Beethoven.is
Gagnrýni · 21. september 2023

Hinn hreini tónn

Tónskáld
Claude Debussy, Toru Takemitsu, Camille Saint-Saëns, Cécile Chaminade, Johannes Brahms
Flytjendur
Emmanuel Pahud
Kór, hljómsveit, stjórnandi
Sinfóníuhljómsveit Íslands, Eva Ollikainen

Konsertþrenna með Emmanuel Pahud

Debussy ★★★★½

Konsertþrenna ★★★★★

Brahms ★★½

Tónlist: Claude Debussy, Toru Takemitsu, Camille Saint-Saëns. Cécile Chaminade, Johannes Brahms. Einleikari: Emmanuel Pahud (flauta). Sinfóníuhljómsveit Íslands. Konsertmeistari: Sigrún Eðvaldsdóttir. Hljómsveitarstjóri: Eva Ollikainen. Tónleikar í Eldborg Hörpu fimmtudaginn 14. september 2023.

Forleikur að Síðdegi skógarpúkans eftir Claude Debussy (1862-1918) hefst á undurblíðu flautusólói sem fyrsta flauta Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Joachim Becerra Thomsen, lék afar fallega. Flautan er raunar áberandi allt til enda verksins og það hlýtur að hafa þurft stáltaugar til þess að spila þennan part, vitandi af fremsta flautuleikara veraldar frammi. Thomsen stóðst prófið með glæsibrag. Það sama má raunar segja um flutninginn í heild. Hann var vandaður og samhentur. Hér gerði Eva Ollikainen afar vel í að stýra fumlausum flutningi sem rann áfram í litríku tónmáli Debussys. Tónleikararnir fóru því vel af stað.

Næstur steig á svið fransk-svissneski flautuleikarinn Emmanuel Pahud. Hann hefur gegnt stöðu fyrsta flautuleikara Berlínarfílharmóníunnar eftir að hafa orðið hlutskarpastur í prufuspili um stöðuna árið 1992, þá einungis 22 ára gamall. Pahud er jafnframt eftirsóttur einleikari um heim allan og flytur sem slíkur bæði ný verk og sígild.

Pahud reið á vaðið í Hörpu með einleiksverki eftir japanska tónskáldið Toru Takemitsu (1930-1996). Takemitsu var fyrsta tónskáldið frá Asíu til þess að öðlast frama í klassískum tónlistarheimi Vesturlanda. Verkið, I Hear the Water Dreaming, lýsir í stuttu máli samspili flautunnar við vatnstákn í vesturáströlsku frumbyggjaverki, Water Dreaming, það er að segja flautan leikur stef snemma í verkinu sem kallast á við þessa mynd. Stefið gengur svo í gegnum verkið og tekur ýmsum breytingum í svo að segja draumkenndum þáttum. Áheyrendur í Hörpu fengu strax í upphafi að heyra hinn hreina, silkikennda tón Pahuds. Þrátt fyrir að vera tæknilega erfitt (mikið af stökkum) og reyna á ólík raddsvið flautunnar má segja að Pahud hafi leikið verkið eins og að drekka vatn. Hljómsveitin lék undir af öryggi.

Það sama má segja um Odelette eftir Camille Saint-Saëns en verkið samdi tónskáldið undir lok ævinnar. Það, sem er eins og gefur að skilja harla ólíkt verki Takemitsus, rann ljúft í gegn og tónninn hjá Pahud var engu líkur. Það var hins vegar ekki bara fyrir tónfegurðinni að fara, heldur var bara svo mikil músík í túlkun hans. Afbragð.

Cécile Chaminade (1857-1944) samdi lokaverkið sem Pahud flutti, Concertino, árið 1902, þá upphaflega fyrir flautu og píanó. Verkið hefur lengi prýtt efnisskrá flautuleikara og það ekki að ófyrirsynju, enda svo að segja gullfalleg flugeldasýning sem Pahud lék af fingrum fram, þar með talið glæsilegt niðurlag verksins (coda). Samleikur hans og hljómsveitar var fyrirtak sem náið augnasamband þeirra Pahuds og Evu Ollikainen bar vott um. Ég er þess fullviss að margir tónleikagestir voru að vonast eftir aukalagi en sú reyndist ekki raunin.

Eftir hlé var svo á efnisskránni fyrsta sinfónían eftir Johannes Brahms (1933-1897). Það er alkunna að Brahms glímdi lengi við þessa tónsmíð eða í 21 ár. Hann ætlaði sér alltaf að semja sinfóníu en óttaðist lengi framan af skugga Beethovens. Það reyndist óþarft, enda var tónsmíðin auknefnd „tíunda sinfónía Beethovens“ fljótlega eftir frumflutninginn.

Sinfónían fór í sjálfu sér ekki illa af stað, í nokkuð gangandi tempói (6/8) þar sem c-ið (grunntónninn) í pákunum kom skýrt í gegn. Vandamálið hófst hins vegar þar sem Allegro-ið tekur við (taktur 38 í raddskránni) og gaf nokkra mynd af því sem koma skyldi, allavegana í ytri þáttunum tveimur: Hér skyldi allt keyrt hratt í gegn og án raunverulegrar dýnamíkur. Fyrsti kaflinn var þannig rétt rúmar 13 mínútur (sem er mjög hratt) en ég geri í sjálfu sér engan ágreining um hvaða tempó stjórnendur velja, svo lengi sem það er innan skynsamlegra marka (hratt og hægt). Það sem ég er ekki sáttur við er að keyrt sé yfir öll innri blæbrigði verka og sú var einmitt raunin í Hörpu, sérstaklega í fyrsta og síðasta þætti.

Fyrsta sinfónía Brahms hefst í c-moll (myrkur) og endar í C-dúr (ljós), rétt eins og fimmta sinfónía Beethovens. En það má kannski segja að ljósin hafi verið kveikt allan tímann í Hörpu, það var ekkert „myrkur“ í túlkun Evu Ollikainen í fyrsta þætti (hratt og kalt). Annar og þriðji þáttur tókust betur (með góðu einstaklingsframtaki hjá nokkrum í hljómsveitinni) en sama vandamál skaut upp kollinum í lokaþættinum. Fyrstu taktarnir voru vissulega dulúðugir en svo tók keyrslan aftur við (þar á meðal í „gleðistefinu“ svonefnda sem leikið er á býsna lágu tónsviði). Í stað þess að litast um í raddskránni keyrði Eva Ollikainen þáttinn í gegn og meira að segja loka-kórallinn hljómaði þunnur. Ekki misskilja mig, verkið var alls ekki illa leikið, túlkunin var bara svo flöt. Brahms á betra skilið!

Magnús Lyngdal Magnússon

Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í september 2023

Greinin á mbl.is

← Allar greinar í Morgunblaðinu