaríkjamenn voru að mestu áhugalausir um tónsmíðar hans og Bartók lést blásnauður vestra í september 1945, þá nýorðinn bandarískur ríkisborgari.
Seinni fiðlukonsert sinn samdi Bartók á árunum 1937-1938, þá í skugga mikilla þjóðernisofsókna í Ungverjalandi. Reyndar talaði tónskáldið sjálft ekki um konsertinn sem þann númer tvö, heldur nefndi hann bara fiðlukonsert. Sá númer eitt var saminn þremur áratugum fyrr (á árunum 1907-1908) og var ekki frumfluttur fyrr en að tónskáldinu látnu (1958).
Í öndverðu hafði Bartók ráðgert að konsertinn (nr. 2) yrði í einum þætti en ungverski fiðluvirtuósinn Zoltán Székely, sem frumflutti verkið, krafðist þess að hann yrði í hefðbundnu konsertformi (þremur þáttum). Það varð úr og verkinu hefur jafnan verið lýst sem einu af stórvirkjum 20. aldarinnar fyrir fiðlu.
Það var greinilegt frá fyrstu innkomu að bandarísk-kanadíski fiðluleikarinn Leila Josefowicz átti alls kostar við flókinn einleikspartinn þegar konsertinn hljómaði í Hörpu á köldu fimmtudagskvöldi. Tónninn hennar er fallegur en kannski eilítið kaldur, sem þó hentaði verkinu prýðilega. Josefowicz hefur fullkomið vald á hljóðfærinu og „söng“ einleikspartinn, innblásin af ljóðrænni túlkun. Verkið er tæknilega erfitt en hvergi bar á því í flutningi Josefowicz. Hún lék konsertinn af innlifun og túlkaði ríkulegt tónmál Bartóks óaðfinnanlega. En ekki misskilja mig, þetta var ekki bara tæknilega fullkominn flutningur, heldur var hann líka mjög á dýptina og fullur af blæbrigðum (til að mynda kadensa 1. þáttar). Um var að ræða mikla keyrslu, sem þó var aldrei á kostnað strúktúrs verksins. Það er fullt af ríkulegum hljómasamsetningum og flókinni hrynjandi sem Eva Ollikainen hélt gríðarlega vel utan um. Þannig varð úr virkt samtal milli Josefowicz og hljómsveitarinnar, sem stóð sig með prýði. Mér fannst einmitt jafnvægið milli einleikara og hljómsveitar gott og saman ófu flytjendur allir þéttan vef sem hljómaði afar sannfærandi út í gegnum verkið. Aukalagið, Bach, var dásamlega flutt.
Engum blöðum er um það að fletta að Ludwig van Beethoven (1770-1827) er í hópi frægustu tónskálda veraldar. Það kom í hans hlut að brúa bilið milli klassíska tímabilsins í tónlistarsögunni og þess rómantíska og hann hafði gríðarleg áhrif á sporgöngumenn sína. Tónskáldaferli hans er jafnan skipt í þrjú tímabil og nær hið fyrsta fram til ársins 1802, miðtímabilið frá 1802-1812 og hið síðasta frá 1812 og uns Beethoven lést í mars 1827. Lengst af ævinni átti Beethoven andstreymt og átti gjarnan í útistöðum við samtíðarmenn sína. Mikið af þessum karaktereinkennum hafa verið rakin til heyrnarleysis hans, en Beethoven byrjaði snemma að missa heyrn og var orðinn nánast alveg heyrnarlaus árið 1811. Þá hætti hann að mestu að koma fram á tónleikum, hvort sem það var sem píanóleikari eða stjórnandi, en hélt þess í stað áfram að semja. Mörg af sínum helstu verkum samdi hann því alveg heyrnarlaus.
Þriðju sinfóníu sína samdi Beethoven á árunum 1803-1804 og tilheyrir hún því miðtímabilinu á tónskáldaferli hans. Langt er síðan farið var að leitast við að flytja verk Beethovens (og annarra barokk- og klassískra tónskálda) eitthvað í líkingu við það sem talið er að þau hafi hljómað í öndverðu. Þessi hreyfing er kennd við upprunastefnu eða HIP (e. Historically Informed Performance). Heimildir um til að mynda tempó og víbrató eru að vísu oft á reiki en margir ganga svo langt að leika þessi verk á upprunahljóðfæri, það er að segja þá gerð hljóðfæra sem tíðkuðust hverju sinni. Í tilviki Beethovens má segja að upprunastefnan hafi leyst af hólmi rómantíska túlkun á verkum hans (hæg og breið) en það er þó ekki algilt. Til mikillar einföldunar má kannski segja að þrenns konar túlkun á til að mynda verkum Beethovens tíðkist nú: Rómantísk túlkun, upprunastefna og túlkun sem fer kannski bil beggja.
Það var greinilegt að Eva Ollikainen sótti hugmyndir að tempói (hraða) í túlkun sinni á þriðju sinfóníu Betthovens í upprunaskólann. Það er að vísu erfitt að nefna heildarlengd hvers kafla fyrir sig, svona til samanburðar, enda oft misjafnt hvaða endurtekningum innan hvers þáttar er fylgt. En rétt rúmlega 14 mínútna fyrsti kafli er hratt, hvernig sem á málið er litið. Sama má segja um nánast jafnlangan annan þátt (útfararmarsinn). En tempó er bara hluti af túlkun. Hvað varðar allar fraseringar þá hljómuðu þær stífar og litbrigðalausar með öllu. Verkið var þannig keyrt í gegn, oft án þess að anda almennilega á milli hendinga. Óspennandi flutningur með öllu, en alls ekki illa leikinn. Sinfóníuhljómsveit Íslands stóð sig þannig býsna vel eftir atvikum, túlkun Evu Ollikainen var bara svo einhæf og flöt. Ég hef áður bæði hrósað Evu í hástert (einkum í 20. aldar verkum og samtímatónlist) en einnig fundið að túlkun hennar á tónlist klassíska og rómantíska tímabilsins í tónlistarsögunni. Þessir tónleikar sýndu, fyrir mína parta, einmitt fram á þennan mun. Þannig hélt Eva Ollikainen gríðarlega vel á tónsprotanum í verkum Veronique Vöku og Bélas Bartóks og mótaði þau vel ásamt því að halda vel utan um jafnvægið milli einleikara og hljómsveitar í fiðlukonsertinum. Annað var upp á teningnum í Beethoven, sem var keyrður í gegn, nánast alveg án núansa. Það á í raun lítið skylt við upprunaskólann, sem oft einkennist af léttum hendingum og miklum styrkleikamun. Því var bara ekki fyrir að fara í Hörpu að þessu sinni.
Magnús Lyngdal Magnússon
Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í nóvember 2023