„Þegar ég hef verið lögð í mold“
- Tónskáld
- Henry Pucrell
Henry Purcell (1659-1695) er eitt kunnasta tónskáld Breta. Hann fékk framúrskarandi tilsögn í tónlist en faðir hans var söngvari við ensku konungshirðina; hann söng meðal annars við krýningu Karls II (1660). Frami Purcells var skjótur; hann var orðinn hirðtónskáld átján ára, organisti í Westminster Abbey tvítugur að aldri og loks organisti við hirðina þremur árum síðar. Purcell var mikilvirkt tónskáld og brá fyrir sig ólíkum tónlistargreinum; þannig samdi hann viðhafnarverk – sem flutt voru við hirðina – og kammertónlist jöfnum höndum. Eftir hann liggja hundruð verka – stór og smá. Það er ekki síst merkilegt í ljósi þess að hann lést einungis 36 ára gamall. Við andlátið varð Purcell þjóðartónskáld Breta og er hann grafinn í Westminster Abbey.
Eitt af því sem einkennir sungin verk Purcells er hversu vel ensk tunga fellur að þeim, til að mynda hvað snertir atkvæðalengd. Hann lét eftir sig fjölda sönglaga en þekktasta sungna verk hans er þó án efa óperan Dídó og Eneas. Lengi var talið að hún hefði verið frumflutt árið 1689 af nemendum heimavistarskóla Josiasar Priests í Chelsea sem ætlaður var dætrum yfirstéttarinnar (hvernig svo sem karlhlutverkin voru þá mönnuð). Nú þykir hins vegar líklegra að verkið hafi upphaflega verið samið til flutnings við hirðina og þá hugsanlega í tilefni af krýningu Vilhjálms þriðja og drottingar hans, Maríu annarrar, þetta sama ár, það er 1689. Sú kenning hefur skotið upp kollinum að inntak óperunnar sé dæmisaga fyrir hinn nýkrýnda konung; meðal annarra orða geti það haft gríðarlegan harm í för með sér að yfirgefa drottningu sína. Fyrir slíkri túlkun eru vitanlega engar heimildir en María drottning lést aðeins fimm árum eftir krýninguna – löngum vanrækt af konungi sínum sem eyddi mestum tíma á flakki um Írland eða á meginlandi Evrópu, leiðandi her sinn í orrustum til verndar ríkinu.
Texta verksins samdi enska skáldið Nahum Tate en inntak hans er sótt í fjórðu bók Eneasarkviðu Virgils þar sem segir frá ástum Dídóar drottingar í Karþagó og Trójuverjans Eneasar. Tate fylgir rómverska skáldinu í öllum aðalatriðum en dregur víða saman, styttir og einfaldar. Hann gerir þó eina veigamikla breytingu: Í stað þess að guðirnir skipi Eneasi, samkvæmt vilja forlaganna, að sigla frá Karþagó fremur en að reisa konu fagra borg lætur Tate nornir spilla sambandi elskendanna sem leiðir til dauða Dídóar.
Þó svo að óperan Dídó og Eneas þyki fyrir margra hluta sakir frumleg á hún sér nokkuð nána fyrirmynd í verkinu Venus and Adonis sem kennari Purcells (og síðar samstarfsmaður), John Blow, samdi laust eftir 1680. Það verk er þó ekki ópera í nútímaskilningi, heldur svokölluð hálfópera, rétt eins og verk Purcells á borð við King Arthur og The Fairy Queen. Dídó er hins vegar fullsköpuð ópera í þremur þáttum, samin undir allmiklum frönskum og ítölskum áhrifum og má þar nefna til sögunnar tónskáld á borð við Lully og Charpentier.
Sagan er einföld: Dídó, drottning af Karþagó, sem vill deila lífi og konungsríki með öðrum, kemst í kynni við prinsinn Eneas. Hann hafði gert garðinn frægan í Trojustríðinu og með þeim takast ástir. Brúðkaup er skipulagt en galdranorn leggur á ráðin um að eyða ríki Dídóar og stunda niðurbrot hennar og dauða. Falskur sendiboði er sendur á fund Eneasar og kallar hann til starfa í öðru landi. Eneas lætur blekkjast og skilur Dídó eftir harmi slegna. Hún deyr úr sorg og englar strá blómum yfir gröf hennar. Skömmu fyrir andlátið syngur hún aríuna frægu, „When I am laid in earth (Þegar ég hef verið lögð í mold)“.
Flutningur á verkinu er ekki vandalaus. Elsta varðveitta raddskráin er frá 1777 – það er tæpri öld eftir að óperan var frumflutt – og þykir ljóst að í henni eru að minnsta kosti tvær eyður; tónlist sem Purcell samdi við forspjall óperunnar er glötuð en meiri skaði þykir að tapast hefur aftan af öðrum þætti, sennilega bæði kór og dansþáttur, og hafa ýmsar misgóðar tilraunir verið gerðar til að fylla í skarðið. Þá hafa litið dagsins ljós mjög ólíkar túlkanir á verkinu. Það er stutt, tekur ekki nema um það bil 55 mínútur í flutningi, og dramatísk framvinda því hröð. Þetta er erfitt sviðsverk og þó að það hljómi kannski dálítið undarlega má segja að dramatíkin skili sér betur með því að heyra verkið fremur en sjá.
Óperan Didó og Eneas nýtur mikilla vinsælda og hljóðritanir af henni skipta tugum. Verkið er núorðið nánast alltaf leikið á svonefnd upprunahljóðfæri þar sem gerð er tilraun til að líkja eftir þeim venjum í flutningi sem tíðkuðust á dögum tónskáldsins. Þessar upprunaútgáfur eru þó margar hverjar afar ólíkar og virðist hafa myndast einhvers konar ensk túlkunarhefð annars vegar (nokkuð köld) og svo hins vegar hefð sem kenna má við meginlandstúlkun (mun hlýrri). Þá ber að nefna að til eru nokkrar upptökur í rómantískum anda, leiknar á nútímahljóðfæri, sem njóta mikillar hylli. Ég ætla hér að nefna sex hljóðritanir sem ég mæli sérstaklega með, þrjár eldri (í rómantískum anda) og þrjár undir áhrifum upprunaskólans. Allar eru þær aðgengilegar á helstu streymisveitum.
Elsta heildarhljóðritun verksins er frá árinu 1936 en níu árum síðar (1945) kom út fræg upptaka með þeim Kirsten Flagstad og Thomas Hemsley í titilhlutverkunum. Elisabeth Schwarzkopf syngur hlutverk Belindu og Geraint Jones stjórnar (Naxos). Upptakan er vissulega komin til ára sinna og kannski er rödd Flagstad nokkrum númerum of stór fyrir titilhlutverkið, að minnsta kosti ef við miðum við þær söngkonur sem syngja hlutverkið í dag. Það breytir því hins vegar ekki að yfir þessari upptöku hvílir ákveðinn sjarmi sem erfitt er að lýsa í orðum.
Bretar sverja við lafði Janet Baker í hlutverki Dídóar en upptakan með henni kom út árið 1961. Þar er Raimund Herincx í hlutverki Eneasar og Patricia Clark fer með hlutverk Belindu; Anthony Lewis stjórnar (Decca). Vissulega er Baker – eins og alltaf – frábær og það er unun að heyra hvernig hún bregður fyrir sig ólíkri túlkun; stundum er hún mjög dramatísk og á öðrum stöðum afar viðkvæm. Aðrir söngvarar á upptökunni eru kannski ekki á pari við Baker en hljóðritunin varð svo að segja „klassísk“ frá fyrsta degi og þannig nokkurs konar viðmiðunarupptaka af verkinu.
Enn dekkri en bæði Flagstad og Baker er svo Jessye Norman en upptaka með henni í hlutverki Dídóar kom úr árið 1986. Thomas Allen syngur Eneas og Marie McLaughlin er Belinda; Raymond Leppard stjórnar (Philips). Stjórnandinn lýsti eigin túlkun sem „Tristan í tekatli“ og vísast eru það orð að sönnu. Túlkunin er hæg og breið en aðdáendur Norman verða ekki fyrir vonbrigðum. Þessa upptöku þarf maður að heyra að minnsta kosti einu sinni.
Frá upprunaskólanum er upptakan sem Emmanuelle Haïm stjórnaði árið 2003 fyrir margra hluta sakir merkileg. Susan Graham er frábær Dídó en hér er það tenór, Ian Bostridge, sem fer með hlutverk Eneasar (sem venjulega er sungið af barítón). Camilla Tilling er Belinda (Erato). Bostridge er ekki allra en margt af því sem stjórnandinn gerir er hugmyndaríkt.
Eigi ég að mæla með einni upptöku af verkinu hlýtur það að vera sú sem kontratenórinn og hljómsveitarstjórinn René Jacobs stjórnaði og kom út árið 2007. Í titilhlutverkum eru Lynne Dawson og Gerald Finley en með hlutverk Belindu fer Rosemary Joshua (Harmonia Mundi). Kór og hljómsveit eru framúrskarandi og allar hendingar hjá Jacobs eru léttar og smekklega útfærðar. Ekki það að upptakan sé öll hröð, það eru hún alls ekki og hún er á köflum býsna hæg (eins og til að mynda kórinn í þriðja þætti, „Great minds against themselves conspire“).
Grísk/rússneska hljómsveitarstjóranum Teodor Currentzis hefur stundum verið lýst sem „enfant terrible“ í tónlistarheiminum. Hann er að minnsta kosti óhræddur við að synda gegn (megin)straumum í túlkunum sínum. Árið 2008 kom út upptaka af Dídó og Eneas undir hans stjórn með Simone Kermes og Dimitris Tiliakos í titilhlutverkunum en Deborah York fer með hlutverk Belindu (Alpha). Túlkunin er ýmist lúshæg eða ofboðslega hröð en allar hendingar eru afar skýrar. Kór og hljómsveit eru fyrsta flokks.
Magnús Lyngdal Magnússon
Greinin birtist í Morgunblaðinu í ágúst 2023