Beethoven.is
Gagnrýni · 12. október 2023

Hljóðheimur Önnu

Tónskáld
Anna Þorvaldsdóttir
Flytjendur
Bryndís Guðjónsdóttir
Kór, hljómsveit, stjórnandi
Kór Hallgrímskirkju, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Eva Ollikainen

Archora í Hallgrímskirkju

★★★★★

Tónlist: Anna Þorvaldsdóttir. Flutt voru verkin Metacosmos, Heyr þú oss himnum á, Ad Genua og Archora. Kór Hallgrímskirkju. Kórstjóri: Steinar Logi Helgason. Sinfóníuhljómsveit Íslands. Konsertmeistari: Sigrún Eðvaldsdóttir. Hljómsveitarstjóri: Eva Ollikainen. Tónleikar í Hallgrímskirkju föstudaginn 6. október 2023.

Þeir voru stuttir en snarpir, tónleikarnir í Föstudagsröð Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hallgrímskirkju föstudaginn síðastliðinn. Þar var boðið upp á nokkurs konar portrett-tónleika af verkum Önnu Þorvaldsdóttur staðartónskálds SÍ. Anna hefur á undanförnum árum skipað sér í fremstu röð tónskálda á heimsvísu og því var eftirvæntingin mikil og kirkjan þétt setin.

Tónleikarnir hófust svo að segja í óræðu þyngdarleysi. Verkið Metacosmos var upphaflega samið fyrir Fílharmóníusveitina í New York og frumflutt þar árið 2018 við frábærar viðtökur. Um er að ræða verk sem er fullt andstæðna, eins konar átök milli þess dimma og bjarta, einfalda og flókna (eins og svo oft í verkum Önnu). Sinfóníuhljómsveit Íslands lék þetta verk afar vel í Hallgrímskirkju undir stjórn Evu Ollikainen og tónmálið naut sín einkar vel í ríkulegum hljómburði kirkjunnar. Eva byggði upp ótrúlega spennu í túlkun sinni sem smám saman leystist úr læðingi, ásamt því að leyfa ýmsum smáatriðum að heyrast. Mjög góð túlkun.

Næstur steig Kór Hallgrímskirkju á svið og flutti Heyr þú oss himnum á, verk sem Anna samdi fyrir kór án undirleiks árið 2005 við samnefnt kvæði séra Ólafs Jónssonar frá Söndum. Verkið, sem var upphaflega samið fyrir Sumartónleika í Skálholti, kviknaði út frá fornum tvíradda miðaldasálmi (Sanctus) sem finna má í handriti að kvæðabók séra Ólafs. Verk Önnu er ægifagurt, stutt og hnitmiðað og var gríðarlega vel flutt hér af Kór Hallgrímskirkju undir stjórn Steinars Loga Helgasonar. Textaframburður var skýr og öll öndun einkarlega vel samstillt. Þá var balans á milli radda mjög góður.

Verkið Ad Genua var í öndverðu samið fyrir einsöngvara, kammerkór og strengjakvintett en á tónleikunum í Hallgrímskirkju var verkið leikið af heilli strengjasveit. Hér var enn fremur um frumflutning verksins hér á landi að ræða. Ad Genua var samið árið 2016 eftir að Önnu barst beiðni frá kammerkór í Bandaríkjunum (The Crossing) um að semja tónlist út frá óratoríu eftir Dieterich Buxtehude. Afraksturinn var gullfallegt en áleitið verk við texta Guðrúnar Evu Mínervudóttur. Sjálf hefur Anna sagt „að þrá eftir fegurð á tímum sársauka og þjáningar sé ein af kveikjum verksins“, svo vísað sé til efnisskrár tónleikanna. Hér, eins og svo oft í verkum Önnu, takast á andstæður: Björt sópranrödd hvílir ofan á flóknum og þykkum hljómagangi. Bryndís Guðjónsdóttir söng einsöngshlutverkið vel og Eva Ollikainen stýrði strengjasveitinni og Kór Hallgrímskirkju prýðilega. Það getur verið erfitt að sameina einsöng, kór og hljómsveit í kirkjunni í eitthvað sem hljómar sannfærandi (eftirhljómurinn er svo mikill) en þessi flutningur var fínn.

Síðasta verkið á efnisskrá Föstudagsraðarinnar að þessu sinni var hljómsveitarverkið Archora, upphaflega samið fyrir Proms-tónlistarhátíð breska ríkisútvarpsins, BBC, og frumflutt í fyrra. Verkið vísar til hugmynda um frumkraft og hliðstæða veröld sem ýmist er kyrrstæð eða þá síbreytileg – allt á sama tíma. Flutningur Sinfóníuhljómsveitar Íslands undir stjórn Evu Ollikainen var frábær á þessu verki. Aftur fór saman djúpt tónmál, góður flutningur og ríkulegur eftirhljómur Hallgrímskirkju sem gerðu þetta að einkar eftirminnilegum tónleikum.

Sinfóníuhljómsveit Íslands kemur í sjálfu sér ekki oft fram í Hallgrímskirkju en þau skipti sem ég man eftir hefur flutningur ávallt verið góður. Mér finnst að hljómsveitin ætti raunar að gera meira af því að koma fram í kirkjunni, enda sýndu tónleikarnir með verkum Önnu Þorvaldsdóttur að hljómsveitarstjóri sem kann á eftirhljóminn í kirkjunni getur náð fram ótrúlega fínlegri túlkun í bland við risavaxnar hendingar.

Magnús Lyngdal Magnússon

Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í október 2023

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu