Að venda sínu kvæði í kross
- Tónskáld
- Edvard Grieg, Lajos Bárdos, Egill Gunnarsson, Hildigunnur Rúnarsdóttir, James MacMillan, Eygló Höskuldsdóttir Viborg, Atli Heimir Sveinsson, Philip Stopford, Jaakko Mäntyjärvi, Robert L. Pearsall
- Flytjendur
- NA
- Kór, hljómsveit, stjórnandi
- Hljómeyki, Erla Rut Káradóttir
Hljómeyki á Reykholtshátíð
★★★★
Tónlist: Edvard Grieg, Lajos Bárdos, Egill Gunnarsson, Hildigunnur Rúnarsdóttir, James MacMillan, Eygló Höskuldsdóttir Viborg, Atli Heimir Sveinsson, Philip Stopford, Jaakko Mäntyjärvi og Robert L. Pearsall. Kór: Hljómeyki. Stjórnandi: Erla Rut Káradóttir. Reykholtshátíð. Tónleikar í Reykholtskirkju laugardaginn 29. júlí 2023.
Sönghópurinn eða kammerkórinn Hljómeyki var stofnaður árið 1974 og fagnar því hálfrar aldar afmæli á næsta ári. Hann hefur komið víða fram en er kannski þekktastur fyrir samvinnu við Sumartónleika í Skálholti, samstarf sem stóð yfir í þrjá áratugi og gat af sér frumflutning tuga verka eftir íslensk tónskáld. Að þessu sinni kom kórinn fram á Reykholtshátíð í blíðskaparveðri síðustu helgina í júlí. Reykholtskirkja var þétt setin og greinilegt að hátíðin laðar að sér fjölda gesta, bæði innlendra og erlendra. Er það vel. Hátíðin var stofnuð árið 1997 og hefur ávallt verið haldin í kringum vígsluafmæli Reykholtskirkju sem ber upp á síðasta sunnudag júlímánaðar.
Yfirskrift tónleikanna var „Kvæði í kross“ en prógrammið var í stórum dráttum tvískipt. Annars vegar hljómuðu tónverk samin við latnesku Maríubænina „Ave maris stella“ og hins vegar verk úr býsna ólíkum áttum. Alls voru á efnisskránni sjö tónverk samin við latneska sálminn, það elsta og kannski þekktasta eftir Edvard Grieg (1843-1907) og þau yngstu eftir þrjá félaga úr Hljómeyki, þau Egil Gunnarsson (f. 1966), Hildigunni Rúnarsdóttur (f. 1964) og Eygló Höskuldsdóttur Viborg (f. 1989).
Uppruni bænarinnar er óljós en hún er stundum eignuð Bernharði af Clairvaux. Útfærslurnar voru býsna ólíkar, en allar sannfærandi og flutningur var mjög góður. Kórinn stóð í blandaðri stöðu, það er að segja raddir stóðu ekki saman, en samhljómur var með miklum ágætum og hljómurinn í kirkjunni góður. Mér fannst útfærsla James MacMillans (f. 1959) einna eftirminnilegust (og reyndar sú eftir Philip Stopford (f. 1977) líka) en það var gaman að heyra jafn ólík tónverk við sálminn og mikilvægt að eiga íslensk tónverk við sama texta.
Seinni hlutinn af prógramminu samanstóð af verkum úr ólíkum áttum. Gullfalleg lög Atla Heimis Sveinssonar (1938-2019) úr leikritinu Dansleikur voru afar fallega flutt og bæði Shakespeare-söngvar Jaakkos Mäntyjärvis (f. 1963) sem og tveir madrígalar komu skemmtilega á óvart (ekki síst síðasta verkið á efnisskránni við texta bandaríska landlæknisembættisins, „Smoking can kill“). Shakespeare-söngvarnir eru eitt þekktasta verk Mäntyjärvis en hann starfar jöfnum höndum sem þýðandi og tónskáld og kórstjóri. Eftir hann liggja yfir 150 kórverk en sjálfur nam hann bæði ensku við Háskólann í Helsinki sem og tónsmíðar og kórstjórn við Sibeliusar-akademíuna. Það heyrðist greinilega í Reykholtskirkju hvílíkt vald Mäntyjärvi hefur á madrígala-forminu og sem fyrr segir var flutningur Hljómeykis góður. Hljómurinn í kórnum var fallegur en kannski aldrei ýkja kraftmikill. Hann var hins vegar alltaf hreinn. Þetta voru ljómandi fínir tónleikar og ekki spillti fyrir smá glens í upphafi þar sem kórinn bæði baðst afsökunar á smátöfum auk þess sem gestir voru minntir á að slökkva á farsímum (allt í sungnu máli).
Magnús Lyngdal Magnússon
Dómurinn birtist í Morgunblaðinu í ágúst 2023